Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 27
Bröns
alla laugardaga og sunnudaga
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is
Verð
aðeins
1.795
með kaffi
eða te
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
í Múrbúðinni
Reykjavík Klettháls 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16
Suðurnes Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18
Akureyri Furuvellir 15. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14
Húsavík Garðarsbraut 50. Opið virka daga kl. 8-18
Vestmannaeyjar Flatir 29. Opið virka daga kl. 8-18
VEGLEG VERKFÆRI
DURATOOL
Rafhlöðuborvél 18V
2.990 kr.
NOVA 18V Rafhlöðuborvél
2 hraðar
4.990 kr.Verkfærasett
33 hlutir
1.495 kr.
NOVA TWISTER 4,8V
Skrúfvél og skrúfbitar
1.790 kr. Verkfærasett
5 hlutir
395 kr.
Flísasög 800w,
sagar 52 cm
19.900kr.
1400W
360 min/lit/klst
Þolir 50C heitt vatn
5 metra barki
Sápubox
Black&Decker
háþrýstidæla 110 bar
13.900 kr.
áfram. Reyndum eftir fremsta
megni að vera sterk og hjálpast
að; halda áfram með okkar dag-
lega líf og raska því eins lítið og
við gátum. Við þurftum að standa
okkur fyrir hina strákana okkar.
Ég held að það hafi verið mjög
góð ákvörðun hjá okkur. Við höf-
um samt breyst að mörgu leyti;
erum meira heima, leitum í að
umgangast okkar nánustu meira
og þar af leiðandi hafa lífsgildin
breyst. Það er ýmislegt sem við
höfum enn ekki treyst okkur í
en það mun kannski koma með
tímanum.“
Hjálpaði það þér kannski að hafa
nóg fyrir stafni?
„Það er fyrst og fremst fjölskyld-
an, vinir og vandamenn og sam-
heldnin þar sem hjálpar manni í
gegnum svona lagað. Við svona
áfall áttar maður sig á hvað það
er nauðsynlegt að eiga góða að.
En það er gott að hafa eitthvað að
gera. Ég ákvað að halda náminu
áfram, ótrauður. Ég held að það
sé mikilvægt að fólk sé einbeitt
í því sem það er að gera hverju
sinni. Að taka sér svo annan tíma
í að vinna úr svona málum, eins
og til dæmis sorg, sem maður er
náttúrlega að vinna með allt sitt
líf. Það er ekkert sem tekur eitt til
tvö ár. Sorgin er eilífðarverkefni
og hver dagur hefur sinn tíma.“
Markmiðið að komast upp
Ekki er ólíklegt að þeir eiginleik-
ar sem koma knattspyrnumönn-
um í fremstu röð séu einmitt þeir
eiginleikar sem hjálpa fólki að
takast á við erfiðleika utan vallar:
einbeiting og æðruleysi, ásamt
góðum skammti af viljastyrk.
Viljastyrk á Eyjólfur til í ríkum
mæli og hann skín í gegn í næstu
setningu, þegar við færum talið
aftur að því verkefni sem bíður
hans eftir viku:
„Við ætlum okkur að komast
upp úr riðlinum,“ segir hann
ákveðinn. „Okkar markmið í
keppninni hefur alltaf verið að
vinna næsta leik. Við förum í alla
leiki til að sigra. Að fara í leiki
með hugsunina „við töpum ekki
þessum leik“ tel ég vera ranga
nálgun. Við förum í leikinn með
hugsunina: „Hvernig getum við
unnið leikinn?“. Hann byrjar í
0:0 jafntefli og það þarf að finna
leiðir til að koma út sem sigurveg-
ari í hverjum leik. Þar erum við
með skýra sýn og höfum stefnt
á það í öllum okkar leikjum. Það
hefur gengið gríðarlega vel og við
munum halda því áfram.“
Einhver langtímamarkmið?
„Þetta er næsta markmið og svo
sjáum við bara hvert það leiðir.“