Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.06.2011, Qupperneq 40

Fréttatíminn - 03.06.2011, Qupperneq 40
36 skólar Helgin 3.-5. júní 2011 Náttúru- og umhverfisfræði skógfræði og laNdgræðsla umhverfisskipulag háskóli lífs og lands hægt er að stunda nám til Bs- prófs á fimm náms- brautum við lbhÍ: Búvísindum, hestafræði, náttúru- og umhverfisfræði, skógfræði/landgræðslu og umhverfis- skipulagi (fornám að landslagsarkitektúr). miðstöð háskólanámsins er á hvanneyri í Borgarfirði. Nemendagarðar á hvanneyri bjóða einstaklings herbergi, einstaklingsíbúðir og tveggja til fjögurra herbergja íbúðir. allar upplýsingar um verð og stærð húsnæðis á vegum garðanna eru á heimasíðu Nemenda garða. félagslíf nem- enda er með miklum ágætum, en því stýrir stjórn Nemendafélags landbúnaða- háskóla Íslands. kyNNtu þér Bs Nám við laNdBúNaðarháskóla ÍslaNds. á heimasÍðu skólaNs - www.lBhi.is - fiNNur þú greiNagóðar upplýsiNgar um Námið. sÍmiNN er 433 5000 BúvÍsiNdi hestafræði umsóknarfrestur um háskólanám er til 4. júní. Nám í haust, skráning han Flugfreyju/ugþjónanám 12. september Einkaugmannsnám 5. september Nemendur útskrifast með evrópsk réttindi í ugþjónustu. 8 vikna nám. Kennt á kvöldin, bekkjarker. Fullkomin kennsluaðstaða. 10 vikna nám. Kennt á kvöldin, bekkjarker. Gæði og fagmennska er okkar fag! www.f lugskoli.is  Viðskiptasmiðjan Sérhæft nám á háSkólaStigi fyrir frumkvöðla á vegum Klaks – Nýsköpun-armiðstöðvar atvinnulífs-ins og Háskólans í Reykja-vík býðst frumkvöðlum sérhæft nám á háskólastigi, í Við- skiptasmiðjunni – hraðbraut, sem gefur frumkvöðlum möguleika á að stofna ný fyrirtæki eða koma fyrir- tækjum á rétta braut. Verkefnið er Tilgangur Viðskiptasmiðjunnar er að hjálpa frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum að skapa verðmæti og undirstöður fyrir farsælan fyrirtækjarekstur. mismunandi áherslur á hverri önn Kennarar Viðskiptasmiðjunnar eru stundakennarar úr öllum háskólunum og nýsköpunarsjóðum, sérfræðingar á sínu sviði. „Þeir eru fengnir til að kenna og ekki síður að vera prófdómarar. Þeir sjá þá hvernig frumkvöðlarnir, karlar jafnt sem konur, og verkefnin þeirra þróast frá önn til annar,“ segir María Þorgeirsdóttir og bætir því við að hugmyndir þeirra séu fjölbreyttar og nefnir sem dæmi einn sem er að þróa leitarróbót fyrir björgun- ar sveitir. Margir eru einnig að vinna við fjölmargt sem viðkemur hugbúnaði og einn er að hanna leiki, bæði borðspil og nettengda leiki. „Það horfa allir til CCP sem hefur gengið svo vel. Þá hafa ýmsir fatahönnuðir komið við hjá okkur. Frumkvöðlarnir fá viðskiptastuðning, kennslu í fjármálum, markaðssetningu, mannauðsstjórnun og öllu því sem þarf til að reka fyrirtæki. Það er svo ótrúlega margt sem þarf að kunna,“ segir María. Mismunandi áherslur eru á hverri önn. Á þeirri fyrstu einbeita menn sér að því að gera viðskiptaáætlun um hug- myndina og þá fær hver og einn mentor, stuðningsaðila, en á annarri önninni er frekar litið til markaðsáætlunar. Á þeirri þriðju er síðan heildarstefnumótun sem lokaverkefni. Eftir hverja önn kynnir fólk sitt verkefni frammi fyrir þriggja manna dómnefnd en tveir dómnefndarmanna eru utanaðkomandi. Viðskiptasmiðjan – Hraðbraut nýrra fyrirtækja er þekkingarstuðningskerfi fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki. Hlið við hlið eru kannski hönn- uður sem er að hanna fatalínu og annar sem er að hanna fljúgandi róbót. Þau vinna verk- efni um sína hugmynd – eru sér en samt saman. að búa til samkeppnisfært fyrirtæki en rannsóknir hafa sýnt að flest ný fyrirtæki ná aldrei flugi vegna þess að frumkvöðlar gera grundvallar- mistök í rekstrinum því að þeir hafa hvorki nauðsynlega þekkingu né góða ráðgjafa. Úrval námskeiða í samstarfi við HR gerir frumkvöðl- um kleift að fá viðeigandi viðskipta- þekkingu merkilegt framtak Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmda- stjóri Klaks og skólastjóri Viðskipta- smiðjunnar, segir þessa námsleið mjög merkilegt framtak á evrópskan mælikvarða. Nemendur eru valdir í námið ann- ars vegar á grundvelli viðskiptahug- mynda sem þeir senda inn og hins vegar á grundvelli reynslu og bak- grunns. Markmiðið er að mynda hóp af áhugaverðum einstaklingum sem geta ekki síður lært mikið hver af öðrum en náminu. Aðalatriðið er þó að nemendur hafi þegar byrjað að þróa viðskiptahugmyndina áður en námið hefst. Einstaklingar jafnt sem hópar tveggja til fjögurra sem vinna að sömu viðskiptahugmynd geta sótt um. Einnig er hægt að sækja um með fyrirtæki sem þegar er í rekstri. Mögulegt er að stunda námið með vinnu eða öðru námi. „Nú hafa fleiri en sjötíu fyrirtæki verið til náms og ráðgjafar í Við- skiptasmiðjunni í skemmri og lengri tíma. Árangurinn er verulegur hvort sem litið er til þeirra fyrirtækja sem hafa komið út úr ferlinu, breytinga sem orðið hafa á fyrirtækjum í ferl- inu, fjárfestinga sem þau hafa fengið eða þess þekkingaryfirflæðis sem átt hefur sér stað út í samfélagið. Fjár- fest hefur verið í þessum fyrirtækj- um fyrir á annan milljarð króna og t.d. voru þrjú af sex verkefnum sem tilnefnd voru til Nýsköpunarverð- launa forseta Íslands nátengd Við- skiptasmiðjunni,“ segir Eyþór Ívar. „Viðskiptasmiðjan er í stöðugri þró- un og markmiðið er að byggja brýr fyrir íslenska frumkvöðla inn á er- lenda markaði, um leið og hugmynd- in er að gera Ísland og Viðskipta- smiðjuna áhugaverð fyrir erlend sprotafyrirtæki,” segir Eyþór Ívar. „Með það að leiðarljósi var ákveð- ið að hún hefði frumkvæði að því að fara í rannsóknar- og tengslanets- leiðangur í Kísildalinn vorið 2011. Tólf fyrirtæki fóru í þennan leiðang- ur þar sem fyrirtæki eins og Google. com, Facebook, Berkley Bionics og fleiri voru skoðuð, ásamt því að farið var í Stanford- og Berkeley-háskóla. Enginn vafi leikur á að þau fyrir- tæki sem fóru í þennan leiðangur lærðu mikið af því en jafnframt hafa þau getað hjálpað öðrum íslenskum sprotafyrirtækjum að byggja upp sitt tengslanet á þessu svæði.“ Viðskiptahlutann hefur vantað María Þorgeirsdóttir er verkefnis- stjóri hjá Klaki. Hún segir að Við- skiptasmiðjan sé frumkvöðlamiðað nám á háskólastigi fyrir fólk með hugmyndir og líka fólk sem vill fá hugmyndir. Í smiðjunni eru nám- skeið á fimm sviðum; fjármálasviði, markaðssviði, stjórnunarsviði, stefnumótunarsviði og frumkvöðla- og nýsköpunarsviði. Námið tekur þrjár annir, haust-, vor- og haustönn, eða hálft annað ár. „Nemendurnir taka námskeið í öllum þessum grein- um,“ segir María. „Allt námið og öll vinna þeirra snýst um eigin hug- mynd þótt unnið sé í hópum. Hlið við hlið eru kannski hönnuður sem er að hanna fatalínu og annar sem er að hanna fljúgandi róbót. Þau vinna verkefni um sína hugmynd, eru sér en samt saman. Það skiptir miklu máli að vera saman þótt þau séu að vinna í gerólíkum hlutum. Fatahönn- uðurinn fer t.d. í hugarflug um mark- aðssetningu og þá hjálpa allir hinir.“ „Viðskiptahlutann hefur oft vant- að, t.d. hjá uppfinningamönnum, þótt þeir séu með snilldarhug- myndir. Þar komum við að með Við- skiptasmiðjunni og tengslaneti við aðra frumkvöðla og fjárfesta,“ segir María. „Kennarar okkar koma úr há- skólunum og einnig frá fjárfesting- arsjóðunum. Það skiptir svo miklu máli að kynnast þessum heimi, fá að vita hvernig fjárfestarnir hugsa og við viljum líka að fjárfestarnir viti hvernig frumkvöðlarnir hugsa þann- ig að þetta fólk geti talað saman.“ jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Vinnan snýst um eigin hugmynd
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.