Fréttatíminn - 03.06.2011, Page 42
Áhugamenn um viðgang myndasögunnar
geta fagnað því að líf er að færast aftur
í myndasögublaðið NEO Blek. Snemma
á þessu ári kom út 16. tölublaðið með
nýútsprunginni endurlífgun þeirra Svals
og Vals í svarthvítu í bland við annan
þátt af Þriðja testamentinu, hvort tveggja
rómönskum sögum af bestu gerð. Í
fyrrahaust kom feitt blað merkt 14/15 og
nú er 17da heftið komið á markað.
Engin von er til að blað eins og NEO
Blek lifi af nema kaupendur splæsi í
heftin. Þau er auðvelt að nálgast á
vægu verði í helstu bókaverslunum og á
vefnum www.myndasogur.is -pbb
Ný NEO
Blek-blöð
Bókadómar Bankastræti núll
æ tla mætti að yfirskrift
þessa laustengda
ritgerðasafns Ein-
ars, sem hann kall-
ar Bankastræti núll
eftir niðurgröfnum
almenningsklósett-
um sem byggð voru
um miðja síðustu
öld neðarlega í Bak-
arabrekkunni, séu
til dýrðar almenn-
ingssalernum, en
það reynist ekki
vera þótt skrifin
fjalli um skítamál,
skítalabba og forn
minni. Einar fléttar
í tuttugu og fimm
köflum saman vandlætingarflaum
sinn um hruntímann, lausnir vinstri-
stjórnarinnar (Einar var skrautfjöður
á lista VG í Reykjavík), ýmsar endur-
minningar sínar frá fyrri tíð sem nú
eru upplýstar í bleikum bjarma hinna
rauðu daga í lífi skáldsins og hinna
strákanna – og svo fáum við létta
slettu af AA-speki og hugleiðingum
um fíknina.
Þetta er fallega umbrotin bók með
grænblárri kápu og neon-rauðum inn-
kápum, glóandi sem minnir á hina fornu
daga Neon-seríunnar áður en hún datt
úr hinu frábæra kápusniði hirðbrots-
konu Bjarts, Ástu hinnar dularfullu.
Ritgerðirnar eru flestar samtengdar
á einhvern hátt, langur flaumur, víða
stríður, en alltaf mótaður af hinni kunnu
mælsku skáldsins, andagift þess og ljóð-
rænni sýn á mannlíf, hagfræði, huldar
lendur og heimamenn, einkum þá sem
nú fara með aflöndum í dulbúningum og
reyna að komast heim – hvar sem það
verður nú þeim og þeirra niðjum – koma
víða við sögu.
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn og hans
sendimenn og fulltrúar eru þráfald-
lega stungnir, ætlun þeirra, erindi og
árangur mældur. Skáldið skortir mikið
innsýn í hið flókna og ófyrirleitna endur-
bótakerfi sem nú er að byggja upp nýtt
eignarhald í íslenska hagkerfinu; hann
mætti á sínum ferðum um landið hlusta
meira eftir sönnum sögum úr viðskipta-
lífinu, hverfa frá hinu almenna til hins
sértæka, taka hluta og greina þá frekar
en fljúga hátt yfir eynni og reyna að
greina meginstrauma.
Fyrr á tíð valdi Einar sér Morgun-
blaðið til að birta reiðilestra sína yfir
meðreiðarsveinum í stórri sveit alþjóða-
kapítalista. Í þessari sérútgáfu – þótt
ég trúi að eitthvað af þessum skrifum
hafi reyndar birst í Mogganum – vefur
hann skrifin haganlega í fléttu, reipi
sem dygði til að hengja menn, væri bent
á þá. Þess á milli dettur hann niður í til-
raunir til að greina bernskuljósin sín og
þá fyrst og fremst bítlana, sína gömlu
félaga, og nokkra aðra samferðarmenn.
Einari tekst alltaf að gera menjar og
minningamörk ljóslifandi. Hann er jú
mikill og sérstakur sögumaður. Ekki
fannst mér Hvíta bókin hans vera leikur
frjálsra anda, stíf og einstrengingsleg.
Það er nú rekið ofan í mig og aðra með
fjölda tilvitnana um hrifna lesendur á
þýðingum. Meira að segja skartar for-
síða bókarinnar stjörnum þótt skáldið
hallmæli þeim í textum sínum. Íhald-
pressan danska kallar EMG „fremsta
núlifandi rithöfund Íslands“. Hvers má
sín þá kvak okkar smáfuglanna þegar
Berlingurinn heldur ekki vatni.
Þetta eru skemmtileg skrif. Fjölbreyti-
leg þótt þau séu ekki af mörgum þáttum.
Einar er orðinn hress, laus við reiði-
kenndan boðunartón, mildaður af ljóð-
um sem hann vitnar gjarna til, einkum
til Sigfúsar Daðasonar, síns gamla meist-
ara. Verkið verður þannig djörf tilraun
til að draga saman í þematengdan ópus
marga þræði og verður ljómandi í hinum
persónulega stíl hans sem þroskast um
leið og hann ber æ sterkari höfundarein-
kenni sem hljóta að þýðast sæmilega á
önnur mál ef marka má fjölda tilvitnana
um ágæti skáldsins og verka hans á
innbroti kápunnar aftanverðu. Ég hélt
reyndar að skáldið þyrfti ekki þá sjálf-
styrkingu á íslenskum lesendamarkaði
– ekki lengur. En skáldum er víst aldrei
nógsamlega hrósað.
Ritverk sem standa utan við skáld-
skapaðan heim, tilbúnar persónur og
söguþráð eru að verða tilteknum aldri
höfunda töm. Margir eru þeir reyndir
agitatorar; Einar Már Guðmunds- og
Jónssynir, Björn Bjarnason og fleiri
velktir bitar úr hruninni höll kaldastríð-
svaldanna. Víst má fagna því að sam-
félagsumræðan skuli endurbyggjast
með þeirri rekahrúgu á fjörum lesenda.
En allt eru það hoggin tré, sum sködduð
eftir volkið, fæst nýtileg til nýrra bygg-
inga, mest notuð í nýjar girðingar,
rammsölt eftir langa útivist á höfum
hugans og fúna eftir sprungum undir sól
og vindum þegar á land eru komin.
Við bíðum þess spennt að skáldið
þjóni lund sinni og skrifi okkur sögur
þótt greinar hans skemmti oss og hafi
skarpan tón um liðna daga.
38 bækur Helgin 3.-5. júní 2011
Bókadómur Bavíani
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Út er komin hjá Veröld seinni hluti Pálssögu eftir
Ólaf Jóhann Sigurðsson sem forlagið hóf útgáfa á
með stóru bindi í fyrra. Skáldverk Ólafs Jóhanns um
Pál Jónsson blaðamann er uppgjör við mestu átaka-
tíma síðustu aldar á Íslandi,
hernámið og eftirstríðs-
árin. Drekar og smáfuglar
er lokabindi þessa mikla
sagnabálks en áður eru
komin út í einni kilju fyrri
bindin tvö, Gangvirkið og
Seiður og hélog.
Ólafur Jóhann Sigurðsson (1918-1988) var einn af helstu
stílsnillingum síns tíma. Persónurnar endurspegla margslungið
andrúmsloftið í samfélaginu og eru í senn skoplegar og tragískar.
Ólafur Jóhann hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið
1976, fyrstur Íslendinga. -pbb
Drekar og smáfuglar í kilju
Bavíani og aðrir apar Til dýrðar
almenningsklósettum
Einar Már Guðmundsson hefur verið öðrum höfundum duglegri í hruninu og kreppunni sem
eftir fylgdi. Nú er önnur bók hans helguð þessu efni komin út.
Naja Marie Aidt er skáldkona dönsk,
fædd á Grænlandi og býr nú í New
York eftir að hún fékk bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs fyrir smá-
sagnasafn frá 2006. Baboon hét það á
dönsku. Fimmtán smásögur, flestar
með nokkuð mismunandi sniði en
allar sama markinu brenndar, snilld-
arlega samsettar og þaulhugsaðar í
samþjöppuðu og niðurnjörvuðu formi
hver um sig. Margar býsna bersögl-
ar um myrka kima sálarinnar, siðs-
kakka karla og konur, saklaus og sek
fórnarlömb.
Heimurinn sem Naja lýsir af svo
mikilli fágun og skírleika í hugsun
stendur okkur nærri; háir og lágir,
ungir og gamlir, koma þar við sögu og
yfir öllu stafar heiðum himni, undursamlegri birtu,
en um leið ótta og hættu, skaðanum sem býr í sköp-
uninni allri. Hún útmálar umhverfi í smáu af glögg-
leika myndhugsunar, safnar saman í knappa texta
miklu magni upplýsinga sem varpa ljósi á þröng
svið og fáar persónur. Sprengikraftinn leysir hún
svo úr læðingi á óvæntu augnabliki, gjarna undir
það síðasta svo að grunlítill en óviss lesandi hrekkur
við og allt söguefnið verður undurljóst á augabragði.
Naja er mikill meistari, hún á að baki tvö eldri
smásagnasöfn og ljóðabækur, er hálffimmtug og
vinnur nú að skáldsögu. Hún kom hingað til lands
á vegum Norræna hússins, sagði það sína þriðju
heimsókn til landsins og taldi sögur sínar kjörnar til
að lýsa aðstæðum uppgangstímans fyrir hrun. Þess
gætir ekki nema að litlu leyti í sögunum nema þær
höndla margar siðrof af einhverju tagi, láta persón-
urnar standa strípaðar á endanum, flegnar öllum
umbúðum. Nú þegar þýðingar Ingunnar Ásdísar-
dóttur eru komnar á þessa litlu bók, sem þó heimtar
nákvæman og hægan lestur, er ekki hægt annað en
fagna því að safnið er komið út á íslensku og sem
flestir njóti þess. Naja segir smásöguna henta vel
og vera spennandi form. Það er alla vega í hennar
sköpun. -pbb
Rosabaugur yfir Íslandi,
bók Björns Bjarnasonar,
fyrrverandi ráðherra,
um Baugsmálið og
þræði þess um íslenskt
samfélag, kom út í
síðustu viku og var mest
selda bókin í bókaversl-
unum Eymundsson í
vikunni sem leið. -óhþ
Björn á toppnum
Bankastræti
núll
Einar Már Guðmundsson
185 bls. Mál og menning
2011
Einar Már
Guðmundsson
Ólafur Jóhann Sigurðsson.
Bavíani
Naja Marie Aidt
Þýðandi Ingunn Ásdísar-
dóttir
200 bls. Bjartur 2011
Naja Marie Aidt,
dönsk skáldkona,
fædd á Grænlandi
og býr í New York.
SUMARHÚSIÐ
& GARÐURINN
Stútfull bók af hugmyndum og leiðbeiningum
fyrir garðeigendur
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Hjálpar þér að hanna
draumagarðinn þinn
Fæst í bókabúðum um land allt
Einnig hægt að panta í
síma 578 4800 og á www.rit.is