Fréttatíminn - 15.04.2011, Blaðsíða 24
Banki
Líklega er fáum meira í
nöp við nokkur fyrirtæki
á landinu en viðskipta-
bankana þannig að hér
er ekki ráðist á garðinn
þar sem hann er lægstur.
Einn álitsgjafanna sagði
einfaldlega „pass“ við
þessari spurningu: „Við
erum bara ekki komin
á þann stað að geta látið
einhvern fronta þetta.“
Athygli vekur að Vigdís
Finnbogadóttir fékk
flestar tilnefningar í
þessum flokki þannig að
ætla má að færsælast þyki
að tefla hér fram traustri
manneskju sem jafnframt
er fulltrúi saklausari tíma
og lífsins eins og það var
áður en gróðærið fór á
fullt og ofvöxtur hljóp í
bankana. Þó eru skoðanir
skiptar og enn finnst fólk
sem vill veðja á grjótharða
viðskipta- og peninga-
menn í þessu sambandi.
„Vigdís Finnbogadóttir.
Góð og grandvör kona.
Landsmóðir sem fólk ber
virðingu fyrir og treystir
þrátt fyrir að hún hafi
stigið á einhverjar við-
kvæmar tær með innleggi
sínu í Icesave-deiluna.“
„Í dag virðist vera trend
í þá áttina að gera banka
kvenlægari. Betra að
branda þá með konum og
tengja þá við gömlu góðu
húsmæðrahagfræðina.
Þess vegna væri alveg
rakið að hafa Margréti
Sigfúsdóttur, skólastjóra
Hússtjórnarskólans, sem
andlit banka og fulltrúa
gamalla gilda.“
„Björn Hlynur Haraldsson
er bankamaður dauðans.
Ungur Gekko, vatns-
greiddur í jakkafötunum
– hann myndi selja þann
banka endalaust!“
„Í því ástandi sem ríkir í
þjóðfélaginu í dag verður
talsmaður banka að vera
tiltölulega meinlaus en
um leið traustvekjandi.
Hann má ekki hafa verið
tengdur bönkunum að
neinu leyti undanfarin
ár. Ekki skemmir ef við
könnumst við hann af
góðu einu. Þess vegna
held ég að Þorsteinn J. sé
maðurinn í þetta. Og ef
Simmi í Kastljósinu missir
vinnuna þá væri hann
kjörinn í þetta.“
„Þar sem flestir bankar
landsins hafa glatað
trausti almennings er
þetta ansi snúið. En ef þú
vilt láta passa peningana
þína, virkilega passa
þá, kemur bara einn til
greina. Jón stóri er mað-
urinn í þetta. Hver myndi
ekki treysta honum fyrir
peningunum sínum?
„Helgi í Góu er alþýðleg-
ur rekstrarmaður sem
hefur aldrei skuldsett
sig upp fyrir haus. Hann
hefur verið grjótharður
í baráttu fyrir réttlátara
lífeyrissjóðakerfi og
hefur því þá áru trausts
sem venjulegt fók vill sjá
eftir allt sem á undan er
gengið.“
„Halla Tómasdóttir hefur
aukið jafnvægi, heiðar-
leika, ábyrgð og fjöl-
breytni í fjármálaþjónustu
á Íslandi.“
„Vilhjálmur Bjarnason
og Gylfi Magnússon. Ef
þessir kappar mæltu með
banka myndi meirihluti
þjóðarinnar treysta þeim.“
„Sölvi Tryggvason hugsar
hlutina til enda og er mjög
gagnrýninn. Hann myndi
ekki taka þátt í einhverj-
um skítabisness. Svo er
hann svo myndarlegur –
það skemmir ekki. Hann
er ákaflega traustvekj-
andi.“
Einnig nefnd:
Gerður Kristný
Benedikt Erlingsson
Dorrit Moussaieff
Birkir Hólm Guðnason
María Ellingsen
John Cleese
Ilmur Kristjánsdóttir
Gunnar Smári Egilsson
Sigurjón Kjartansson
Gosdrykkur
Glaðlegi sprelligosinn
Sveppi hefði getað selt
átta ára barni Suzuki
Vitara á uppgangstím-
anum og hann hefur enn
ekki tapað sjarmanum
ef marka má álitsgjafa
Fréttatímans. Hann var
oftast nefndur sem heppi-
legasti einstaklingurinn
til að kynna gosdrykk,
ýmist einn síns liðs eða
með einhverjum fylgi-
tunglum úr hans menn-
ingarkima. Þá þykja
einnig færi í því að tefla
fram fólki sem er þekkt
fyrir heilbrigðan lífsstíl
til þess að afla gosdrykk
almannahylli.
„Það er erfitt að fá ein-
hvern til að segja að
eitthvað sé gott þegar
flestir vita að það er það
alls ekki. Spurning hvort
Sveppi geti sagt unga
fólkinu undir 15 ára að
gosdrykkir séu af hinu
góða.“
„Sveppi og Steindi Jr. –
tveir snillingar sem eru
aldrei í formi og því pott-
þéttir kandidatar í ein-
hvern sykurdrykkinn.“
Hverjum
getum við
treyst?
Þegar glansmyndin um gósenlandið Ísland hrundi í kjölfar falls
bankanna breyttist hræðsla og örvænting fljótlega í mikið
reiðibál sem enn logar glatt. Tortryggni og vantrú eru helsta
eldsneyti reiðinnar enda fauk allt traust út í veður og vind í
hruninu. Almenningur telur sig ekki geta treyst neinu lengur,
hvorki yfirvöldum, stofnunum, fólki né fyrirtækjum.
Á
velmegunarárum endalauss lánsfjár gat Bubbi
Morthens selt fólki Land Rover og Páll Óskar fór
létt með að kenna ungu fólki ráðdeild í fjármál-
um í nafni fjármálafyrirtækis. Staðan er önnur í
dag og sjálfsagt verður einhver breyting á þeim
hópi dáðustu barna þjóðarinnar sem hægt er að
nota til þess að auglýsa varning og þjónustu. Páll Óskar trekkir
enn en er einhver til í að kaupa notaðan bíl af Bubba?
Fréttatíminn leitaði til markaðs- og auglýsingafólks og annarra
sem fylgjast vel með sveiflum á hinum viðkvæma markaði sem
þrífst á almenningsálitinu, trausti og trúverðugleika í leitinni
að dýrmætasta andliti Íslands eftir hrun. Hverjum treystum við
ennþá og hver getur leitt auglýsingaherferð fyrir banka og gos-
drykk og verið andlit hvatningarherferðar fyrir því að fá fólk til
að ferðast innanlands?
Líklega er fáum meira í nöp við nokkur
fyrirtæki á landinu en viðskiptabankana
þannig að hér er ekki ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur. Einn álitsgjafanna
sagði einfaldlega „pass“ við þessari spurn-
ingu: „Við erum bara ekki komin á þann
stað að geta látið einhvern fronta þetta.“
Þá þykja einnig færi í því
að tefla fram fólki sem er
þekkt fyrir heilbrigðan lífs-
stíl til þess að afla gos-
drykk almannahylli.
24 úttekt Helgin 15.-17. apríl 2011