Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.04.2011, Blaðsíða 70

Fréttatíminn - 15.04.2011, Blaðsíða 70
T ónlistarhátíðin Reykjavik Music Mess ætti að setja hressilegan svip á tónlistarlífið í höfuðborginni um helgina því þá treður upp fjöldi áhugaverðra íslenskra hljómsveita auk spennandi gesta frá Bandaríkj- unum, Grænlandi og Finnlandi. „Það er eiginlega skylda að sjá eitthvað af þessu,“ segir dr. Gunni, tónlistarsér- fræðingur Fréttatím- ans. „Þetta er allt mjög spennandi og gott stöff. Böndin spila á NASA, í Norræna húsinu og Sódómu þannig að það er alveg alvöru festival-stemning í þessu. Aðalbandið er auðvitað Deer- hunter,“ segir Gunni og bendir á að sveitin sé ekki enn komin alla leið í meginstrauminn. „Það er mikill fengur að fá þá fyrir þennan hóp sem er að eltast við nýtt stöff.“ Gunni segir „grænlenska krúttið“ Nive Nielsen áhuga- verða. „Hún er alveg með putt- ann á krúttinu, kemur fram með úkúlele og spilar dálítið kántrí- skotið eskimókrútt. Svo verður líka einhver brjálaður Finni þarna sem heitir Tomutonttu og er alveg bara kexruglaður.“ Þegar kemur að Íslending- um er einnig af nógu að taka. Samaris, sigurvegarar Músík- tilrauna, eru þar á meðal, sem og Prinspóló og Agent Fresco svo að eitthvað sé nefnt. „Og Mugison er nú funheitur með Haglél. Hann er að fara að gefa út einhverja plötu í ár þannig að hann er örugglega að spila það stöff.“ -þþ  reykjavík Music Mess skylda að sjá eiTThvað  skálMöld herjar á evrópu Blóðþyrstir með öfluga samherja Þar klæða menn sig upp í brynjur og stofna svona bönd og reyna að syngja á ís- lensku sem er voðalega hallærislegt. Ritskoðuð list sýnd í Reykjavík Talsvert fjaðrafok varð í kringum listasýninguna Koddu sem hlaut ekki náð fyrir augum safnstjóra Listasafns Árnesinga í Hveragerði í nóvember. Nokkrir af þekktustu myndlistarmönnum þjóðarinnar höfðu þar sett upp sýn sína á hrunið og eftirköst þess. Sýningin var ritskoðuð og slegin af en verður opnuð á morgun, laugardag, klukkan 16 í Nýlistasafninu og klukkan 17 í Alliance-húsinu. Þar leggja fjörutíu listamenn fram hráa og óbundna túlkun sína á ástandinu en meðal þess sem setti fólk út af laginu í Hveragerði var boðskort á sýninguna sem skartaði Bjarna Ármannssyni, fyrrverandi forstjóra Glitnis. Sett ofan í við Financi- al Times í lesendabréfi Í leiðara Financial Times hinn 13. apríl fengu Íslendingar byr í Icesave-seglin undir þeim formerkjum að Íslendingar horfðust nú í augu við eineltistudda. Það er ekki á hverjum degi sem Íslend- ingar fá birt lesendabréf í blaðinu. Þetta tókst Halldóri Lárussyni sem brást snarlega við leiðaranum og sendi blaðinu bréf sem það birti í gær. Þar bendir hann á að blaðið horfi fram hjá því að Íslendingar hljóti í það minnsta að bera siðferðilega ábyrgð í málinu þar sem forsætis- og utanríkis- ráðherra hafi farið í heimsreisu til þess að lýsa yfir styrk og trausti bankanna þegar á þá var hallað – þrátt fyrir að öllum hafi mátt vera ljóst að ríkið gæti aldrei varið bankana falli. Ný kynslóð Rafskutlur -frelsi og nýir möguleikar Einfaldar í notkun og hagkvæmar í rekstri Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Opið virka daga kl. 9 -18, lokað á laugardögum 1. maí til 31. ágúst Þ etta er alvöru samningur og platan kemur út á heims-vísu 27. júlí,“ segir Snæbjörn Ragnarsson, bassaleikari og texta- höfundur sveitarinnar. „Þetta er frábært og svo fara hlutirnir bara eins og þeir fara. Það tók marga mánuði að landa þessu og ef allt gengur vel er frekara samstarf fyrirhugað.“ Napalm er með hljómsveitina Tý, sem er mörgum Íslendingnum vel kunnug, á sínum snærum. Á heima- síðu Napalm er samningnum lýst sem bræðralagi og nú verði andi víking- anna borinn út um heimsbyggðina. „Við gerum þetta samt í samkrulli við Tutl sem gaf plötuna okkar út hér heima og í Færeyjum,“ segir Snæ- björn en á heimasíðu Napalm lýsir Skálmöld því yfir að með jafn trausta bandamenn og Tutl og Napalm sé sveitin til í hvaða stríð sem er. Skálmöld hefur einnig verið bókuð í fjögurra vikna tónleikaferðalag um Evrópu með fimm öðrum sveitum í október. „Þetta er stóra fréttin sem var bara að detta inn. Við erum búnir að staðfesta að við verðum með í festi- val-túr sem heitir Heidenfest. Bandið Finntroll er í fararbroddi og þeir eru mjög stórir þannig að þetta er tæki- færi. Þarna verður bara túrað í mánuð og spilað kvöld eftir kvöld eftir kvöld um alla Evrópu.“ Tónlist sveitarinnar með tilheyr- andi vísan í heiðni og hetjusögur vík- inga á sterkan hljómgrunn í Mið-Evr- ópu og þá sérstaklega í Þýskalandi. „Þetta er ægilegur kúltúr í Þýska- landi og þar í kring. Þjóðverjarnir læra sögurnar okkar í skóla og kynn- ast heiðninni þar. Þetta þykir ægilega kúl. Þar klæða menn sig upp í brynjur og stofna svona bönd og reyna að syngja á íslensku sem er voðalega hallærislegt. Og núna er allt í einu bara komið eitthvert svona band sem syngur á íslensku af því að okkur er það eðlislægt og erum ekkert að fara í grímubúninga. Þetta smellur alveg inn hjá þeim og þeim finnst svolítið til þess koma að venjulegir menn, innan gæsalappa, komi bara og geti sagt: „Heyrðu, hættiði nú að rembast, við erum svona í alvörunni.“ Þetta er skemmtilegt,“ segir Snæbjörn sem bítur í skjaldarrendur og býr sig undir að herja á umheiminn með félögum sínum. toti@frettatiminn.is Dr. Gunni segir að ef Deerhunter hefðu komið á Airwaves hefðu þeir verið eitt af stóru númerunum þar. „En þeir fylla samt ekki Höllina.“ Grænlenskt krútt og kexruglaður Finni Dr. Gunni er spenntur fyrir Deerhunter og krúttinu Nive Nielsen. Fjórir af sex Skálmaldar- mönnum vígreifir með góðan samning í vasanum. Aðdá- endur þeirra geta næst heyrt í þeim á NASA þann 29. apríl þegar þeir troða upp með Sólstöfum. Íslenska víkingametalsveitin Skálmöld hefur gert samning við austurríska plötu- fyrirtækið Napalm Records. Fyrsta plata sveitarinnar, Baldur, fer því í alþjóðlega dreifingu í sumar. Það er skammt stórra högga á milli hjá Skálmaldarmönnum sem fara í mánaðarlangt tónleikaferðalag um Evrópu í haust þar sem þeir ætla að sýna fólki á meginlandinu hvernig alvöru menn bera sig að með hljóðfærin. Lj ós m yn d/ H ar i Fréttablaðið greindi frá því í gær á baksíðunni að Steindi jr. væri orðinn nýr gullkálfur Stöðvar 2. Áhorfið á fyrsta þátt hans í nýrri þáttaröð hefði verið 25 prósent í aldurshópnum 12 til 49 ára, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Capacent. Rauntölur birtust í gær og samkvæmt þeim er Steindi jr. með 15,9 prósent áhorf. Það er 9,1 prósentustigi minna en Frétta- blaðið sagði frá í gær. Uppblásið áhorf Steinda jr. í Fréttablaðinu 62 dægurmál Helgin 15.-17. apríl 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.