Fréttatíminn - 15.04.2011, Blaðsíða 44
úr Þróunarsjóði framhaldsfræðslu
Þróunarsjóður framhaldsfræðslu auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna
nýsköpunar- og þróunarverkefna í framhaldsfræðslu, sbr. lög um framhalds-
fræðslu nr. 27/2010.
Forgangssvið við úthlutun árið 2011 eru:
Námsefnisgerð í framhaldsfræðslu
Nýsköpunarverkefni í framhaldsfræðslu
Undirbúningur/grunnvinna fyrir rannsóknir
Viðmiðin sem Þróunarsjóðurinn gengur út frá
við val á verkefnum eru að þau:
Nái til þeirra sem falla undir ramma laganna um framhaldsfræðslu
Mæti sýnilegri þörf fyrir menntunarúrræði í framhaldsfræðslu
Áhersla er lögð á að öll verkefni sem sótt er um styrk til séu vel undirbúin og
umsóknir vandaðar. Kostur er að verkefni sé samstarfsverkefni. Verkefni sem
styrkt eru mega ná yfir tvö ár frá úthlutun.
Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Umsóknareyðublað má
nálgast á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is sem jafnframt er
umsjónaraðili verkefna sjóðsins.
Umsóknarfrestur er til 6. maí 2011
Umsækjendum er bent á að kynna sér lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010
og úthlutunarreglur sjóðsins sem má nálgast á www.frae.is
Stjórn Fræðslusjóðs
Styrkir
Vaktstjóri í sal
Þjónustulundaður orkubolti
með reynslu í veitingaheiminum
Barþjónar
lífsglaðir kokkteilhristarar
þjónar
jákvæðir og Þjónustulundaðir
kokkanemi
landsliðskokkur framtíðarinnar
Góð laun, fríðindi og skemmtilegur
vinnustaður í boði fyrir rétta fólkið.
Nánari upplýsingar veitir
Ágúst Reynisson í tölvupósti,
agust@fiskmarkadurinn.is
NÝR VEITINGASTAÐUR
LEITAR AÐ STARfSfóLkI
GRILLMARkAÐURINN
LækjARGöTU 2b
E itt íslenskt fyrirtæki, ORF Líftækni hf., hefur fengið leyfi til ræktunar erfða-
breyttra lífvera utandyra. Margir
telja að ekki sé nógu varlega farið
í þessu efni þar sem um er að ræða
tækni sem getur haft ófyrirsjáan-
legar afleiðingar. Því hefur verið
lögð fyrir Alþingi tillaga um aukna
aðgát við þannig ræktun. Tillag-
an hefur vakið hörð viðbrögð hjá
nokkrum aðilum tengdum líftækni
sem krefjast þess að hún verði
dregin til baka. Þar sem bréfið er
stílað á Alþingi Íslands og orðalag
þess allöfgakennt, fer ekki hjá því
að manni komi í hug orð eins og
„frekja“ og „hroki“. Þetta er langt
frá þeim hugmyndum um „þekk-
ingu“ og „auðmýkt“ sem fólk set-
ur oft í samband við vísindi. Því er
ekki fjarri lagi að líta betur á fyrir-
tækið sem hefur gefið tilefnið til
þessarar deilu.
Liðsinni forseta
ORF Líftækni hf. var stofnað árið
2001. Fyrirtækið á sér trausta að-
standendur sem leggja því lið í
samningagerð við innlenda sem er-
lenda ráðamenn. Þar má fyrst nefna
herra Ólaf Ragnar Grímsson, for-
seta Íslands, og hæstvirtan utanrík-
isráðherra, Össur Skarphéðinsson.
Sá fyrri var til staðar við undirritun
samninga milli þessa íslenska líf-
tæknifyrirtækis og stærsta lyfja-
fyrirtækis Kína, Sinopharm. Síðar
sama dag „var Ólafur Ragnar við-
staddur þegar Bakkavör skrifaði
undir samning um framleiðslu
Útiræktun erfðabreyttra lífvera
Líf og tækni
matvæla á stóru
landsvæði sem fyrir-
tækið fær til umráða
í Shaanxi-héraði“
(Morgunblaðið, 7.10.
2007).
Sá síðari var milli-
göngumaður þegar
„Björn Örvar, fram-
kvæmdastjóri ORF
Líftækni, og Dilip
Mohite, forst jór i
indverska f yr ir -
tækisins DM Cor-
poration, undirrit-
uðu viljayfirlýsingu
[um] samstarf við
þróun, framleiðslu
og markaðssetningu
á próteinlyfjum fyrir alþjóðlegan
markað“. Þar var einnig viðstödd
frú Preneet Kaur, utanríkisráð-
herra Indlands. Viljayfirlýsingin
felur í sér stofnun nýs lyfjafyrir-
tækis „til að þróa og markaðssetja
sérvirk lyfjaprótein. ORF Líftækni
leggur ... til sérþekkingu sína og
einkaleyfisbundið framleiðslukerfi
fyrirtækisins í erfðabreyttu byggi“
(Morgunblaðið, 1.9. 2010).
Litlar upplýsingar er að finna á
netinu um DM Corporation, en hér
er sennilega komið sama fyrirtæki
og fyrir nokkrum árum fékkst eink-
um við sölu á notuðum jarðvinnu-
vélum (http://demo.softbd.com/
dmcorp/). Forstjóri fyrirtækisins,
Dilip Mohite, er auk þess Bolly-
wood-leikari og sveitarstjórnar-
maður fyrir Nationalist Congress
Party (http://connect.in.com/dilip-
mohite/profile-1884365.html).
Tómarúmið sem Decode skildi
eftir sig
Af öðrum aðstandendum ORF Líf-
tækni hf. má nefna Pál Þór Magn-
ússon, sem árið 2007 var fram-
kvæmdastjóri IceProperties ehf.
og fleiri fyrirtækja, og Birgi Ómar
Haraldsson, sem árið 2007 var
framkvæmdastjóri í Valiant Fjár-
festingum ehf. og Rekstrarráði
ehf., báðir þá einnig stjórnarmenn
í ORF Líftækni, sem og ýmsum öðr-
um fyrirtækjum, svo sem VBS Fjár-
festingarbanka hf. Birgir Ómar var
auk þess árið 2008 stjórnarmaður
í Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna
hf. og BS sjóði, fagfjárfestasjóði í
rekstri Rekstrarfélags Kaupþings
banka hf. Auk þess má sjá af upp-
gjöri Líftæknisjóðsins hf. árið 2003,
þar sem Birgir Ómar Haraldsson
var stjórnarformaður, að þau þrjú
íslensku félög sem sjóðurinn fjár-
festi í voru Decode Genetics, ORF
Líftækni og Mark-
Mar ehf.
Við vitum hvernig
fór með Decode. Af
þróun mála mætti
ætla, að nú sé ORF
Líftækni ætlað að
fylla það tómarúm
sem Decode skildi
eftir sig í hjörtum
og sparisjóðsbókum
landsmanna.
OR F Lí f tækni
hlaut Nýsköpunar-
verðlaun Ranníss,
Útflutningsráðs og
Nýsköpunarmið-
stöðvar kreppuárið
2008, og Samtök
iðnaðarins birta fréttir um afrek
fyrirtækisins (http://www.si.is/
starfsgreinahopar/liftaekni/frettir-
og-greinar/2007/02).
Gegn órökvísum útrásaröflum
ORF Líftækni á sér ekki bara góða
að meðal iðnaðar- og útflutnings-
aðila og stjórn- og fjármálamanna.
Fyrirtækið nýtur einnig virðingar
kolleganna. Þrjátíu og sjö tækni- og
vísindamenn skrifuðu undir bréfið
til Alþingis þar sem þess var krafist
að engar frekari takmarkanir yrðu
settar ræktun erfðabreyttra lífvera
í íslenskri náttúru. Slíkt hömluleysi
gagnast í augnablikinu aðeins ein-
um kolleganna, það er að segja ORF
Líftækni.
Björn Örvar, framkvæmdastjóri
ORF Líftækni, og kollegarnir 37,
sem samkvæmt eigin yfirlýsingu
eiga engin hagsmunatengsl við
ORF Líftækni, neita því með öllu að
útiræktun erfðabreyttra lífvera geti
haft slæmar afleiðingar fyrir nátt-
úruna, eða að erfðabreytingarnar
muni breiðast út á nokkurn hátt. Í
bréfinu til Alþingis má þó sjá ýmsar
hugsanavillur og þar vantar rekjan-
legar tilvitnanir í vísindalegar rann-
sóknarniðurstöður sem styðja stað-
hæfingarnar.
Að ofannefndum öflum saman-
lögðum er ekki skrítið að umhverf-
isráðherra hafi ekki getað staðið
gegn þunga þeirra þegar hún féllst
á að veita ORF Líftækni leyfi til úti-
ræktunar erfðabreytts byggs í hitti-
fyrra. Er þá ekki kominn tími til að
hugleiða hvernig við getum stutt
við bakið á henni og Alþingi gegn
þessum órökvísu útrásaröflum og
beitt okkur fyrir því að tekið verði
fyrir útiræktun erfðabreyttra líf-
vera, að minnsta kosti þar til sannað
er að slíkt skaði hvorki okkur, ís-
lenska byggið né náttúruna?
Valdimar Briem
dr. phil., fræðilegur ráðgjafi
36 viðhorf Helgin 15.-17. apríl 2011