Fréttatíminn - 15.04.2011, Blaðsíða 48
Harvard University Press er að gefa út skáldsöguna
Myndin af Dorian Gray eftir upprunalega handritinu sem
Lippincott, fyrsta útgefanda þess, var afhent vorið 1890 til
útgáfu í tímariti hans í júní það ár. Þá strax tóku menn að
laga texta Oscars Wilde til. Þótt fræðimönnum yrði það
ljóst tæpum níutíu árum síðar að skáldsagan, sem kom
fyrst út sem framhaldssaga í tímariti og síðar á bók, hafði
verið afbökuð af útgefendum er útgáfa HUP sú fyrsta sem
gerir höfundinum fullan sóma og birtast skýringar á ýmsu
sem er á seyði í frásögninni sem kann að vera nútímales-
anda hulið. Sagan er því að koma í ljós nútímalesendum
með útgáfunni. Hér var hún þýdd um miðja síðustu öld
en ætti nú að finna nýjan þýðanda og útgáfu í sínu rétta
móti. Þarflaust er að taka fram að erótíkin, hómóerótíkin og
sexúalitetið var það sem þurrkað var út úr sögunni. -pbb
Hin rétta Mynd
af Dorian Gray
Bókardómur draumagarðurinn Björn jóhannsson
Í því örsmáa þéttbýli sem tók að myndast hér á malarkambinum norðan Tjarnarinnar á síðasta hluta
átjándu aldar var fyrsti vísir að garði
við Stjórnarráðshúsið (þá tugthús) með
skipulögðum beðum og vermireitum
að því er heimildir greina. Bæjarbúar
voru margir með garðrækt til að bæta
fæðuframboð og þótt Reykjavík og önnur
bæjarfélög hafi staðið sig misjafnlega í
skipulagningu slíkra garða í jaðri byggð-
arinnar (því ekki í henni miðri?) urðu
lóðarskikar brátt svo stórir, þegar hverfi
tóku að myndast, að við hús urðu garðar.
Því réð fyrst og fremst áhvílandi krafa
um rými milli húsa vegna eldhættu.
Draumagarður er ný bók um skipulag
garða eftir Björn Jóhannsson lands-
lagsarkitekt. Þar er gerð tilraun til að
segja áhugamönnum (byrjendum) til um
helstu atriði sem þarf að hafa í huga við
garðaskipulag. Bókin er fallega brotin,
bæði með skissum og tölvugerðum upp-
dráttum og ljósmyndum sem flestar eru
nýjar eða nýlegar og margar býsna keim-
líkar. Þótt vandað sé til bókarinnar að
öllu leyti, en hún skiptist í 40 kafla á 144
stórum blaðsíðum, er hún undirlögð af
samræmdum smekk íslenskra garða-
arkitekta nú um stundir. Lítur raunar á
köflum út fyrir að vera kynningarbækl-
ingur fyrir BM Vallá og hellu- og kant-
steinasölu þeirra eða bræður þeirra í
sólpallaiðnaðinum. Nú eru hellulagðir
stígar og hin bráðnauðsynlegu þriggja
bíla stæði innan lóðarmarka – vanalega
hellulögð – frekar skammlíft fyrirbæri í
íslenskri garðhönnun, rétt eins og stór
mannvirki úr ódýrri hraðsprottinni furu
sem leggja undir sig stóra hluta af rækt-
unarplássi sem á teikningum er áætlað
undir garð. Stéttir og pallar eru fyrir
látlausan áróður framleiðenda orðin stór
hluti af íslenskum görðum. (Metið átti
ágætt fólk í Garðabæ sem byggði pall yfir
allan garðinn sinn.)
Allt er þetta gert í nafni þeirrar
dyggðar sem fyrir misskilning telur
hellulagnir og spýtupalla viðhaldsfrírri
en til dæmis grasflatir – sem er mikill
misskilningur. Fátt útheimtir stöðugri
umhirðu en stéttir, palla þarf að endur-
nýja eftir stöðugt viðhald eftir örfá ár – á
meðan vel undirbúin grasflöt þarf ekki
annað en slátt stöku sinnum á sumri.
Pallar og helluflákar eru fyrir fólk sem
á ekki að hafa garða heldur malbikað
svæði umhverfis húsið sitt. Garðlata
menn sem þola ekki gróður.
Á þessu ástandi eiga garðahönnuðir
ekki litla sök. Björn fjallar um gróður á
ríflega 20 síðum í bók sinni; allt hitt er
um hellur, tröppur, stíga og, gleymum
ekki, fjölbreytta möguleika í pallagerð;
bókin ætti frekar að heita Draumapall-
urinn. Nú eru tillögur Björns ágætlega
skýrar þótt hann leggi litla áherslu á
undirbúning beða og moldar- og mal-
arparta umhverfis hús sem geta styrkt
vel það sem áætlað er að gera á lóðinni:
Plöntur taka misvel við þeim grunni sem
í boði er og þýðast illa sumar hverjar
mómoldina. Vilji menn ná góðum árangri
þarf ekki bara látlausa vinnu og umhirðu
heldur verður hverri plöntu að gera rétt
beð. Það tekur gróna garða ekki nema
fá sumur að falla í órækt og það má sjá
víða. Raunar virðast flestir garðeigendur
hafa afar takmarkaðan áhuga á garðrækt
eins og flestir garðar vitna um – þeir sem
ekki hefur verið breytt í bílastæði sem
yfirvöld láta alltaf óátalið þótt það éti upp
götustæði fyrir öðrum.
Enga tilraun gerir Björn á þessum tutt-
ugu síðum til að kynna valkosti í garð-
rækt. Bókin er í stíl við hina hefðbundnu
garðsýn íslenskra garðyrkjumanna og
þjónar þeim málstað vel.
drauma
garðurinn
Björn Jóhannsson
144 bls. Sumarbústaðurinn
og garðurinn 2010.
Barbara demick
Engan þarf að öfunda
Þýðing Elín Guðmundsdóttir
336 bls. Ugla 2011.
40 bækur Helgin 15.-17. apríl 2011
Bókardómur Engan þarf að öfunda
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Karlar sem hata konur er í amerískri út-
gáfu sinni búin að slá met, var greint frá
í vikunni sem leið: er fyrsta bókin sem
hefur selst í milljón eintökum í stafrænu
formi sem er fyrir vikið met. Larsson
heldur áfram að seljast í Ameríku:
Þríleikurinn hans er kominn yfir þrjár
milljónir í stafrænni sölu og í allt
hefur þríleikurinn selst í 17 milljónum
eintaka.
Stígur blessaður fer enda fremstur í
bylgju norrænna höfunda víða um lönd
og í kjölfarið fylgja margir sem vilja ná
eins langt og hann svo að þeir geti sest
í steininn helga eins og hann dreymdi
um á meðan hann smíðaði með konu
sinni þennan bautastein. -pbb
Stieg setur met í netheimum
Í ríki harðstjórnar
Dýrð og blómi garðsins
Bækur eru nokkrar til um skipulag og uppbyggingu skrúðgarða við heimili. Skipulagðir
garðar eiga sér lengri sögu hér á landi en marga grunar; bæði klaustur og frömuðir um
jarðrækt skipulögðu garða fyrir rækt til matnytja.
Björn fjallar
um gróður
á ríflega 20
síðum í bók
sinni; allt hitt
er um hellur,
tröppur, stíga
og, gleymum
ekki, fjöl-
breytta
möguleika í
pallagerð ...
Við vitum lítið um Norður-Kóreu. Lengst af frá
lokum Kóreustríðsins, svo grimmilegt sem það
var, hefur Kórea verið lokað land. Þaðan berast
fáar sögur – hungursneyðin sem gekk þar yfir og
er eitt mesta harðæri sem hefur áfallist eina þjóð
á síðari tímum, var mörgum kunn en var ekki höfð
í hámælum. Þar austur frá búa sem sagt milljónir
manna við hörmulegar aðstæður og harðýðgi af
hálfu stjórnvalda sem stýra landinu með það eitt
markmið að lifa í hóglífi með styrkri stoð hersins.
Jakob Uglubóndi hefur nú látið þýða, prýðilega
af Elínu Guðmundsdóttur, nýlega bandaríska bók
sem segir okkur af nokkrum einstaklingum sem
ólust upp í skjóli Kim Il Sung, máttu þola erfiðleika
og brutust að lokum burt. Sumpart hefst sagan
við borgarastyrjöldina þar sem Bandaríkjamenn
og samherjar þeirra börðust við kínverska herinn
í bland við sveitir heimamanna. Þaðan eru örlög
flestra þeirra sem við sögu koma spunnin. Höf-
undur verksins er snjall sögumaður og byggir frá-
sögnina á löngum viðtölum við helstu persónur en
styður allt verkið ítarlegum heimildum sem tíund-
aðar eru í skrá með bókinni. Hún heitir Barbara
Demick og var í nær áratug fréttaritari LA Times
þar austur frá.
Norður-Kórea lýtur harðstjórn; Barbara dregur
enga dul á hvernig norðurhlutinn gat satt þegna
sína samfara því að stilling á innrætingarvélinni
var fínstillt um tíma á meðan ríkið naut ókeyp-
is orku og annarrar aðstoðar frá Sovétríkjunum
og Kína. En eftir 1989 þvarr þann styrk og fram
undan var áratugur hungurs og eyðileggingar í
Kóreu. Barbara rekur dæmigerðar sögur af þeim
hryllingi sem fólkið mátti þola; vannæringu sem
leiddi milljónir í dauða og skaddaða eftirlifendur á
sál og líkama. Frásögnin er lamandi en hvergi er
verið að klæmast á ástandinu. Í leiðinni gefur hún
lesanda greinargóða mynd af landinu og sumpart
sögu þess, átökunum við Japan og Kína, þá vold-
ugu nágranna. Bókin er þannig lykill að hluta af
sögu Asíu sem okkur er annars ókunn.
Yfir þessu öllu hangir mynd af alvaldi sem stýrir
öllu, mótar hugsanir heillar þjóðar, kynslóð eftir
kynslóð, með blöndu af frumstæðri hugsjón, þjóð-
ernisrembu, gamaldags Konfúsíusarhyggju, jafn-
vel kristni í bland við forneskju þar sem allt skal
gert fyrir Flokkinn sem er aðeins hinum innvígðu
og innmúruðu opinn. Enda fórst þjóðin í blindu
þýlyndi. Maður líttu þér nær.-pbb
Barbara Demick Var
um árabil fréttaritari
LA Times á Kóreu-
skaga.
Þetta eru dagar Gyrðis
Elíassonar. Fyrir liðna
helgi fékk hann alls
staðar fullt hús hjá
gagnrýnendum fyrir
Tunglið braust inn í
húsið og í byrjun þess-
arar viku fékk hann
svo bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs.
Vika gyrðis
Oscar Wilde Hómóerótíkin var
þurrkuð út úr fyrri útgáfum af
Myndinni af Dorian Gray.
Er þinn
auður í góðum
höndum?
Okkar viðskiptavinir velja
óháðan aðila sem hefur skynsemi
og áhættumeðvitund að leiðarljósi.
Borgartúni 29
S. 585 6500
www.audur.is
• Séreignarsparnaður
• Eignastýring
• Langtímasparnaður
Taktu góða ákvörðun