Fréttatíminn - 15.04.2011, Síða 66
58 menning Helgin 15.-17. apríl 2011
Plötuhorn Dr. Gunna
héðan í frá
Karl Hallgrímsson
Á fyrstu plötu sinni flyt-
ur Karl níu frumsamin
lög og texta í kompaníi
við góða menn, meðal
annars Pálma Gunnars
og Orra Harðar, sem er
útsetjari og upptöku-
stjórnandi. Tónlist Karls
á margt sameiginlegt
með því sem þessir
samstarfsmenn hans
hafa gert. Innihaldið
er íslenskt popp, ögn
blúsað á köflum, og
platan er ljúf, róleg og
angurvær. Karl syngur
vel með sinni geðþekku
rödd, lögin og textarnir
eru ágætlega saman
sett og Létt Bylgjan er
þegar farin að spila lög
af plötunni. Hér hefur
ekki verið ætlunin að
kynna frumkvöðlastarf
eða framsækni í tón-
máli poppsins og það er
bara allt í lagi. Vonandi
kveikir markhópurinn á
þessari þægilegu plötu.
From this Day Forward
Kristján B. Heiðarsson
Kristján er stofnandi og
trommari þungarokk-
ssveitarinnar Changer.
Á fyrstu sólóplötu sinni,
þessari þriggja laga
stuttskífu, er hann í allt
öðrum pælingum. Hann
spilar melódískar ballöður
þar sem kassagítarinn er
í öndvegi. Stíllinn er ögn
tilraunakenndur, enda
Ólafur Arnalds honum til
halds og trausts. Kristján
hefur þýða rödd og syngur
grátklökkur á ensku til
fyrrum kærustu. Það eru
þrjú lög á stuttskífunni,
það fyrsta langsam-
lega best; mjög flott
lagasmíði með frumlegum
bakröddum og frábærri
uppbyggingu. Hin tvö eru
síðri, þótt falleg séu. Mjög
spennandi væri að heyra
plötu í fullri lengd því sé
miðað við fyrsta lagið
hefur Kristján lagt mjög
góðan grunn að frekari
snilld.
Kvelertak
Kvelertak
Góð tónlist sem passar í
ræktina er ekki algeng.
Tónlistin sem notuð er, er
bara of oft of fávitaleg.
Ég er lítill metalhaus, en
System of a Down hafa
löngum svínvirkað við
svitamyndun og AC/DC og
Rammstein eru klassísk í
ræktina, eins og fólk veit.
Á dögunum uppgötvaði
ég fyrstu plötu Kvelertak
(Kverkatak), sem er alveg
æðisleg norsk þunga-
rokkssveit frá Stafangri.
Hér er þungarokkið
ekki fávitalegt, eins
og stundum vill verða,
heldur tryllingslega
kraftmikið, en samt bæði
melódískt og fjölbreytt.
Textar eru öskraðir á
norsku yfir músík sem
hrærir í grautum þunga-
rokksins, með vænni
slettu af frumpönki. Ég
mæli heilshugar með
þessari frábæru plötu.
Leikfélagið Royndin frá Nólsoy í Færeyjum
- Sjótekinn
Norræna húsið, Leikfélag Hafnarfjarðar og Gaflaraleikhúsið
kynna
Miðapantanir í síma 565-5900
og í midasala@gaflaraleikhusid.is
Umsagnir um sýninguna:
„Þarna liggur að baki mjög áhrifamikil hugmynd […] og öll úr-
vinnsla úr henni gerir útkomuna magnaða leikhúsupplifun. “
(Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, www.leiklist.is)
Sýnt í Gaflaraleikhúsinu
í Hafnarfirði
1. sýning 16. apríl kl. 20:00 (uppselt)
2. sýning 17. apríl kl. 20:00
„Sagan er ómótstæðileg og fer með áhorfandann
í sannkallaða rússibanareið milli gleði og harms.“
(Þorgeir Tryggvason, leiklistargagnrýnandi) F æreyska leiksýningin Havgird – Sjótekinn, í leik-stjórn Ágústu Skúladóttur,
er á leið til Íslands og verður sýnd
í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði á
laugardag og sunnudag, 16. og 17.
apríl. Leikfélag Hafnarfjarðar á 75
ára afmæli og er færeyska sýningin
gestasýning á afmælinu. Sýningin
GaFlaraleiKhúsið havGirD - sjóteKinn
„Færeyskt og íslenskt leik-
hús eins og það gerist best“
Notast er við tónlist, trúðleik og brúðuleik til að skapa hversdagslegan töfraheim sem þrunginn er gleði og sorg.
Hafið er
helsta
auðlind
beggja
þjóða
en hefur
einnig
tekið sinn
toll.
sló eftirminnilega í gegn á NEATA-
leiklistarhátíðinni í Hofi á Akureyri
síðastliðið sumar, að því er fram
kemur í tilkynningu, og var nýverið
valin ásamt 20 öðrum sýningum
úr hópi um 60 umsækjenda til þátt-
töku á alþjóðlegu IATA-leiklistarhá-
tíðinni sem haldin verður í Tromsö
í Noregi í júní á þessu ári. „Þetta
er því einstakt tækifæri til að sjá
færeyskt og íslenskt leikhús eins og
það gerist best,“ segir enn fremur.
Havgird var sett upp síðastliðið
vor af leikfélaginu Royndin í Nólsoy
í Færeyjum, Ágústa Skúladóttir
leikstýrði og leikmynd hann-
aði Katrín Þorvaldsdóttir. Tilurð
sýningarinnar var samtal Ágústu
við nokkra meðlimi leikfélagsins,
þar sem rætt var um þann þátt sem
Ísland og Færeyjar eiga sameigin-
legan; hafið. Það er helsta auðlind
beggja þjóða en hefur einnig tekið
sinn toll þar sem margir hafa horfið
á hafi úti. Sýninguna unnu Ágústa,
Katrín og leikhópurinn í samein-
ingu og er hún helguð minningu
sjómanna og allra annarra sem
endað hafa daga sína í votri gröf.
Sýningin er sjónræn þar sem
meðal annars er notast við tónlist,
trúðleik og brúðuleik til að skapa
hversdagslegan töfraheim sem
þrunginn er gleði og sorg.
jonas@frettatiminn.is