Fréttatíminn - 18.03.2011, Side 20
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Komdu við í næsta útibúi, hringdu í 410 4000 eða stofnaðu
til reglubundins sparnaðar í Einkabankanum á landsbankinn.is.
„ Ég held að maður
verði bara að byrja
einhvers staðar, byrja
á þúsundkallinum.“
Reglubundinn sparnaður er ein besta leiðin til að spara.
Þú setur þér skýr markmið og ákveður hve háa upphæð
þú vilt spara mánaðarlega. Byrjaðu að spara strax í dag.
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía
n
B
I
h
f
.
(
L
a
n
d
s
B
a
n
k
I
n
n
)
,
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
Álitsgjafar
Björk Eiðsdóttir
Benedikt Bóas Hinriksson
Hrund Þórsdóttir
Sigurlaug Didda Jónsdóttir
Brynja Björk Garðarsdóttir
Halldóra Anna Hagalín
Magnea Sif Agnarsdóttir
Svanur Már Snorrason
Íris Dögg Pétursdóttir
Helga Vala Helgadóttir
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Ragnheiður M. Kristjónsdóttir
Stefán Hrafn Hagalín
Arnór Bogason
Símon Birgisson
Jón Oddur Guðmundsson
Vignir Jón Vignisson
Krista Hall
Aðalbeikonsnáðar Íslands
1 Egill Gillzenegger
2 Ásgeir Kolbeins
3 Sölvi Tryggvason
4 Arnar Grant
5 Karl Berndsen
6 Þorbjörn Þórðarson
7 Sveinn Andri Sveinsson
8 Böðvar Þór Eggertsson,
„Böddi“ klippari
9 Logi Geirsson
10 Geir Ólafsson
E itt af því sem jafn-réttisbaráttan hefur haft í för með sér er
að karlmenn geta líka ver-
ið skinkur og í raun gilda
sömu viðmið um karlkyns
skinkurnar og konurnar.
Íslenskir nýyrðasmiðir
voru ekki lengi að setja
saman karlkynsorð yfir
karlskinkur og hinn 16.
febrúar í fyrra var orðið
„beikonsnáði“ skráð á
Slangurorðabók Snöru.is
með eftirfarandi orðskýr-
ingu: „karlkyns skinka,
gaur sem hugsar of mikið
um útlitið.“
Þótt Egill „Gillzenegger“
Einarsson hafi ekki jafn
afgerandi sérstöðu og Ásdís
Rán í kvennadeildinni er hann
engu að síður og alls ekki að
ósekju orðinn einhvers konar
Herra Viðmið þegar kemur
að því að flokka og greina
beikonsnáða. Gillz trónir
efstur á Topp 10-listanum
yfir íslenska beikonsnáða. Og
ætla má að minni spámenn í
beikonpælingum horfi til Egils
sem fyrirmyndar rétt eins og
skinkurnar mæna aðdáunar-
augum á parmaskinkuna Ásdísi
Rán. Eðlilega, þar sem Egill
hefur skrifað einar þrjár bækur
um það hvernig fólk getur
skinkað sig upp og skarað fram
úr í heimi fallega fólksins.
Ekki kemur heldur mjög
á óvart að í öðru sætinu sé
yfirhnakki Íslands, sjálfur rauði
turninn, Ásgeir Kolbeins.
Ásgeir er fagurkeri sem leggur
mikið upp úr útlitinu og gæti
sjálfsagt orðið litlu síðri innan-
hússhönnuður en Bjarnheiður
Hannesdóttir en mörgum er
enn í fersku minni þegar Ásgeir
„ældi“ í óeiginlegri merkingu
yfir ljóta innréttingu í þætt-
inum Innlit Útlit á Skjá einum.
Óneitanlega hlýtur hins
vegar að vekja umhugsun og
athygli að sjónvarpsstjarnan
Sölvi Tryggvason tapaði öðru
sætinu naumlega í hendur Ás-
geirs. Sölvi er snyrtimennskan
holdi klædd, vel lyktandi og
óaðfinnanlegur jafnt á skjánum
sem utan hans. Sölvi hefur
nánast, að eigin sögn, einn síns
liðs komið three-piece suit í
tísku á ný, hugsar vandlega um
hárið á sér en skilur sig meðal
annars frá öðrum lykil-beik-
onsnáðum vegna þess hversu
einlægur og auðmjúkur hann
er í framkomu. Karlremba
hefur nefnilega svolítið viljað
brenna við beikonsnáðana
og Sölvi er því á vissan hátt
eyland þar sem eiginlega
enginn keppir við Sölva í karl-
mennskumýkt nema sjálfur
Bubbi Morthens.
Sölvi Tryggvason
„Eina skinkan sem gengur alltaf
með Dostojevskí og Tolstoy í
handtöskunni.“
Kalli Berndsen
„Hver segir að karlmenn geti
ekki verið skinkur. Kalli er frum-
kvöðull. Alltaf með gífurlegt
magn af kremum framan í sér
og vel snyrtur skalli og skegg.
Toppurinn á klakanum.“
Gillzenegger
„Gillz – sama og Kalli plús gel
mínus skegg.“
„Sykurpúðinn Egill Þykki
Einarsson er skemmtilega
skinkaður sykurmoli.“
Ásgeir Kolbeins
„Ásgeir Kolbeins er verðugur
fulltrúi strákanna enda veit
hann eflaust GPS-punkta allra
sólbaðsstofa í bænum.“
Þorbjörn Þórðarson
„Heldur dökku litarafti allan
ársins hring, hárgreiðslan alltaf
í föstum skorðum og geislandi
sjálfstraustið gæti lýst upp
svartasta skammdegið. Á það
sameiginlegt með Sölva kollega
sínum að báðir gætu þær
kastað fjölmiðlaferlinum fyrir
starf sem tískumódel.“
„Hann er tanaður í döðlur og
til í hvað sem er, eins og segir í
textanum.“
Sveinn Andri Sveinsson
„Sveinn
Andri
representar
miðaldra
skinkurnar
og gerir það
með stæl.
Alltof tan-
aður miðað við aldur og í alltof
þröngri sundskýlu, bara svona
almennt burtséð frá aldri.“
Beikonsnáðarnir
Þegar orðinu „skinka“ er slegið upp á
Slangurorðabókinni á Snara.is koma upp
ýmsar skilgreiningar. Skinka er meðal
annars sagt vera „orð yfir flotta stúlku“ en
líka: „(e. ham) er brauðálegg, en er einnig
oft notað um stelpur sem farða sig mikið.
Flestar með dökkt, svart eða aflitað
hár. Þær klæðast aðeins merkjaföt-
um og stunda ljós reglulega.“
Þegar kemur að orðsifjafræð-
inni hallar snarlega á skink-
urnar en eftir því sem næst
verður komist er „skinka“
íslensk mynd af enska orðinu „skank“ sem
notað er yfir druslur og lauslætisdrósir og
ein skýringin á „skinku“ í Slangurorðabók-
inni er „lauslát stúlka sem er eins og barbie
dúkka í útliti“.
Skinkurnar hafa orðið þeim sem leggja
orð í slangurbelginn á Snara.is tilefni til alls
kyns orðaleikja og þannig er talað um „út-
runnin skinka“ sem konu „yfir fertugt með
aflitað hár“. Þá er „skinkuhorn“ sagt vera
„pirruð „skinka“ sem hefur allt á hornum
sér“ og malakoff er samkvæmt sömu orða-
bók rauðhærð skinka.
Skinkan skilgreind
Lj
ós
m
yn
d
H
ar
i
Lj
ós
m
yn
d
H
ar
i
Lj
ós
m
yn
d
H
ar
i
20 úttekt Helgin 18.-20. mars 2011