Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.03.2011, Page 32

Fréttatíminn - 18.03.2011, Page 32
Hamfaratjón Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL F Fólk um allan heim hefur staðið á öndinni vegna hinna ógnvænlegu náttúruhamfara í Japan á dögunum, jarðskjálftans gríðarlega og flóðbylgjunnar í kjölfar hans. Þúsundir létust og þúsunda er saknað. Eyðilegging kjarnorkuvers veldur skiljanlegum ótta enda hefur þurft að flytja fjölda fólks burtu vegna geislunarhættu. Raunar er eyðilegg- ing mannvirkja svo yfirþyrmandi að erfitt hlýtur að vera að meta slíkt tjón. Þó hefur það verið reynt. Eignatjón í kjöl- far risaskjálftans í Japan er nú talið ganga næst eignatjóninu sem varð þegar fellibyl- urinn Katrína skall með öllu afli á New Or- leans í ágúst árið 2005 og sjór gekk á land. Þar varð fjárhagstjónið mest í þeim nátt- úruhamförum sem orðið hafa í seinni tíð, er talið hafa numið 71,2 milljörðum dollara eða sem svarar rúmlega 8.200 milljörðum íslenskra króna, að því er fram kom í frétt Morgunblaðsins fyrr í vikunni. Eignatjónið vegna stórskjálftans og flóð- bylgjunnar í Japan er talið vera á bilinu 14,5 til 34,6 milljarðar dollara eða um það bil 1.700 til 4.000 milljarðar íslenskra króna. Skekkjumörkin eru því veruleg sem helg- ast auðvitað af því að umfang hamfaranna og tjón er ekki að fullu komið fram. Í fyrr- greindri frétt eru raunar sagðar líkur til þess að eignatjónið í Japan muni, þegar upp er staðið, verða meira en í New Orleans og nágrenni, þ.e. meira en 8.200 milljarðar ís- lenskra króna. Sumir hafa jafnvel spáð því að það muni nema sem svarar tugþúsund- um milljarða íslenskra króna. Tölurnar vegna tjónsins eru stjarnfræði- legar og erfitt að setja þær í samhengi. Samt voru þessar fjárhagslegu hamfaratölur á einhvern hátt kunnuglegar. Eftir ofurlitla umhugsun mundi pistilskrifari eftir lýs- ingu á tjóni af völdum hamfara sem kom- ust í þennan ógnvænlega flokk, að vísu af völdum manna en ekki náttúru, sem lítt eða ekki verður við ráðið. Sigurður Þórðar- son, fyrrverandi ríkisendurskoðandi, sagði nefnilega í fyrrasumar að beint fjárhagstjón vegna bankahrunsins á Íslandi næmi um 10.000 milljörðum króna. Sagði hann að þar hefði vegið þyngst 7.800 milljarðar króna vegna virðisrýrnunar eigna bankanna, um 40% af heildareignum. 1.400 milljarðar vegna virðisrýrnunar hluta- bréfa í fjármálafyrirtækjum, þar sem virðis- rýrnunin er 1.800 milljarðar en 400 milljarð- ar dregnir frá þeirri tölu vegna hlutabréfa sem bankarnir keyptu í sjálfum sér. Segir ríkisendurskoðandinn fyrrverandi að tap ríkissjóðs, þar með talið gjaldþrot Seðla- banka Íslands, nemi 600 milljörðum króna. Tap peningamarkaðssjóða hafi verið um 160 milljarðar og tap annarra fyrirtækja á land- inu 200 milljarðar króna. Fjárhagstjón af völdum örfárra manna í agnarsmáu landi var því meira en af mestu náttúruhamförum sem riðið hafa yfir heim- inn, meira en af versta fellibyl sem sögur fara af og eins og sakir standa metið umtals- vert meira en af því ógnartjóni sem Japanar standa nú frammi fyrir, þótt það kunni að breytast. Fjárhagstjónið af völdum glæfra- starfsemi íslensku bankanna slær enn frem- ur margfalt út tjón af öðrum stórskjálftum í heiminum og tjón af fellibyljum sem og fjárhagstjónið vegna árásarinnar á tvíbura- turnana í New York fyrir tæpum áratug. Öll þess skelfing stenst ekki fjárhagslegan samanburð við ógnir af völdum örfárra Ís- lendinga, þar sem á ferð voru víkingar með fulla vasa af peningum í stað sverða og axa, eins og Sigurður lýsti þeim söfnuði. Hér er að sjálfsögðu ekki litið til manntjóns af völdum hamfara, sem aldrei verður bætt. Svo menn átti sig á 10.000 milljörðum króna þá er sú upphæð tæplega sjöföld þjóðarframleiðsla Íslendinga árið 2008 og nemur verðmæti 43 ára útflutnings sjávar- útvegs hér á landi, þ.e. alls þess sem vænta má að við fáum fyrir sjávarafurðir okkar fram til ársins 2054. Ríkisendurskoðandi fyrrverandi mat það svo í fyrra að íslensk þjóð bæri fjórðung til þriðjung af tjóninu. Hitt væri tap erlendra aðila. Íslensk þjóð er vön náttúruhamförum og stendur þá saman sem einn maður. Það þarf hins vegar engan að furða þótt erfiðara sé að þétta raðirnar þegar ógnarhamfarirn- ar, fjárhagslegar að sönnu, eru af manna völdum. Te ik ni ng /H ar i –einfalt og ódýrt TILBOÐ MÁNAÐARINS GULI MIÐINN 20% AFSLÁTTUR AF ALLRI LÍNUNNI Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri • www.apotekid.is TILBOÐIÐ GILDIR ÚT MARS Málþing uM Heddu gabler í þjóðleikHúsinu Miðasala Hverfisgötu I 551 1200 I leikhusid.is í kassanuM sunnudaginn 20/3 kl.15 Ba Clemetsen, stjórnandi Ibsenhátíðarinnar í Noregi: ”Hedda gabler World wide – sett med norske øyne”. Umræður um sýninguna og verkið með þátttöku Kristínar Eysteinsdóttur leikstjóra, Ilmar Kristjánsdóttur leikkonu og Bjarna Jónssonar, þýðanda og dramatúrgs. Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Misstu ekki af spennandi tónlistarkokteil frá Katalóníu þar sem rúmba, hiphop og flamenco blandast í iðandi fjöri. Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is MP banki er meginbakhjarl Vetrarhátíðar í ReykjavíkOjos de brujo á Listahátíð í Hörpu, 27. maí fyrir viðskiptavini MP banka í mars. Almennt verð 3.900 kr. Sérstakt tilboðsverð 2.900 kr. Hafðu samband. Við hjálpum þér að velja rétta kortið. FÁÐU ÞÉR MASTERCARD HJÁ OKKUR HVAÐA KORT HENTAR ÞÉR? kreditkort.is | Ármúla 28 32 viðhorf Helgin 18.-20. mars 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.