Fréttatíminn - 18.03.2011, Blaðsíða 50
50 dægurmál Helgin 18.-20. mars 2011
Þ að er minna í húfi í lífi Heddu Gabler nú en þegar Ibsen skapaði þessa lífsleiðu forréttindadrós fyrir rúm-
um 120 árum. Í uppsetningu Kristínar
Eysteinsdóttur leik-
stjóra er því sem næst
búið að „aftengja“
stét t av it undina í
þessu ofurborgara-
lega verki. Þannig er
Hedda nútímans lítt
þjökuð af stöðu sinni,
að öðru leyti en því að hún hefur sjálf skapað
sér óbærilegt fangelsi út úr einskærum leið-
indum. „Uppreisn“ hennar eða órói beinist
því síður gegn ríkjandi kerfi heldur er rótin
hrein sjálfsást og frekja. Þegar minna er í
húfi fyrir aðalhetjuna verður háskinn í verk-
inu skiljanlega minni – þrátt fyrir vopnaburð
og rennandi blóð – og samúðin með henni
líka.
Hedda Gabler, leikin af Ilmi Kristjáns-
dóttur, birtist áhorfendum eins og siðlaus
tík, sem skýtur allt niður tilfinningalega
og keyrir sjálfa sig og fólkið í kringum
sig fram á brún hyldýpisins. Hún er lítt
sympatískur karakter hér en Ilmur heldur
athygli áhorfendanna vel. Hedda er fáguð
og naív með ríkulega sjálfseyðingarhvöt
– hnyttin í tilsvörum en ekkert tálkvendi.
Hennar stíl mætti meira kenna við fýlu-
stjórnun. Eiginmanninn Tesman leikur
Valur Freyr Einarsson og gerir það á al-
gjörlega brilljant máta. Samleikur hans og
Ilmar – og ekki síður Kristbjargar Kjeld
sem leikur Júlíönu Tesman af sinni snilli,
var frábær. Tesman er skýrt mótuð persóna
niður í minnsta látbragð og þagnir, í senn
fyrirlitlegur, saklaus gunga og algjört fórn-
arlamb. Það er gaman að sjá Stefán Hall
Stefánsson í hlutverki Ellerts Lövborgs; þar
fetar hann nýjar brautir en mætti vel ganga
lengra. Brynhildur Guðjónsdóttir leikur
Theu Elvsted, frúna sem speglar hlutskipti
Heddu svo vel. Mér þætti raunar mjög for-
vitnilegt sjá Brynhildi í hlutverki Heddu ein-
hvern daginn; þessi stelpulega fórnarfrú fer
henni ekkert sérstaklega vel. Mér hugnaðist
einnig lítt Eggert Þorleifsson í spjátrungs-
legu hlutverki Brakks lögmanns og fannst
straumurinn á milli hans og Heddu meira
skrítinn en spennandi. Eggert er í lófa lagið
að fá áhorfendur til að kíma en þyrfti að vera
talsvert ægilegri til að þjóna sýningunni.
Senuþjófur sýningarinnar er Harpa Arnar-
dóttir sem leikur þernuna sem líður um allt
eins og draugur – eina sýnilega ógnin við
framferði aðalpersónunnar er þernan sem
heyrir allt og sér.
Umgjörð sýningarinnar er býsna flott.
Búningar Filippíu Elísdóttur eru eftir-
minnilegir og vekja ótal hughrif. Leikmynd
Finns Arnar nýtist vel og nýtur sín líka.
Ég var sérlega hrifin af glerbúrinu sem
Halldór Örn Óskarsson ljósahönnuður
umbreytti meistaralega. Þýðing Bjarna
Jónssonar fannst mér afar forvitnileg og
það væri reglulega gaman ef hún kæmi út
á bók – þar er fróðlegur brunnur fyrir sam-
anburðarfræðinga framtíðarinnar. Pælum í
því. Tónlist Barða Jóhannssonar kórónar
síðan allt með ógnarþunga og dramatík.
Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri er þekkt
fyrir kröftugar og vogaðar sýningar en mér
finnst þessi missa ögn marks. Hún stendur
og fellur með aðalsöguhetjunni en „fallið
sjálft“ er einfaldlega ekki nógu hátt, hyldýp-
ið ótrúverðugt og því erfitt að heillast upp úr
skónum. Kristrún Heiða Hauksdóttir
Þannig
er Hedda
nútímans
lítt þjökuð af
stöðu sinni,
að öðru leyti
en því að
hún hefur
sjálf skapað
sér óbærilegt
fangelsi út úr
einskærum
leiðindum.
Hedda Gabler
eftir Henrik Ibsen
Leikstjóri: Kristín
Eysteinsdóttir
Þjóðleikhúsið
HELGARBLAÐ
Ókeypis alla föstudaga
Þóra Einarsdóttir sópran • Ágúst Ólafsson bassi/Pílatus
Andri Björn Róbertsson bassi/Jesús • Sigríður Ósk Kristjánsdóttir alt
Benedikt Kristjánsson tenór/guðspjallamaður
Mótettukór Hallgrímskirkju
Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag
Stjórnandi Hörður Áskelsson
J.S.Bach BWV 245
Listvinafélag Hallgrímskirkju - 29. starfsár
Miðasala í Hallgrímskirkju • Sími: 510 1000 • Miðaverð: 4.900 kr./3.900 kr.
Miðasala Hofi Akureyri • Sími: 450 1000 • Miðaverð: 3.900 kr.
www.menningarhus.is www.listvinafelag.is
Sunnudaginn 3. apríl 2011 kl. 17
Minningartónleikar um Áskel Jónsson
söngstjóra f. 5. apríl 1911.
Hallgrímskirkja
Reykjavík
Menningarhúsið Hof
Akureyri
Laugardaginn 2. apríl 2011 kl. 17
Föstudaginn 1. apríl 2011 kl. 20
Jóhannesarpassía
Vappaðu með mér Vala
Dagskrá til heiðurs Ásu Ketilsdóttur og sýning
á æskuteikningum hennar.
Fram koma auk Ásu: Rósa Þorsteinsdóttir,
Steindór Andersen, Bára Grímsdóttir,
börn úr Dalskóla og félagar úr
Kvæðamannafélaginu Iðunni.
Kynnir er Skúli Gautason.
Laugardaginn 19. mars kl. 14 – 17
Allir velkomnir!
Bland í poka
Menningarmiðstöðin Gerðuberg Gerðubergi 3-5 111 Reykjavík
Sími 575 7700 gerduberg@reykjavik.is www.gerduberg.is
Tónleikar Kristjönu Stefáns og Kjartans
Valdemarssonar. Miðaverð 2.000 kr.
Föstudaginn 18. mars kl. 20
Dægurperlur samtímans í jazzbúningi
PlötuHorn Dr. Gunna
Field recordings:
Music from the Ether
Úlfur Eldjárn
Auk þess að vera í
Apparat Organ Quartet
hefur Úlfur samið músík
fyrir leiksvið og sjónvarp,
m.a. í Hlemmavídeó.
Á þessari plötu er
tónlist sem kviknaði fyrst
í leiksýningunni Eterinn
og myndlistarsýningunni
Innan seilingar. Tónlistin
er fáanleg í stærra sam-
hengi í bókverkefninu
Manifestations (bók + CD +
DVD), en diskurinn einn og
sér stendur vel fyrir sínu. Í
tónlistinni mætast fornöld
og framtíð, kirkjuorgel
og vélmenni, klassík og
framúrstefna. Útkoman er
aðgengileg og ánægjuleg,
minnir stundum á dular-
fulla músík úr ítölskum
hryllingsmyndum og
náttúruundrið Moondog.
Flott stöff frá miklum
hæfileikamanni.
Ghosts
Just Another Snake Cult
Þórir Bogason er Just
Another Snake Cult, þótt
hann fái hjálp þegar mikið
liggur við. Fyrsta platan
hans var ein af þeim bestu
í fyrra, en þessi (sem fæst
bara á netinu) er safn
afgangslaga sem hann
tók upp heima hjá sér
á Skólavörðustíg. Þórir
er frábærlega efnilegur
(enda tilnefndur bjartasta
vonin) og á Ghosts leikur
hann sér með efnivið úr
dótakassa rokksögunnar.
Auk laga sem minna á
poppaða sýrunýbylgju
plötunnar hans, fáum
við lög sem t.d. minna
á Smile-tímabil Brians
Wilsons og gufupopp
Julees Cruise. Þetta er
gott nasl á meðan beðið er
eftir næstu „alvöru“ plötu
frá þessum spennandi
listamanni.
Happiness
Hurts
Tveir velsnyrtir Bretar eru
hljómsveitin Hurts og á
leiðinni aftur til Íslands.
Komu á síðastu Airwaves
en spila nú í Vodafone-
höllinni á sunnudaginn.
Hurts eru miklir eitís-bolt-
ar. Allra versta popptónlist
sögunnar var framleidd
á því tímabili og því ekki
við góðu að búast þegar
hermt er eftir þeim horror.
Tónlist Hurts er verulega
slepjuleg á köflum,Theo
Hutchcraft syngur væmnar
ballöður titrandi röddu
ofan á þunglyndislegar
hljóðgerflamottur Adams
Andersons – allt yfir-
hlaðið og dautt, Spandau
Ballet á hestasterum.
Skemmtilegra er bandið
í Duran-legu kraftpoppi
eins og smellinum Better
Than Love. Hurts eru mitt
á milli unglingapopps og
fulltíða rokks og svínvirka á
markhópinn.
lEikDóMur HEDDa GablEr
Snúið upp á stofudramað
Samleikur Kristbjargar Kjeld og Ilmar Kristjánsdóttur er frábær. Háskalítil
en forvitnileg sýning.