Fréttatíminn - 18.03.2011, Side 51
Á hljómgrunnur.is er að finna aðgengi-
legt yfirlit yfir tónlistarviðburði sem
eru fram undan. Rokk, djass, popp,
klassík og allt þar á milli.
Föstudagur 18. mars
Skuggamyndir frá Býsans og Borislav
Zgurovski
Salurinn, Kópavogi kl. 20
Einn fremsti harmoníuleikari Búlgaríu, Boris-
lav Zgurovski, verður gestur hljómsveitarinnar
Skuggamyndir frá Býsans á þessum einu
tónleikum. Aðgangur 2.000 kr.
A Band On Stage spilar ‘80
Café Rósenberg kl. 22
A Band on Stage hefur æft upp þema-pró-
gramm. Síðast var það Nick Cave en nú er það
níundi áratugur síðustu aldar sem er undir.
Aðgangur 1.000 kr.
Valdimar, Hljómsveitin Ég og Spacevestide
Sódóma Reykjavík kl. 22
Valdimar hafa verið að bæta hratt í aðdáenda-
hóp sinn undanfarið með vasklegri framgöngu
á tónleikum, vopnaðir lögum sem komu út í
september á hinni frábæru plötu, Undra-
landi. Hljómsveitin Ég kom rækilega á óvart
með nýjustu plötu sinni, Lúxus Upplifun, sem
kom út um svipað leyti og plata Valdimars.
Spacevestide sjá svo um að hita mannskapinn
upp, retro-rokk í anda The Doors.
Laugardagur 19. mars
Agent Fresco, Cliff Clavin og IKEA Satan
Sódóma Reykjavík kl. 16 og 22
Tvípunktur er haldinn einn laugardag í
hverjum mánuði og er fyrirkomulagið þannig
að haldnir eru tvennir tónleikar sama daginn.
Fyrri tónleikarnir eru áfengislaus skemmtun
sem fer fram kl. 16 og eru þeir opnir öllum
aldurshópum. Síðari tónleikarnir fara fram
um kvöldið en þeir eru ætlaðir fyrir 18 ára
og eldri.
Tribute-tónleikar Bjössa Biogen
Tjarnarbíó kl. 18
Hópur vina Bjössa setur saman tónleika með
rafrænni tónlist, videólist og alls kyns uppá-
komum tengdum tónum, víddum og litum.
Allt það besta úr íslenskri raftónlist á sex tíma
tónleikum. Þeir sem koma fram eru: Andre &
Árni Vector, Yagya, Stereo Hypnosis, Skurken,
Bix, Futuregrapher, Quadruplos, Ruxpin,
Agzilla, Tanya & Marlon, Frank Murder, Orang
Volante, Tonik, Thor, Mummi (Video Artist)
Allir gefa vinnu sína.
A Band On Stage spilar ‘80
Café Rósenberg kl. 22
Sama dagskrá og á föstudagskvöld. Sjá ofar.
sunnudagur 20. mars
Á klassískum nótum
Norræna húsið kl. 15.15
Á tónleikunum leikur færeyski píanóleikarinn
Jóhannes Andreasen ásamt fjórum blásurum
úr blásaraoktettinum Hnúkaþey, þeim Eydísi
Franzdóttur óbóleikara, Ármanni Helgasyni
klarínettuleikara, Önnu Sigurbjörnsdóttur
hornleikara og Kristínu Mjöll Jakobsdóttur
fagottleikara. Á efnisskrá eru þrjár skærustu
perlur tónbókmenntanna fyrir píanó og
blásara. Aðgangur 1.500 kr., 750 kr. náms-
menn og öryrkja
Söngsveitin Fílharmónía
Fella- og Hólakirkja kl. 20
Söngsveitin Fílharmónía flytur, ásamt Bach-
sveitinni í Skálholti, í fyrsta sinn á Íslandi
glæsilegt en lítt þekkt stórverk, ‘Missa votiva’
eftir barokktónskáldið Jan Dismas ZELENKA.