Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.04.2013, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 12.04.2013, Blaðsíða 12
6,3% Fastir vextir Óverðtryggðir innlánsvextir m.v. 36 mánaða bindingu 2,5% Fastir vextir Verðtryggðir innlánsvextir m.v. 36 mánaða bindingu Nýjung í landslaginu Við bjóðum fjölbreytt úrval innláns­ reikninga með föstum vöxtum. Hafðu samband og kynntu þér málið. Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is Óverðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum. Verðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum. 3 mánuðir 4,8% 6 mánuðir 5,0% 12 mánuðir 5,2% 24 mánuðir 5,4% 36 mánuðir 6,3% 60 mánuðir 6,4% 36 mánuðir 2,5% 60 mánuðir 2,75%  GeðheilbriGðismál Úrræði skortir fyrir fanGa með lanGvinna GeðsjÚkdóma Veikustu föngunum er ekki sinnt Engin geðheilbrigðisáætlun er til staðar fyrir fanga á Íslandi þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um að hana skorti sárlega. Sakhæfir fangar með geðræn vandamál verða útundan í kerfinu. Tals- maður fanga á Litla Hrauni segir ólíðandi að fangar með alvarlega geðsjúkdóma séu vistaðir í fangelsi. f angi á Litla Hrauni reyndi að skera sig á háls nýverið. Flytja þurfti fangann á sjúkra- hús til að sauma skurðinn en hann var það grunnur að fanginn var ekki í lífshættu. Heimildamaður Frétta- tímans innan veggja fangelsisins segir að um sé að ræða einn af fjölmörgum föngum sem eiga við geðræn vandamál að stríða en fá takmarkaða geðheilbrigðisþjónustu vegna þess að þeir eru vistaðir í fangelsi en ekki á geðdeild. Hvorki fangelsismálastjóri né forstöðu- maður Litla Hrauns vildu tjá sig um málið. Aðeins er rúm vika síðan fangi á Litla Hrauni, Þorvarður Davíð Ólafs- son, svipti sig lífi. Þorvarður Davíð var dæmdur til fjórtán ára fangelsis- vistar fyrir tilraun til manndráps. Hann var um tíma vistaður á geð- deild en var fluttur aftur í fangelsið þó öllum væri ljóst að hann ætti við alvarleg geðræn vandamál að etja. Jón Ólafsson, formaður Afstöðu – félags fanga á Litla Hrauni, segir geðheilbrigðisþjónustu í fangelsinu fyrir neðan allar hellur. „Okkur finnst vanta úrræði. Það á ekki að vista fanga hér ef þeir eiga við alvarleg geðræn vandamál að etja,“ segir hann. Spurður hvernig veik- ustu föngunum sé sinnt, þeim sem mesta andlega aðstoð þurfa, er svar Jóns einfalt: „Þeim er ekki sinnt.“ Hann segir að ef fangar samþykkja að taka geðlyf fái þeir lyfin gjarnan í forðasprautu. Ekki sé hins vegar Formaður Félags fanga á Litla Hrauni segir að föngum með alvarleg geðræn vandamál sé ekki sinnt sem skyldi. Ljósmynd/Hari hægt að þvinga meðferð upp á fanga. „Ekki nema þeir séu sviptir sjálfræði. Það auðvitað þekkist líka. En yfirleitt, ef menn eru taldir sakhæfir þá hafa þeir eitthvað um það að segja hvort þeir fá meðferð,“segir Jón. Honum finnst fangelsi ekki rétti staðurinn fyrir þá fanga sem eru með alvarlega geðsjúkdóma. „Þeir þurfa miklu meiri aðstoð en fæst hér,“ segir hann. Forstöðumaður Litla Hrauns, Margrét Frí- mannsdóttir, segir umdeilanlegt hvað sé nægjanleg geðheilbrigð- isþjónusta. Hún bendir hins vegar á að fangelsis- málayfirvöld hafi reynt að fá aukið fjármagn til að bæta hana. Aldrei þurfi fangar þó að bíða lengur en tvær vikur eft- ir viðtali við geðlækni. Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala, viðurkennir að sýn geð- sviðs á vandann sé önn- ur en sýn fangelsisyfir- valda. „Okkar afstaða er sú að ekki sé eðlilegt og ekki lögum sam- kvæmt að fangi afpláni dóm á sjúkrastofnun,“ segir hann. Fangar hafa þó eins og aðrir rétt á því að leggjast inn á geðdeildir til meðferðar en þeir eru útskrifaðir aftur í fangelsi að henni lokinni. Í ljósi þess að nýtt fangelsi rís brátt á Hólmsheiði finnst Páli blasa við að þar verði byggð sérstök sjúkra- deild sem heyri undir Fangelsismálastofnun. Þar gætu sakhæfir fangar með langtíma geð- og persónuvanda verið vistaðir og fengið stöðuga geðheilbrigðis- þjónustu. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Sjö sjálfsvíg Ekki er haldið utan um hversu oft fangar þurfa að leggjast inn á geðdeildir á meðan á afplánun stendur, hvorki hjá Landspítal- anum né Fangelsismálastofnun. Hjá fangelsismálayfirvöldum fékkst hins vegar uppgefið að sjö fangar hafa framið sjálfsvíg innan veggja íslenskra fangelsa á síðustu tuttugu árum. Á síðasta ári voru að jafnaði 2 fangar vistaðir á sjúkra- stofnun eða annarri stofnun á degi hverjum. Þar undir eru hjúkrunarheimili fyrir aldraða, einstaka meðferðarheimili og venjulegar sjúkrastofnanir. Geðlæknir í hlutastarfi Einn geðlæknir er í 20% starfi á Litla Hrauni og heimsækir hann fangelsið tvisvar í mánuði. Bið eftir viðtali við geðlækni er því mest tvær vikur fyrir fanga þar. Auk þess starfa hjá fangelsinu fleiri sérfræðingar, svo sem sálfræðingar og geðhjúkrunar- fræðingur. Samtökin Geðhjálp hafa lengi gagnrýnt aðbúnað fanga með geðræn vandamál. Nú í haust komu fulltrúar Geðhjálpar á fund allsherjarnefndar Alþingis og lögðu til að gerð verði geð- heilbrigðisáætlun fyrir fanga á Íslandi. Ekkert hefur verið aðhafst síðan. Þeim er ekki sinnt. 12 fréttir Helgin 12.–14. apríl 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.