Fréttatíminn - 12.04.2013, Blaðsíða 55
Skákakademían æSiSpennandi keppni álfhólSSkóla og RimaSkóla
Háspenna í Grafarvogi
BRidge aðalSveitakeppni BRidgefélagS ReykjavíkuR
Norskur strákur nær
stórmeistaraáfanga
Þrettán ára gutti, Aryan Tari,
var hetjan á Opna norska
meistaramótinu, sem lauk
á dögunum. Aryan fékk 6
vinninga í 9 skákum og náði
áfanga að stórmeistaratitli,
enda jafngilti frammistaða
hans 2585 skákstigum. Norð-
maðurinn ungi hafði „aðeins“
2293 stig fyrir mótið og var
ekki einu sinni orðinn FIDE-
meistari. Hann tefldi við
fimm stórmeistara á mótinu
og skellti tveimur, Pap frá
Serbíu og Jon Ludvig Ham-
mer, næstbesta skákmanni
Noregs. Eini Norðmaðurinn
sem náð hefur stórmeistaraá-
fanga svo ungur er sjálfur
Magnus Carlsen!
Foreldrar hins unga snill-
ings eru frá Íran en hafa
búið í Noregi um árabil. Rík
skákhefð er í Íran og sumir
eru jafnvel þeirrar skoðunar
að skákin eigi uppruna sinn
í Persíu. Svo mikið er víst
að orðasambandið „skák
og mát“ er komið úr pers-
nesku, „Shah Mat“ sem þýðir
bókstaflega: Kóngurinn er
bjargarlaus!
Mýtan um laufakónginn
Margar mýtur eru til í
bridge og ein þeirra kom
við sögu í spili dagsins í
síðustu umferð aðalsveita-
keppninnar. Suður spilar
3N og þarf að fá 6 slagi á
lauf til að vinna spilið. Út-
spil spaði.
♠1087
♥D2
♦ÁD
♣ÁS10762
♠K5
♥Á1063
♦G62
♣8543
♠ G93
♥ 975
♦ K10975
♣ G9
♠ ÁD642
♥ KG84
♦ 843
♣ K
N
S
V A
Besta leiðin er að spila laufi
á drottninguna. Mýtan
segir að lauf kóngurinn
sé oftar blankur en aðrir
kóngar. Þrír sagnhafar
stóðu frammi fyrir þessu
vandamáli, einn spilaði
laufi á ásinn og tók kóng-
inn, hinir tveir svínuðu og
fóru niður. Hvort mýtan sé
sönn eður ei veit enginn,
en þetta spil afsannar ekki
kenninguna!
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARD. 11 - 16
SVEFNSÓFAR
BREYTIST Í RÚM
Á AUGABRAGÐI
ÞYKK OG GÓÐ
SPRINGDÝNA
SV EFNBREIDD
140X200 CM
BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI
EXTRA ÞYKK OG GÓÐ SPRINGDÝNA
SV EFNBREIDD 140X200 CM
RÚMFATAGEYMS LA Í SÖKK LI
BREYTIST Í RÚM
Á AUGABRAGÐI
SPRINGDÝNA
SV EFNBREIDD
120X200 CM
RECAST
UNFURLSUPREME Deluxe
TILBOÐ
KR. 129.900
TILBOÐ
KR. 149.900
KR. 119.900
skák og bridge 55Helgin 5.-7. apríl 2013
Þekktur grínisti á leið til landsins Jeff Dunham skemmtir
í Laugardalshöll í haust.
Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Bandaríski grínistinn Jeff Dunham er á leið til
landsins og skemmtir Íslendingum í Laugar-
dalshöll hinn 20. september næstkomandi.
Sýningin er hluti af heimstúrnum „Disorderly
Conduct“ sem gæti útlagst á íslensku:
„Óspektir á almannafæri“.
Það er Sena sem stendur að komu Jeff Dun-
ham til Íslands. Í tilkynningu frá fyrirtækinu
segir að Dunham sé vinsælasti grínisti
Bandaríkjanna samkvæmt Time Magazine og
einn áhrifamesti skemmtikraftur á Vestur-
löndum að mati Forbes. Dunham á eldheita
aðdáenda um allan heim og efni frá honum
hefur notið gífurlegra vinsælda, hvort sem
um er að ræða upptökur á YouTube eða sölu
á uppistandi og sjónvarpsþáttum hans á DVD
diskum.
Þó er ekki hægt að eigna Dunham einum
þessa velgengni því að á sviði nýtur hann
tryggrar aðstoðar fylgdarliðs, sem eru
brúður úr smiðju hans sjálfs. Persónur á borð
við Walter, Bubba J, Jose Jalapeño, AJ, Jeff
litla og ekki síst Achmed the Dead Terrorist,
hæðast að og snúa út úr fyrir Dunham við
hvert tækifæri.
Jeff Dunham hefur notið það mikilla vinsælda
að hann kemur jafnan fram í stórum tón-
leikasölum. Hann hefur troðið upp í þremur
heimsálfum síðustu ár og var tekjuhæsti
grínisti heims árin 2009 og 2010.
Um 2.500 miðar verða í boði og kunnir
íslenskir grínistar munu hita upp fyrir
Dunham. Fyrirkomulag miðasölu verður
auglýst innan skamms.