Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.04.2013, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 12.04.2013, Blaðsíða 26
með því að við lágum öll í grasinu og hlóg- um og hlógum. Þetta var síðasti brandarinn hans Erics.“ Átti ekkert nema barnavagn frá Tony Scott Eric og Björg höfðu verið með sameigin- legan bankareikning en illindin og ágirndin í öðrum aðstandendum hans urðu til þess að hún sagðist ekki kæra sig um neitt og bauð þeim að bítast um það sem hann lét eftir sig. „Ég kærði mig ekki um neitt vegna þess að þetta var eitthvað svo ógeðslegt. Hann var dáinn og allir voru að heimta eitthvað og reyna að komast með klærnar í eitthvað,“ segir Björg sem sneri aftur til Noregs slipp og snauð. „Þetta var eiginlega djók vegna þess að ég fór þarna úr hálfgerðu Hollywood-lífi alls- laus til Noregs. Ég var bara með barnavagn- inn sem leikstjórinn Tony Scott hafði gefið okkur, eina tösku og grafíkverkin mín. Ekk- ert annað. Nema tvö málverk eftir Eric sem enginn annar vildi. Eðlilega þar sem annað þeirra var af mér nakinni og hitt af Tolla á ströndinni. Þetta voru myndir sem hinir kærðu sig ekki um,“ segir Björg og hlær. „Ég var þarna með stóru brjóstin mín en þetta var málað áður en Tolli borðaði þau.“ Peningalaus og allslaus þurfti Björg svo að byrja nýtt líf frá grunni. „Ég hafði verið með sýningar í Frakklandi og flottu galleríi í Barcelona en samt vissi eiginlega enginn í Noregi hver ég var.“ Björg byrjaði því á að ganga á milli gall- ería og kynna verk sín þar. „Ég labbaði með barnið í vagninum með myndirnar mínar og var örugglega svolítið eins og litla stúlkan með eldspýturnar. „Ég var svo heppinn að öll galleríin vildu taka verkin mín inn. Þetta var meira að segja þannig að bara á meðan ég var að sýna listaverkasölunum myndirnar kom fólk aðvífandi og vildi endilega kaupa þau á staðnum. Þannig að þetta gerðist mjög hratt og verkin byrjuðu strax að seljast. Ég fór svo að hafa sýningar og gat allt í einu borgað leiguna og keypt bleyjur. Þetta gekk svo alltaf betur og betur og alltaf fleiri og fleiri gallerí í Noregi sem sóttust eftir að fá verk eftir mig til sölu.“ Á við 2000 manns Sjö og hálfu ári eftir að Björg kom aftur heim til Noregs er hún með fimmtán manns í vinnu og er í raun orðin stórfyrirtæki. Hún segist ekki anna eftirspurninni eftir grafík- verkunum í Noregi, selji meira en hún skapi. Hún hannar einnig skartgripi, föt og töskur. Skrifar bækur og í tímarit og heldur vinsæla hvatningarfyrirlestra og stórfyrirtæki hafa gert mikið af því að fá hana til þess að messa yfir starfsfólki sínu. „Þetta er alveg ótrúlegt. Ég er með eigið gallerí með veitingastað og fólk kemur þangað frá öllum hlutum Noregs. Ég hef verið með sýningar í Osaka í Japan, í New York, Seattle og London. Það er ótrúlegt hvað þetta hefur gengið hratt. Ég er líka rosalega heppin með að vera komin með reyndan framkvæmdastjóra yfir fyrirtækinu. Hann er fyrrverandi bankastjóri og hefur verið með 2000 undirmenn en núna er hann með mig og ég er á við 2000 manns þannig að hann hefur meira en nóg að gera. Ég er með rosa- lega duglegt fólk í vinnu hjá mér og hef ekki heyrt um aðra listakonu sem er með fimmtán starfsmenn. Saga mín er ótrúleg, ævintýri líkust en ég hef verið voðalega heppin og nýt þess að eiga æðislega foreldra. Og ævintýrið heldur bara áfram.“ Konur eru sérstaklega hrifnar af verkum Bjargar og því sem hún hefur fram að færa og henni telst til að átján aðdáendaklúbbar í landinu séu tileinkaðir sér og hún segir konur kaupa allt sem frá henni kemur. „Ég er umkring af fallegum konum frá 25 ára til fertugs. Stundum vildi ég að ég væri karl- maður,“ segir hún og hlær. „En þá hefði ég engan tíma fyrir listina en það er aldrei dauð stund hjá mér.“ Heimshornaflakkarninn að vestan Björg hefur þvælst um allan heim en finnst hún aldrei vera heima nema þegar hún kemur til Íslands. Þegar hún var átta ára fékk faðir hennar vinnu í Malasíu og þar bjó hún í þrjú ár auk þess sem fjölskyldan ferðaðist þar fyrir utan út um allan heim. Þegar hún var sautján ára bjó hún ein í ár í Mexíkó þar sem hún kom sér fyrir hjá índíánafjölskyldu og á námsárunum þvældist hún um Evrópu. „Ég hef alltaf verið að flytja og verið á flakki en ég finn það í genunum mínum og því hvernig ég hugsa að ég er Íslendingur og þegar ég kem hingað finnst mér ég vera komin heim. Rætur mínar hér eru sterkar. Ég er stolt af því að vera Ísfirðingur og veit ekkert betra en að finna íslenska vinda leika um mig. Björg segir þrána eftir betri heimi ríkan þátt í listsköpun sinni og hún er mjög upp- tekin af því að láta gott af sér leiða. „Ég var að koma frá Mexíkó þar sem ég setti upp vinnustofu fyrir fátækar indíánakonur sem þurfa að vinna fjórtán tíma á dag og fá eigin- lega ekkert borgað. Börnin þeirra eru ein og eftirlitslaus á meðan, verða götubörn og lenda í dópi. Ég bjó innan um þessar konur í Mexíkó og kom saumastofunni á lagg- irnar til þess að þær geti haft börnin hjá sér á meðan þær vinna og þau geti notað tímann til að læra. Með þessu tekst mér kannski að hjálpa hundrað manneskjum en það er allavega betra en ekkert,“ segir Björg sem hefur einnig komið að uppbyggingu skóla í Gambíu þar sem hún kom einnig upp sauma- stofu sem hún segir að hafi gengið vel. „Ég er með fullt af svona verkefnum í gangi og það er einhvern veginn ekkert svo mikið sem maður þarf að gera til þess að geta hjálpað mörgum.“ Mikilvægt að lifa í núinu „Ég er með list minni að reyna að hvetja fólk, kannski aðallega konur þótt körlum veiti ekkert af hvatningu heldur, til að þora að lifa, þora að elska og taka þátt í lífinu með því að vera virkt í núinu. Við eigum ekki að dvelja í fortíðinni eða hafa áhyggjur af framtíðinni. Ég lærði það þegar Eric dó að lífið er svo stutt og þú veist ekkert hversu lengi þú átt eftir að hafa fólkið sem þér þykir vænt um hjá þér. Tíminn er svo rosalega dýrmætur. Ég set þessa hugsun í myndirnar mínar. Ekki búa til vandamál og ekki láta vandamálin eiga þig. Ef þú átt við vandamál að stríða þá leysirðu það og ef þú getur ekki leyst það þá er ekkert vandamál,“ segir hún og brosir. Þetta er einnig grunnhugsunin í fyrirlestr- um Bjargar og hún vill flytja þennan boðskap hingað heim og stefnir á að gefa út nokkrar bóka sinna á Íslandi. „Mér finnst íslendingar besta fólk í heimi. Og ég meina það! Sama á hverju gengur halda Íslendingar alltaf áfram, kýla á hlutina og treysta á að þeir reddist. Ég er svo þakklát fyrir allt sem mamma og pabbi hafa kennt mér. Að gefast aldrei upp og ég vil gefa eitt- hvað til baka og koma boðskap mínum á framfæri hérna enda veit ég að ég hef breytt lífi fólks með myndunum mínum. Bækurnar mínar fjalla mikið um fyrirgefninguna og mikilvægi þess að geta fyrirgefið og vera þakklátur fyrir hvern einasta dag.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is SÓLARDAGAR Í PRO OPTIK! KRINGLUNNI • SPÖNGINNI • SKEIFUNNI á 25% afslætti og 26 viðtal Helgin 12.–14. apríl 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.