Fréttatíminn - 12.04.2013, Blaðsíða 14
Barnavernd vímuefni hafa skaðleg áhrif á Börn í móðurkviði
Sextíu tilkynningar um ófædd börn í hættu
B arnaverndaryfirvöld-um bárust tæplega sextíu tilkynningar
á síðasta ári þar sem talið
var að heilsu eða lífi ófædds
barns væri stefnt í hættu. Í
flestum tilfellum er um að
ræða verðandi mæður með
fíknivanda. „Það eru alveg
dæmi um að þær séu í dag-
legri neyslu þegar þær koma
í fyrsta viðtalið til okkar,“
segir Valgerður Lísa Sigurð-
ardóttir, ljósmóðir á Land-
spítalanum. Hún er fulltrúi
kvennadeildar í sérstöku
teymi sem fylgir eftir verð-
andi mæðrum sem eiga sögu
um neyslu vímuefna eða eiga
við geðræn vandamál að etja.
Í flestum tilvikum hætta konur neyslu
eftir að þær komast að því að þær eru
óléttar. „Þær þurfa mikinn stuðning og
mikla hjálp. En það er ánægjulegt hvað
mörgum gengur vel,“ segir Valgerður.
Ef verðandi móðir heldur áfram í
virkri neyslu fer hún í eftirlit á mæðra-
vernd Landspítalans þar sem um
áhættumeðgöngu er að ræða. Þar fá
verðandi foreldrar stuðning og hvatn-
ingu til að breyta um lífsstíl. Það eru
gömul sannindi og ný að neysla vímu-
efna á meðgöngu er skaðleg barninu og
fer áfengi þar fremst í flokki. Alkóhól
veldur mestum fósturskaða þar sem það
fer í alla vefi líkamans og sama magn
mælist í blóði móður og barns. Börn
mæðra í neyslu eru líklegri til að fæðast
fyrir tímann, hafa minni fæðingarþyngd
og meiri líkur eru á þroskafrávikum.
Eftirfylgni í mæðraverndinni
felur einnig í sér vímuefnaleit
í þvagi.
Síðustu árin hafa um þrjá-
tíu barnshafandi konur árlega
verið í eftirliti á Landspítal-
anum vegna vímuefnaneyslu
allt að ár aftur í tímann. „Við
þeim blasa stór verkefni, að
verða móðir og að glíma við
fíknisjúkdóminn,“ segir hún.
Sumar þeirra fara í fíkniefna-
meðferð á meðgöngunni, ým-
ist í innlögn eða dagmeðferð.
Valgerður segir dæmi
þess að nýfædd börn sýni
fráhvarfseinkenni eftir
fæðingu. Þannig eru dæmi
um að grunur leiki á vímu-
efnaneyslu móður skömmu
fyrir fæðingu hjá konum sem ekki hefur
verið vitað að væru í neyslu.
Samkvæmt barnaverndarlögum er
skylt að tilkynna til barnavendaryfir-
valda ef grunur leikur á að barni, einnig
barni sem er enn í móðurkviði, sé
stofnað í hættu. Þannig þurfa ljósmæð-
ur sem vinna með verðandi mæðrum í
neyslu að tilkynna það. „Við reynum að
gera þetta í samráði við foreldrana, þeir
vita þá af tilkynningunni og fá að lesa
það yfir ef þeir vilja,“ segir Valgerður.
Því má ætla að stærsti hluti tilkynninga
um að heilsu eða lífi ófædds barns sé
stofnað í hættu berist frá heilbrigðis-
stofnunum.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Auknar líkur eru á þroskafrávikum hjá börnum
mæðra sem neyta vímuefna á meðgöngu.
Flestar konur hætta notkun vímuefna þegar þær komast að því að þær eru barnshafandi.
Hjá öðrum er fíknin öðru yfirsterkari, þær þurfa gríðarlegt aðhald og jafnvel er vikulega gerð
vímuefnaleit í þvagi þeirra til að minnka líkur á að barnið verði fyrir skaða.
Þær þurfa mik-
inn stuðning
og mikla hjálp.
Heilsa eða líf ófædds barns í hættu
Tilkynningar til barnaverndaryfirvalda um allt land
Ár Fjöldi tilkynninga
2011 75
2012 56
Tilkynningar til Barnaverndar Reykjavíkur
Ár Fjöldi tilkynninga
2011 40
2012 32
Valgerður Lísa
Sigurðardóttir ljós-
móðir hefur síðustu
sex ár fylgt eftir
óléttum konum sem
hafa verið í vímuefna-
neyslu. Yfirleitt eru
þetta ungar konur.
Ljósmynd/Hari
Velferð
heimilanna
Sanngjörn
leiðrétting
skulda
Heilbrigði
og velferð
í forgangi
Samfylkingin
Verið velkomin!
Frambjóðendur og þingmenn
Samfylkingarinnar í Reykjavík verða
í kosningamiðstöðinni Laugavegi
18b, frá kl. 13 til 16 á morgun,
laugardag, og ræða við kjósendur
um stefnumálin í kosningabaráttunni.
Veitingar að hætti hússins
bakaðar kjúklingabringur
Prófaðu bökuðu kjúklingabringurnar, fylltar með
ferskum kryddjurtum og rjómaosti. Gottimatinn.is
14 fréttir Helgin 12.–14. apríl 2013