Fréttatíminn - 12.04.2013, Qupperneq 18
S
Skoðanakannanir fyrir alþingiskosn-
ingarnar eftir rúmar tvær vikur sýna
samfélag í upplausn. Stjórnmálaleg festa
er ekki fyrir hendi. Bylgjuhreyfingar
efnahagshrunsins árið 2008 eru fráleitt
horfnar. Þær höfðu mikil áhrif þegar
kosið var til þings árið 2009 og munu,
miðað við þær kannanir sem birtar
hafa verið að undanförnu, ekki síður
hafa það nú. Hins sama gætti í
borgarstjórnarkosningunum í
Reykjavík árið 2010 þegar stór
hluti borgarbúa hallaði sér að
framboði Besta flokksins.
Mikil endurnýjun varð á
alþingi árið 2009. Það kjörtíma-
bil sem nú er að renna sitt skeið
hefur einkennst af hörðum
átökum milli stjórnar og stjórn-
arandstöðu en ekki síður innan
stjórnarflokkanna sjálfra. Það
veikti ríkisstjórnina verulega og
undanfarin misseri hefur hún í raun ver-
ið minnihlutastjórn sem átti í stöðugum
erfiðleikum með að koma burðarmálum
sínum í gegn.
Fari svo sem horfir verður endur-
nýjun á þingi ekki minni en í síðustu
kosningum. Það er bæði kostur og galli
en ekki er eftirsóknarvert að hefja nýtt
kjörtímabil upplausnar og átaka og á
alþingi. Mikil þörf er á samstæðri ríkis-
stjórn að kosningum loknum, ríkisstjórn
sem býr svo um hnúta að athafnalíf nái
að blómstra og aukin fjárfesting leiði til
meiri verðmætasköpunar og hagvaxtar.
Slíku fylgir aukin atvinna og betri hagur
almennings sem er undirstaða velferðar
heimilanna.
Allar skoðanakannanir að undanförnu
sýna að miklar hreyfingar eru á fylgi
stjórnmálaflokkanna. Athyglisverðust
er fylgisaukning Framsóknarflokksins
og á sama tíma fylgistap Sjálfstæðis-
flokksins. Þessar sveiflur milli stjórnar-
andstöðuflokkanna eru eftirtektarverð-
astar nú síðustu vikur fyrir kosningar
en skoðanakannanir hafa lengi sýnt
fylgistap stjórnarflokkanna tveggja,
Samfylkingarinnar og Vinstri grænna,
sigurvegaranna í síðustu kosningum. Þá
náði Samfylkingin því að verða stærri
en Sjálfstæðisflokkurinn og flokkarnir
tveir, Samfylkingin og VG, gátu í fyrsta
sinn myndað tveggja flokka vinstri-
stjórn. Fari nú sem skoðanakannanir
sýna, að Framsóknarflokkurinn verði
stærri en Sjálfstæðisflokkurinn, eru
það mikil tíðindi. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur verið burðarflokkur íslenskra
stjórnmála áratugum saman. Það væri
því mikið áfall fyrir forystu hans ef
hann tapaði þessari stöðu sinni annað
kjörtímabilið í röð. Fylgishrun flokks-
ins, miðað við kannanir, hefur orðið
á skömmum tíma, en lengst af á því
kjörtímabili sem nú er að ljúka mældu
kannanir Sjálfstæðisflokkinn stærstan
flokka. Á síðustu vikum virðist Sjálf-
stæðisflokknum hins vegar hafa mis-
tekist að ná til kjósenda. Framsóknar-
flokkurinn hefur á sama tíma náð þeirri
forystu að kosningabaráttan snýst meira
og minna um stefnumál hans. Forystu-
menn annarra flokka hafa, hvort sem
þeim líkar betur eða verr, orðið að máta
sig við stefnu Framsóknarflokksins.
Vika er langur tími í pólitík, hvað þá
tvær vikur. Lokasprettur kosningabar-
áttunnar er eftir. Fari hins vegar eins nú
mælist, að Framsóknarflokkurinn vinni
stórsigur, er það um leið krafa kjósenda
að formaður hans myndi ríkisstjórn.
Mikil ábyrgð verður þá lögð á hans
herðar. Miðað við stöðuna nú getur Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson myndað
tveggja flokka stjórn hvort heldur er til
hægri eða vinstri, annars vegar með
Sjálfstæðisflokknum og hins vegar Sam-
fylkingunni. Án aðildar Framsóknar-
flokksins að ríkisstjórn, miðað við
stöðuna nú, þyrfti hins vegar að minnsta
kosti fjórir flokkar að mynda stjórn.
Framsóknarflokkurinn hefur gert
það að helsta stefnumáli sínu að afnema
verðtryggingu og leiðrétta „stökk-
breytt“ húsnæðislán, eins og það er
orðað í slagorðum. Þar er talsverðu
lofað, jafnvel svo að ýmsir hafa gagn-
rýnt harkalega og bent á að þau loforð
kunni að reynast dýr – og jafnvel svo að
fullkomlega ábyrgðarlaust sé að sjá ekki
í gegnum kosningaloforð flokksins um
„almenna skuldaleiðréttingu“ húsnæðis-
lána, enda taki hún ekki á vanda þeirra
sem verst standa – og að tillögur Fram-
sóknarflokksins muni, eins og sagði
í leiðara Viðskiptablaðsins í gær, ýta
undir skuldasöfnun ríkissjóðs og auka
verðbólgu.
Stjórnmálaleg festa er ekki fyrir hendi
Samfélag í upplausn
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar:
Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri:
Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson
valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af
Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Hann mun aldrei gleym’ henni
Thatcher var einn merkasti stjór-
nmálamaður 20. aldar. Ég hitti hana
nokkrum sinnum, og er hún mér mjög
minnisstæð.
Margaret Thatcher, fyrrverandi for
sætis ráðherra Bretlands, kvaddi þennan
heim í vikunni. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor
og mikill aðdáandi, minntist hennar.
Margskilinn
Sumir virðast líta á sam-
band fólks við stjór-
nmálaflokka líkt og
litið var á hjónaband í
gamla daga, að það sé
dyggð að halda tryggð
við stjórnmálaflokk alveg
sama hvað. Fyndið!
Flokkaflakkarinn Bjarni
Harðarson, sem nú er í Regnboganum,
líkti flokkshollustu við hjónaband á
beinni línu dv.is.
Ekki er allt einelti einelti
Það er hinsvegar skylda mín sem tals-
maður Regnbogabarna og baráttumað-
ur fyrir þessu málefni að stíga fram
og reyna að stoppa það að orðið og
málefnið sé skaðað með þessum hætti.
Stefán Karl Stefánsson, leikari og
stofnandi Regnbogabarna, snupraði
alþingismanninn Kristján Þór Júlíusson
fyrir að barma sér undan að Bjarni
Benediktsson væri lagður í einelti og
gengisfella þannig orðið „einelti.“
Enda er pabbi hans penni
Einhver spurði mig hvort
þetta væri „ripoff“, en
ég er nú ekkert á því –
ég hef engan einkarétt
á Óla prik.
Dönsk spýtukarlamynd
vann til verðlauna í
Danmörku en myndin
þótti minna mikið á
minimalískar grínteikningar
Hugleiks Dagssonar. Hann telur sig þó
ekki eiga fyrirbærið.
Eru verk þín verk?
Í alvöru Golli, ef ekki má vinna með
fréttamyndir þá er nú fokið í flest, eða
líturðu á myndina sem „verk“?
Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason
í deilu við ljósmyndarann Golla um
notkun þess síðarnefnda á frétta ljós
mynd. Hallgrímur lifir á því að skapa
verk og virðist vera með skilgreininguna
á hreinu.
Vikan Sem Var
Það er óþarfi að fjarlægja
tappann áður en farið er
með fernurnar í endur-
vinnsluna. Þeir eru endur-
vinnanlegir rétt eins og
umbúðirnar sjálfar.
Leyfum
tappanum
að fljóta með!
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
Við Viljum Vita
möguleg innganga Íslands Í
eVrópusambandið snýst um hagsmuni
almennings – um lÍfskjör – um framtÍð.
klárum Viðræðurnar og sjáum
samninginn.
jaisland.is
18 viðhorf Helgin 12.-14. apríl 2013