Fréttatíminn - 12.04.2013, Side 22
Í byrjun þessa árs voru liðin 60 ár frá upphafi reglubundins áætlunarflugs milli Íslands
og Bandaríkjanna og síðar á árinu
verða 65 ár liðin frá fyrsta áætl
unarfluginu vestur um haf.
Hinn 26. ágúst 1948 námu Loft
leiðir land í Vesturheimi, þegar
Geysir, Skymastervél félagsins,
lenti í New York – og á nýársdag
1953 kynntu Loftleiðir ný og lág
flugfargjöld á flugleiðinni yfir
Atlantshaf. Þetta var upphafið að
miklu ævintýri.
Á fáum árum urðu Loftleiðir
undir stjórn Alfreðs Elíassonar og
félaga eitt þekktasta flugfélagið á flugleiðinni
yfir Atlantshaf. „We are slower but lower,“
auglýstu Loftleiðir og buðu upp á ódýrari far
gjöld en áður höfðu þekkst á þessari flugleið
með eldri og hæggengari flugvélakosti en
stærri flugfélög notuðu.
Óhætt er að segja að þessi valkostur hafi
slegið í gegn. Næstu tvo áratugi jókst hlut
deild Loftleiða í Atlantshafsfluginu jafnt og
þétt uns hún var orðin 3,8% og Loftleiðir voru
orðnar stærsta fyrirtæki landsins með 1.300
manns í vinnu, þar af um 600 víða um heim.
Saga Loftleiða er stóra ævintýrið í íslenskri
flugsögu – og hún vekur jafnan mikinn áhuga
og aðdáun útlendinga. Ef allt væri með felldu
ætti Loftleiðaævintýrið að vera djásnið í sögu
Icelandair. Ekkert í sögu fyrirtækisins er
betur fallið til að auka hróður þess á alþjóða
vettvangi en ævintýrið um Loftleiðir.
Eftir sameiningu íslensku flugfélaganna
1973 hefur af hálfu Icelandair (áður Flug
leiða) hins vegar markvisst verið reynt að
gera sem minnst úr afreki Loftleiðamanna,
svo sem glöggt má sjá í þeim bókum og sjón
varpsmyndum sem Icelandair hefur fjár
magnað.
Í Fréttatímanum á liðnu hausti (28.–30.
september 2012) var dregin fram
í dagsljósið skýrsla, sem stjórn
endur Icelandair höfðu látið
vinna um Atlantshafsflugið, eftir
Ólaf Rastrick sagnfræðing. Í
skýrslunni er því haldið fram að
breytingar á leiðakerfi Icelandair
í Atlantshafsfluginu eftir 1987
hafi ekki aðeins markað þáttaskil
í ferðaþjónustu á Íslandi heldur
breytt „sjálfsmynd“ þjóðarinnar,
hvorki meira né minna.
„Viðskiptahugmynd breytti
sjálfsmynd Íslendinga“ er yfir
skrift greinarinnar. Síðan segir:
„Leiðakerfið með tengiflugi
um Keflavíkurflugvöll er ekki náttúrufyrir
brigði heldur viðskiptahugmynd sem hrint
var í framkvæmd með verulegum tilkostnaði
og tók langan tíma að koma á legg. Þessi
viðskiptahugmynd er hins vegar merkileg
fyrir þær sakir að hún breytti Íslandi. Hún
lagði grunn að langtum meira flugi til og frá
Íslandi en heimamarkaðurinn stóð undir.
Þetta mikla flug og markaðsstarfið fyrir það
er undirstaða þeirrar ferðaþjónustu sem við
þekkjum í dag. Áður en það kom til komu til
landsins undir 100 þúsund ferðamenn, nú eru
þeir um 700 þúsund. Það er mikil breyting á
20 árum.“
Ekki er hlaupið að því að skilgreina „sjálfs
mynd“ þjóða. Hún hlýtur þó að byggja á ein
hverjum grunni, sem víðtæk eining er um, en
laga sig svo að breyttum aðstæðum í tímans
rás. Í vissum skilningi er sjálfsmynd þjóða
því sífelldum breytingum undirorpin. Fáu
sýnist hins vegar hægt að slá föstu um slíkar
breytingar án viðamikilla viðhorfskannana
yfir langt tímabil.
Nú er ég ekki heima í „ímyndar“fræðum
nútímans en ætli að séu ekki fádæmi að því
sé haldið fram að leiðakerfi í áætlunarflugi
hafi breytt sjálfsmynd heillar þjóðar?!!
En sé það svo að leiðakerfi í áætlunar
flugi hafi í raun og veru leitt til breytinga á
skilningi íslensku þjóðarinnar á sjálfri sér þá
er það leiðakerfi Loftleiða, en ekki Icelandair,
sem á heiðurinn af því.
Leiðakerfi Icelandair árið 1987 var nefni
lega ekki nýtt af nálinni. Það var í eðli sínu
nákvæmlega sama leiðakerfi og Loftleiðir
kynntu til sögunnar fyrir 60 árum og byggir
á þeirri hugmynd að fljúga með farþega milli
Evrópu og Bandaríkjanna með viðkomu á Ís
landi.
Þótt Loftleiðir hafi neyðst til að beina flest
um farþegum sínum til Lúxemborgar vegna
þvingunaraðgerða IATAeinokunarhringsins
bauð félagið einnig upp á flug til helstu borga
Evrópu, svo sem höfuðborga Norðurlanda,
Lundúna, Glasgow, Parísar og Hamborgar.
Árið 1970 flutti Loftleiðir nærri 300.000 far
þega yfir Atlantshaf, en þá hafði félagið sem
fyrr segir um 3,8% hlutdeild í Atlantshafsflug
inu. Hlutdeild Icelandair í Atlantshafsfluginu
nær hins vegar ekki 1%, þrátt fyrir aukningu í
fjölda farþega.
Loftleiðir lögðu grunn að uppbyggingu
ferðaþjónustu í landinu með hinni rómuðu
Stopoveráætlun sinni þar sem farþegum í
Atlantshafsfluginu gafst kostur á að verja
nokkrum dögum á Íslandi á leið sinni yfir
hafið. Til að þjóna miklum straumi ferða
manna byggðu Loftleiðamenn stórt hótel og
settu á fót bílaleigu, svo að fátt eitt sé nefnt.
Jafnframt opnaði hin víðtæka starfsemi
Loftleiða Íslendingum nýja sýn út í hinn
stóra heim. Þá er ekki ótrúlegt að land
nám Loftleiðamanna í Lúxemborg hafi
haft nokkur áhrif á þjóðarsálina. Í kjölfar
Lúxemborgarflugsins, stofnunar Cargolux,
flugs Air Bahama til Lúxemborgar og þátt
töku Loftleiðamanna í byggingu glæsihótels
við Findelflugvöll varð til fjölmenn Íslend
inganýlenda í Lúxemborg þar sem þúsundir
Íslendinga gátu sér gott orð við nám og störf.
Það sýnist í meira lagi langsótt að halda því
fram að leiðakerfi Icelandair árið 1987 hafi
breytt „sjálfsmynd“ Íslendinga. Óhætt er hins
vegar að fullyrða að Loftleiðaævintýrið hafi
haft djúpstæð áhrif á landsmenn. Um það
vitna blaðaskrif á velgengnisárum Loftleiða.
Jökull Jakobsson rithöfundur orðaði það svo á
sínum tíma að Loftleiðir væru fyrirtæki sem
„þjóðin hefur jafnan fylgst með og allir þóst
eiga nokkur ítök í – ef til vill vegna þess að
þeir sem að því standa hafa breytt í veruleika
draumsýn sem blundar í brjóstum okkar
allra“.
Það sæmir engum að skreyta sig með
stolnum fjöðrum. Hvernig sem á það er litið
er Atlantshafsflug Icelandair og framlag
fyrirtækisins til uppbyggingar ferðaþjónustu
á Íslandi framhald af hinu víðfeðma frum
kvöðlastarfi Loftleiðamanna.
Vonandi rennur upp sá dagur að stjórnend
ur Icelandair hefji sig upp úr skotgröfum
liðins tíma og sýni Loftleiðamönnum þann
sóma sem þeim ber. Einstakt tækifæri er til
þess einmitt núna – með því að minnast með
verðugum hætti 65 ára afmælis Atlantshafs
flugs Loftleiða og 60 ára afmælis reglubund
ins áætlunarflugs vestur um haf, upphafs
Loftleiðaævintýrisins.
Meðal bóka höfundar er Alfreðs saga og Loft-
leiða (1984, 2. útg. 1985 og 3. útg. 2009).
Jakob F. Ásgeirsson
rithöfundur og ritstjóri
Þjóðmála.
Kauptu betri sumardekk hjá Max1
Nokian er leiðandi í framleiðslu dekkja sem eru sérstaklega hönnuð fyrir
krefjandi aðstæður norðlægra slóða. Nokian er þekkt fyrir nýjungar og
framþróun á dekkjum sem veita öryggi, stuðla að auknum eldsneytis-
sparnaði vegna lítils vegviðnáms og veita mýkt og þægindi í akstri.
Nokian dekk eru margverðlaunuð gæðadekk.
Nokian býður gott úrval sumar- og heilsársdekkja. Þar á meðal er nýtt
sumardekk, Nokian eLine, sem hefur fengið toppeinkunn helstu
prófunaraðila heims svo sem Auto bild, ADAC og NAF.
Reykjavík: Bíldshöfði 5a og 8 , Jafnasel 6, Knarrarvogur 2, sími 515 7190
Hafnarfjörður: Dalshraun 5, sími 515 7190
Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Allar stöðvar opnar virka daga milli kl. 8:00-17:00
Laugardaga opið á Bíldshöfða 5a milli kl. 9:00-13:00
Nokian i3 heldur góðu
gripi bæði við lágt
hitastig og í rigningu,
reynist frábærlega við
flot í bleytu og veitir
framúrskarandi aksturs-
eiginleika fyrir litla og
meðalstóra fólksbíla.
Nokian Line
sumardekkið er
framúrskarandi. Það
gefur besta mögulega
gripið ,frábæra
akstursupplifun og
er sérstaklega gott í
bleytu.
Nokian WR er margverð-
launað heilsársdekk, sem
hefur sannað gildi sitt við
íslenskar aðstæður. Valið
besta dekkið af Automotor
2012 með 99 stig af 100
mögulegum.
Jeppadekk sem tryggir
rásfestu, mýkt í akstri
og mjög gott grip.
Nokian i3 Nokian Rotiiva ATNokian LineNokian WR A3
Nokian eLine
Nýja Nokian eLine sumardekkið hefur
fengið toppeinkunn helstu prófunaraðila.
Það er hannað með nútímatækni og grænum áherslu
sem stuðla að betri eldsneytisnýtingu og minni mengun.
Mjúkir og öryggir akstureiginleikar þess færa þér hugarró.
Eldsneytisnýting og veggrip í bleytu er afdráttarlaust
það besta sem þekkist. Nokian eLine fær hæstu einkunn
samræmdu Evrópustaðlanna og skorar A bæði fyrir
eldsneytisnýtingu og veggrip við blautar aðstæður.
Nýttu þér vaxtalaus lán í allt að 12
mánuði frá Visa eða Mastercard
Max1 bílavaktin og
Nokian uppfylla
ESB reglur um
hjólbarðamerkingar.
Fáðu ráðgjöf.
Mundu að grip dekkjana er aðeins fjórir lófastórir fletir.
Ekki fórna örygginu í sumar. Veldu gæðadekk frá Nokian. Renndu v
ið!
Fáðu ráð
gjöf frá s
érfræðing
um.
Komdu á
Max1 Bíla
vaktina.
Margverðlaunuð Nokian gæðadekk sem veita öryggi
Mundu: nagladekkin af fyrir 15. apríl
Max1_sumardekk_255x200_05.04.2013_END.indd 1 10.04.2013 14:39:10
Um leiðakerfi Icelandair og sjálfsmynd Íslendinga
Loftleiðir eiga heiðurinn
Sé það svo að leiðakerfi í áætlunarflugi hafi í raun og veru leitt til
breytinga á skilningi íslensku þjóðarinnar á sjálfri sér þá er það
leiðakerfi Loftleiða, en ekki Icelandair, sem á heiðurinn af því.
22 viðhorf Helgin 12.-14. apríl 2013