Fréttatíminn - 12.04.2013, Side 32
tímar framundan hjá okkur enda
er þetta okkar fyrsta barn.“
Fyrir tæpum þremur árum
fóru Kristín og Katrín í gegnum
matsferli og fengu í kjölfarið for-
samþykki fyrir ættleiðingu barns
erlendis. Þá horfðu þær helst til
Suður-Afríku þar sem ættleið-
ingar samkynhneigðra eru leyfðar
innanlands. „En þar sem að Ísland
er ekki með samning við neitt ríki
sem leyfir ættleiðingar til samkyn-
hneigðra þá hefur okkar mál ekki
þokast áfram og er í raun enn þá
stopp,“ segir Kristín en árið 2011
sögðust þær vilja ryðja leiðina fyrir
önnur samkynhneigð pör varðandi
ættleiðingar og þá ekki aðeins á Ís-
landi heldur í heiminum.
„Ísland hefur hingað til verið
töffaraland í mannréttindamálum
þannig það væri ekki úr vegi ef við
yrðum þær fyrstu,“ sagði Katrín í
samtali við Vísi.is í mars 2011. Þær
fóru síðan þá leið að Kristín fór í
glasafrjóvgun og biðin eftir þeirra
fyrsta barni er nú ekki nema þrír
mánuðir eða svo.
Samtíminn tæklaður núna
En aftur að því sem Kristín er að
fást við akkúrat núna. Sýningin
sem hún frumsýnir á föstudags-
kvöld samanstendur af þremur
stuttum leikverkum sem hún
rammar inn á sviði Borgarleik-
hússins. „Þessi verk eru eftir þrjá
unga höfunda og öll frekar í styttri
kantinum. Borgarleikhúsið efndi
til lokaðrar samkeppni meðal
ungra höfunda síðastliðinn vetur
þar sem sex höfundar tóku þátt en
þessir þrír voru valdir til áfram-
haldandi vinnu.“
Leikritin sem um ræðir eru
Skúrinn á sléttunni, eftir Tyrfing
Tyrfingsson, Skríddu, eftir Krist-
ínu Eiríksdóttur og Svona er það
að vera þögnin í kórnum eftir
Sölku Guðmundsdóttur.
„Þessi verk eru í sjálfu sér mjög
ólík á skemmtilegan hátt,“ segir
Kristín en höfundarnir voru beðnir
um að hafa ekki fleiri en fjóra leik-
ara í verkunum „og helst áttu þau
að fjalla um eitthvað sem brennur
á ungum höfundum á Íslandi í dag.
Málefni sem þeim liggja á hjarta
eða taka á einhvern hátt á íslensk-
um samtíma eða því sem þeim
finnst mikilvægt að fjalla um.“
Kristín segir æfingatíma-
bilið hafa verið mjög sérstakt
enda verkin ólík bæði í formi og
innihaldi auk þess sem það sé
sjaldgæft að stuttum verkum sé
slengt saman í eina sýningu. „Sem
leikstjóri í leikhúsi fær maður ekki
oft að takast á við svona stutt form
eins og kvikmyndaleikstjórar gera
oft með stuttmyndum eða rithöf-
undar með smásögum. Maður er
eiginlega alltaf að takast á við leik-
rit í fullri lengd.
Ég hef aldrei gert svona stutt
leikrit áður en þetta er mjög
frelsandi, ekki síst vegna þess
að maður getur leyft sér að vera
meira afgerandi í stíl og formi.
Þetta eru hlutir sem þola kannski
ekki tvo tíma en geta verið mjög
skemmtilegir í hálftíma sýningu.
Þannig að maður fær meira frelsi
á ákveðinn hátt sem er mjög hvetj-
andi. Ég held það væri bara gaman
að sjá fleiri tilraunir með þetta.
Að við séum ekki alltaf að festa
okkur svona í þessari heils kvölds
sýningu.
Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt æfingatímabil og þetta
er það sem mér finnst mest gefandi,
að vinna með svona nýtt íslenskt
efni, nýtt form og nýjan texta sem
maður er að koma að í fyrsta sinn
og hefur aldrei verið sviðsettur
áður. Þannig að maður þarf að
finna aðferðina og leiðina að þessu
með leikhópnum og það er þessi
nýsköpun sem höfðar afar sterkt til
mín og það sem heillar mig mest
þegar kemur að leikhúsinu.“
Þrjár í einni
Kristín segir að í raun sé hér um
þrjár sjálfstæðar sýningar að ræða.
„Þær eru samt rammaðar inn með
sömu leikmynd sem breytist þó
alltaf á milli sýninga en það eru
Góðir atvinnumöguleikar í flugvirkjun
PI
PA
R
\T
BW
A
•
SÍ
A
•
13
11
73
Nám við Keili á Ásbrú verður sífellt
vinsælla og fjöldinn allur hefur nýtt
sér þessa nýju og spennandi leið í
menntakerfinu. Nú er þar einnig
boðið upp á nám í flugvirkjun við
Flugakademíuna, en AST (Air
Service Training ltd.) hefur sett upp
útibú frá skóla sínum við Keili.
Þegar fólk veltir því fyrir sér hvað
það ætti helst að leggja fyrir sig er
gott að huga að atvinnumöguleikum
í framtíðinni – en það er talið að allt
að 600.000 flugvirkja muni vanta til
starfa um allan heim á næstu árum.
Nám í flugvirkjun er fyrir konur og
karla sem vilja öðlast alþjóðleg
starfsréttindi og starfa í fjölbreyttu
starfsumhverfi að viðhaldi flugvéla
af öllum stærðum og gerðum.
Miklir alþjóðlegir atvinnumögu-
leikar eru fyrir flugvirkja og góð
tækifæri til frekari menntunar og
starfsþróunar.
Ef þú hefur áhuga á alþjóðlegu
starfsumhverfi og sækist eftir
starfsöryggi ættirðu að kynna þér
flugvirkjanám.
ERU FRAMTÍÐAR-
DRAUMARNIR
KOMNIR Á FLUG?
KYNNTU ÞÉR NÝTT OG SPENNANDI
FLUGVIRKJANÁM Í KEILI!
AST (Air Service Training ltd.) í Skotlandi hefur sett upp útibú frá skóla
sínum hjá Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Nám í flugvirkjun er fyrir konur og karla sem vilja öðlast alþjóðleg
starfsréttindi og starfa í
ölbreyttu starfsumhverfi að viðhaldi flugvéla af
öllum stærðum og gerðum. Miklir alþjóðlegir atvinnumöguleikar eru fyrir
flugvirkja og góð tækifæri til frekari menntunar og starfsþróunar.
Um er að ræða tveggja ára samþykkt nám fyrir flugvirkja „Approved IR
Part 66 Category B“ sem er bóklegt og verklegt iðnnám flugvirkja.
Nánari upplýsingar á www.flugvirkjun.is
KEILIR ÁSBRÚ 578 4000 keilir.net
En þar sem að Ísland
er ekki með samning
við neitt ríki sem leyfir
ættleiðingar til samkyn-
hneigðra þá hefur okkar
mál ekki þokast áfram
og er í raun ennþá stopp.
Hugsjónakonurnar horfa fram á bjarta og spennandi tíma.
Helgin 12.–14. apríl 2013