Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.04.2013, Side 35

Fréttatíminn - 12.04.2013, Side 35
Hitið í ofni á 180-200°C í u.þ.b. 10 mín. OFN 10 MÍN200° FULLELDAÐUR RÉTTUR Pizzurnar frá Sóma eru ferskar á hverjum degi. Veldu þér með pepperoni eða nautahakki í kælinum út í næstu búð. SÓMA PIZZUR MEÐ EKTA ÍTÖLSKUM BOTNI Gæslumenn sálgæslunnar Þetta eru mistök sem hann lærir af og vonandi fleiri í leiðinni. Nú munum við biskupar skerpa á þessum verkferlum í sálgæslunni. Aðkoma sóknarprestsins á Húsavík af nauðgunarmáli um aldamótin hefur vakið athygli og úlfúð. Biskupar eru komnir í málið og Sólveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, hefur messað yfir klerknum. Lausbeisluð athyglissýki Ég þarf ekki að vera hand- tekin til að fá athygli. Birgitta Jónsdóttir alþingismaður var ekki handtekin í Bandaríkj- unum en það er í góðu lagi. En atkvæðin telja, ekki prikin Þarna misstirðu prik, Framsókn. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir rithöfundur var ekki ánægð með að fulltrúi Framsóknarflokksins skyldi skrópa á morgunverðarfundi í Kvennaathvarfinu þar frambjóðendur svöruðu því hvernig þeir myndu beita sér gegn kynbundnu ofbeldi kæmust þeir í stjórn. Spegilmyndir spjalla Það er svolítið sérkennilegt að vera spurður af sjónvarpsmanni hvort að það sé ekki óheppilegt að hafa verið sjónvarpsmaður. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, botnaði lítið í spurningu sem Sigmar Guðmundsson beindi til hans í þættinum Forystusætið í Sjónvarpinu. Formaðurinn var á sínum tíma dag- skrárgerðarmaður hjá Sjónvarpinu og í því sambandi spurður hvort reynsluleysi af atvinnulífinu yrði honum ekki fjötur um fót. Verðtryggingunni yrði þó útrýmt Auðvitað mun kjarnorkustríð hafa skelfileg áhrif. Það er ekki hægt að spá um afleiðingarnar. Pétur Gunnlaugsson, formaður Flokks heimilanna, var á beinni línu dv.is spurður hvaða áhrif hann teldi að kjarnorkustríð af völdum belgingsins í Norður-Kóreumönnum myndi hafa á hag íslenskra heimila. Er Sigur Rós í Repúblík- anaflokknum? Þeir eru með pólitísk sam- bönd og þannig kemstu áfram á Íslandi. Indverska söngprinsessan Leoncie sendi íslensku tónlistarfólki tóninn og rekur velgengni Sigur Rósar og Bjarkar meðal annars til pólitískra sambanda þannig að íslenskt stjórnmála- fólk virðist hafa sterk ítök í útlöndunum. Og hver ert þú? Íslenskt ríkisfang, langfeðratal aftur í aldir og málefnaleg umræða dugar ekki til þegar fjórflokkurinn er annars vegar. Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, fór yfir ófarir sínar en hann er ekki kjörgengur og rekur kerfis- villuna til fjórflokksins.  Vikan sem Var ALÞINGISKOSNINGAR 27. APRÍL 2013 KJÖRSTAÐIR Í REYKJAVÍK Í Reykjavíkurkjördæmi suður: Í Reykjavíkurkjördæmi norður: Hagaskóli Ráðhús Hlíðaskóli Laugardalshöll Breiðagerðisskóli Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi Ölduselsskóli Vættaskóli Borgir (áður Borgaskóli) Íþróttamiðstöðin Austurbergi Ingunnarskóli Árbæjarskóli Klébergsskóli Ingunnarskóli Kjörfundur hefst laugardaginn 27. apríl kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður mun hafa aðsetur í Hagaskóla á kjördag og þar hefst talning atkvæða að loknum kjörfundi kl. 22.00. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður mun hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur á kjördag og þar hefst talning atkvæða að loknum kjörfundi kl. 22.00. Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður vegna alþingiskosninga 27. apríl nk. liggja frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 10. apríl fram á kjördag. Vakin er athygli á því að hægt er að fá upplýsingar um hvar kjósendur eru á kjörskrá á vefnum www.kosning.is. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá. Athugasemdum vegna kjörskráa í Reykjavíkurkjördæmum skal beint til skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4700, netfang kosningar@reykjavik.is. Þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar. Borgarráð úrskurðar um athugasemdir vegna skráningar í kjörskrá. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður Skrifstofa borgarstjórnar Helgin 12.–14. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.