Fréttatíminn - 12.04.2013, Side 38
Í Dorritarstellingu (og Ólafs)
S
Sennilega var það Díana heitin prinsessa
sem kom kórónu halla heims, Taj Mahal
í grennd við borgina Agra í Indlandi,
endanlega á heimskortið þar sem hún sat
ein á bekk fyrir framan marmarahöllina
glæsilegu en Karl Bretaprins var víðs
fjarri. Hvað okkur á landinu bláa varðar
var það hins vegar Dorrit Moussaieff,
þáverandi heitkona og síðar eiginkona
Ólafs Ragnars, forseta Íslands, sem gerði
slíkt hið sama í opinberri heimsókn til
Indlands aldamótaárið. Þá festist þessi
bygging, sem með réttu er talin ein sú
fegursta í heimi, í hugskoti Íslendinga.
Taj Mahal er í raun grafhýsi frá miðri 17.
öld, minnisvarði um eilífa ást. Keisarinn
Sah Jahan byggði þennan varða í minn-
ingu drottningar sinnar, Mumtaz Mahal
sem lést af barnsförum árið 1631. Það tók
22 þúsund smiði 22 ár að byggja marm-
arahöllina en hún var fullbyggð árið 1653.
Ekkert var til sparað við gerð grafhýsisins
og eins gott að keisarinn hafði aðgang að
skattfé þegnanna við gerð þess.
Þessa minnismerkis um ást hafa menn
notið síðan og vinsælt er að láta mynda
sig framan við marmaramusterið, líkt og
heitbundin Ólafur Ragnar og Dorrit gerðu
um árið. Íslendingar voru forvitnir um þá
konu sem komið hafði óvænt inn í líf for-
setans og blaðamaður Morgunblaðsins,
sem var með í heimsókninni, lýsti því svo
að ekki hefði farið á milli mála að þar færi
ástfangið fólk. Hann greindi jafnframt frá
því að annar blaðamaður hefði spurt hvort
von væri á yfirlýsingu frá þeim á staðnum.
Forsetinn hefði hins vegar áttað sig á
því að fréttamaðurinn væri að bíða eftir
hugsanlegri yfirlýsingu um hjónaband
og svarað spurningunni neitandi. Eins og
alþjóð veit var þess hins vegar ekki langt
að bíða að Ólafur Ragnar og Dorrit stað-
festu heit sín með hjónabandi. Hvort setan
á bekknum fyrir framan Taj Mahal hefur
haft sitt að segja í þeim efnum skal ósagt
látið en varla hefur hún skaðað.
Minn betri helmingur hefur lengi haft
það á stefnuskránni að heimsækja Ind-
land, ekki síst Taj Mahal. Hún ávítaði mig
nett á þessum tíma fyrir að fylgja ekki for-
setanum í reisuna og taka sig með, svo af
þessu gæti orðið. Málið var hins vegar það
að þáverandi vinnustaður minn, DV, sendi
blaðamann ekki með í Indlandsferðina.
Þegar þarna var komið sögu hafði þrengt
nokkuð að fjárhag blaðsins og að vonum
var horft í hverja krónu.
Indlandsheimsóknin hefur því beðið
– þar til núna um páskana að við hjóna-
kornin við skelltum okkur til fyrirheitna
landsins. Sunnuferðir, með þann merka
ferðafrömuð Guðna Þórðarson í farar-
broddi, auglýstu ferð til Indlands um
páskana – og til himalajaríkisins Nepal
í bónus. Nú lét mín góða kona ekkert
stöðva sig. Hún ætlaði með bónda sinn á
bekkinn fyrir framan marmaraslotið Taj
Mahal – og hana nú, fyrir utan að njóta
alls annars í reisunni, auðvitað.
Það var því eftirvænting í fimmtán
manna hópi góðs fólks sem lagði árla af
stað áleiðis til Indlands, með viðkomu
í Noregi og Katar á langri leið til Delí.
Fyrir hópnum fór Ólafur Baldursson
landfræðingur sem jafnframt naut
aðstoðar frábærra indverskra fararstjóra
– og hið sama gilti í Nepal, þegar þangað
kom. Við vorum að sönnu nokkuð teygð
á leiðarenda en létum það ekki á okkur
fá og fórum strax eftir innritun á hótel
í skoðunarferð um gömlu Delí. Okkur
var snarlega kippt inn í annan heim þar
sem öllu ægði saman. Fararskjótar okkar
voru hjólatíkur, „rickshaw“, ekki beinlínis
kádiljákar en menga minna, aðeins svita
þess sem hjólar með farþegana. Það var
eins gott, nóg var mengunin samt af bíl-
um, vélhjólum, skellinöðrum og vespum,
auk gangandi vegfarenda, nautgripa og
annarra kvikinda sem þvældust hvert
innan um annað. Bensínfnykurinn sam-
einaðist með undarlegum hætti angan
framandi kryddtegunda svo úr var torræð
blanda. Hvernig umferðin gekk upp og
allir lifðu af er mér óskiljanlegt. Við bætt-
ist að heimamenn tóku forskot gleði- og
hátíðardaginn Holi, sem boðar komu vors-
ins. Það gera þeir með mikilli litadýrð og
kasta alls konar litum hver á aðra. Lengi
vonuðumst við til þess að sleppa undan
þeim ósköpum, enda í bærilega vönd-
uðum fötum, en varð ekki að ósk okkar.
Bleik gusa náði okkur á lokametrunum í
hjólatíkinni. Þar með fóru fínu fötin, ljósu
buxur frúarinnar og dýra peysan, skyrtan
mín og gallabuxurnar sömuleiðis. Okkur
var nær að vera ekki í strigapokum.
Nýja Delí, sem við skoðuðum daginn
eftir, var öðruvísi enda breiðstrætin hönn-
uð á nýlendutíma Breta. Andstæðurnar
voru ótrúlegar, annars vegar hallir og
stórhýsi auðmanna, hins vegar hreysi fá-
tæklinganna og sóðaskapurinn í kringum
þau – ef fólkið var ekki beinlínis á götunni
innan um sorpið – og kýrnar heilögu á
sömu strætum og gangstéttum. Indland á
víða langt í land, mengun og sóðaskapur
hrópar beinlínis á mann en í annan stað
er sagan og menningin merk hjá þess-
ari annari fjölmennustu þjóð veraldar.
Indland og hitt asíska stórveldið, Kína,
eru á fullri ferð, millistéttin fer stækk-
andi og hagvöxtur er mikill. Hlutfallsleg
heimsframleiðsla eykst þar um leið og
hún dregst saman í gömlu iðnríkjunum,
Evrópu og Bandaríkjunum.
Eftir dvöl í Delí heimsóttum við Jaipur,
höfuðborg Rajasthan, myndræna borg
með bleikum byggingum, ævintýralegum
höllum og stórum virkjum. Frægust er
borgin fyrir gull og gersemar, enn eitt
dæmið um öfgar hins fjölmenna ríkis.
Við Ambervirkið, rétt utan Jaipur, riðum
við fílum. Það verður að segja eins og
það er, fílar eru engir töltarar. Þótt þeir
færu aðeins fetið eru þessar risaskepnur
meinhastar.
Borgin Agra og fyrrnefnd kóróna hall-
anna, Taj Mahal, var þó hápunktur Ind-
landsferðarinnar. Fyrir framan mar-
mamaramusterið, og loksins komin á
þann merka stað, létum við eftir okkur
sannkallaða Dorritarstellingu (og Ólafs)
á bekknum fræga. Gott ef við gengum
ekki enn lengra, ýmist í set- eða legu-
stellingum með indverskan ljósmyndara
á fleygiferð.
Það má leyfa sér ýmislegt eftir fjörutíu
ára hjónaband – ekki síður en í trúlof-
unarstandi.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
38 viðhorf Helgin 12.–14. apríl 2013
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu
með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 1
mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar
og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring
eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á
sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingran-
na. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að
sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir
einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn
eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þun-
guð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki,
háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan púls, er-
fiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota
lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á
Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.