Fréttatíminn - 12.04.2013, Side 65
Curver opnar
sýningu
Listamaðurinn Curver
Thoroddsen opnar sýningu í
Gallerí Dvergi í dag, föstudaginn
12. apríl klukkan 20. Sýningin
heitir upp á ensku „The Fine and
Delicate Art of Archival Process-
ing“ og er hluti af Sequences
listahátíðinni þetta árið.
„Sýningin inniheldur fjögurra
ára gamalt verk sem ég hef ekki
sýnt fyrr en nú en það saman-
stendur af hljóðupptökum af
öllum klósettferðum mínum í
febrúar 2009. Mér hefur þótt
verkið vandmeðfarið í útfærslu
og uppsetningu en undirliggjandi
þema Sequences í ár sem og
aðstæður í Gallerí Dvergi passa
fullkomlega við verkið!“ segir
listamaðurinn.
Verkið er í heild um þriggja
klukkutíma langt og endurtekið
sjálfkrafa þannig að hægt er að
koma inn í það hvenær sem er.
Sýningin verður einnig opin á
laugardag frá klukkan 16-20 og á
sunnudag frá klukkan 14-18.
Curver Thoroddsen. Myndin
var tekin á verkinu Fjölskyldu-
skemmtun.
Nýtt lag frá
Sölva Blöndal
Tónlistarmaðurinn Sölvi Blöndal
hefur sent frá sér lagið Blue
Velvet undir merkjum hljóm-
sveitarinnar Halleluwah. Lagið
kemur út á Gogoyoko og það er
söngkonan Raketa sem syngur
með sveitinni. Sölvi og Raketa
semja lagið saman en Sölvi nýtur
auk þess liðsinnis Nóa Steins
Einarssonar við hljóðfæraleik.
Blue Velvet er afrakstur sam-
starfs Sölva Blöndal og söng-
konunnar Raketu.
Þóra Sigurbjörnsdóttir verður með leiðsögn í Hönn-
unarsafni Íslands á sunnudaginn. Þóra leiðir gesti
safnsins um sýningarnar Nordic Design Today og Innlit
í Glit klukkan 14.
Á Nordic Design Today er kynnt úrval nýrrar nor-
rænnar hönnunar á tímum sem einkennast af leit að
nýjum einkennum og leiðum. Hönnuðirnir eru Front,
Harri Koskinen, Henrik Vibskov, Sigurd Bronger, Sig-
urður Gústafsson og Steinunn Sigurðardóttir. Þau hafa
öll hlotið Torsten og Wanja Söderberg verðlaunin, sem
eru stærstu hönnunarverðlaun sinnar tegundar og veitt
árlega norrænum hönnuði.
Innlit í Glit sýnir valda muni frá árunum 1958 til 1973
úr sögu Leirbrennslunnar Glits. Glit var um margt
langt á undan sinni samtíð og markar djúp spor í ís-
lenskri leirlistarsögu, á tíma þegar íslenskur listiðnað-
ur var í frumbernsku. Margir af okkar þekktustu lista-
mönnum á 20. öld unnu hjá Gliti. Breytingar á áherslum
og vilji til að auka framleiðslugetu og tæknivæða hana
leiddi til þess að fyrirtækið breytti um gír og iðnvædd-
ist og tók framleiðslan nýja stefnu úr lista- og hönnun-
arsögu Íslands inn í sjálfa iðnaðarsögu Íslands.
Hönnunarsafn Íslands er til húsa að Garðatorgi 1 í
Garðabæ. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá
klukkan 12-17.
Hönnun Þóra Sigurðardóttir með leiðSögn í HönnunarSafni íSlandS
Leiðsögn um tvær áhugaverðar sýningar
Ýmislegt forvitnilegt er að finna á
sýningunum í Hönnunarsafni Íslands.
UM 250 NÁMSLEIÐIR Í FRAMHALDSNÁMI VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS
FRAMHALDSNÁM Í HÍ
Umsóknarfrestur til 15. apríl
www.hi.is
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 131184
Velkomin í háskóla í fremstu röð.
Styrktu stöðu þína með
öflugu framhaldsnámi.
dægurmál 65 Helgin 12.–14. apríl 2013