Aðventfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 16
FIMMTUDA G UR
Góðvild
Vid þekkjum hana þegar víd sjáum hana.
En það daþurlega er, að við sjáum hvergi nærri
nóg af henni.
EFTIR WERNER K. VYHMEISTER
Ekkjan Thelma Gilbert,
sjöunda dags aðventisti
búsett í Morrice, Michigan,
ákvað að flytja í sólskinið á
Flórída. Fasteignasalinn kom og setti
upp söluskilti fyrir framan húsið
hennar. Þegar nágrannar hennar sáu
skiltið, hófu þeir óvenjulegar
aðgerðir.
Einn daginn sá Thelma að skiltið
hafði verið hulið með ábreiðu.
Annan daginn hafði verið skipt um
skilti, og á því nýja stóð: „Þorps-
reglurnar banna að sett séu upp
skilti sem hindra útsýn. Oskast tekið
niður.“
Þegar Thelma leit nokkrum
dögum síðar út um gluggann, sá hún
75 manns þramma upp heimkeyrsl-
una að húsinu með skilti sem á var
letrað: „Nágrannarnir munu sakna
þín,“ „Mér þykir vænt um þig, farðu
ekki,“ og „NEI, NEI, NEI!“ Þegar
hún kom út var henni rétt bænar-
skjal undirritað af 101 nágranna sem
allir hvöttu hana til að fara hvergi.
Thelma Gilbert hætti því við að
flytja burt frá Michigan. Eins og í
sögunni um Tabíþu (Dorkas) þótti
nágrönnunum vænt um Thelmu
vegna þess „að hún var mjög
góðgjörðasöm og örlát við snauða“
(P 9.36). Líf hennar var í samræmi
við hvatningu Ellenar White:
„Vanræktu ekki að tala við nágranna
þína og gera þeim allt það gott sem í
þínu valdi stendur, því að með því
gætirðu stuðlað að frelsun ein-
hvers.“["
„En ávöxtur andans er ... góðvild"
(G15.22).
Hversdagsdyggð
Omögulegt er að skilgreina
góðvild til fullnustu í einni setningu,
vegna þess að góðvild er tengd svo að
segja öllum öðrum kristnum viðhorf-
um og dyggðum. Merkingu hennar
skiljum við með því að sjá hana að
verki.
Biblían er full af sögum sem lýsa
mannlegri góðvild og áhrifunum
sem koma fram þar sem hennar
gætir.
Sagan um Rut fjallar um ógæfu
sem snerist upp í endanlegan sigur.
Sagan fékk farsælan endi vegna
góðvildar Rutar í garð tengdamóður
sinnar. Athygli Bóasar, venslamanns
þeirra, beindist að Naomi. Arang-
urinn varð sá að Rut varð hlekkur í
ættartölu Jesú Krists.
Þegar Davíð var orðinn konungur
og enn á unga aldri, spurði hann:
„Er nú nokkur maður eftir orðinn af
húsi Sáls? Honum vil ég miskunn
auðsýna fyrir sakir Jónatans" (2S
9.1).
Væn eiginkona hlýtur hrós í
Orðskviðunum vegna þess að „hún
opnar munninn með speki og ástúð-
leg fræðsla er á tungu hennar“ (Ok
31.26).
Þegar Guð kom öðru sinni til fun-
dar við Móse á Sínaífjalli til að rita
boðorðin á nýjar steintöflur, notaði
hann tækifærið til að lýsa sjálfum sér
með orðunum: „Drottinn, Drottinn,
miskunnsamur og líknsamur Guð,
þolinmóður og gæskuríkur og harla
trúfastur“ (2M 34.6).
Góðvild Guðs (Hebr. chesed) er
altæk. Sagan um lýð Guðs, bæði ein-
staklinga og heildina - raunar heim-
inn allan - er lýsing á gæsku
Drottins.
Við þetta sama tækifæri, þegar
Guð birdst Móse, tengdi hann gæsku
við sannleik. Hann staðfesti einnig,
að þessi gæska kæmi fram í
fyrirgefningu misgjörða, lögbrota og
syndar. En, sagði hann, hann „lætur
þeirra þó eigi með öllu óhegnt“ (vers
7). Gæska Guðs, sannleikur og
dómar, allt er það hluti af áformi
Guðs um frelsun okkar frá syndum.
Gæsku Guðs er lýst í Biblíunni og
hún skýrð með dæmum af ýmsu tagi.
Gæska Guðs er ástæðan til þess að
Israel getur vonast eftir „gnægð
lausnar ... frá öllum misgjörðum
hans“ (S1 130.7, 8). Hún snertir ein-
staklinga sem leita fyrirgefningar og
auk þeirra allar þjóðir auk Israels.
Fordæmi gæsku Guðs er hvatning
til barna hans um góðvild. Við getum
tekið okkur áminningu Krists í munn
og sagt: „Verið þér því fullkomnir
eins og faðir yðar himneskur er full-
kominn" (Mt 5.48).
Forsenda kristninnar
I Nýja testamentinu er góðvild
óhjákvæmilegur eiginleiki fylgjenda
Krists. Með því að Kristur hefur
fyrirgefið þeim, eru kristnir menn
áminntir: „Verið góðviljaðir hver við
annan, miskunnsamir, fúsir til að
fyrirgefa hver öðrurn" (Ef 4.32, sbr.
G1 6.1, 2). Þessi góðvild verður að ná
jafnvel til óvina þeirra, sem sýna ber
góðvild án þess að vænta neins í
staðinn - nema hinnar eilífu
umbunar - þar sem þeir eru börn
Hins hæsta, því að sjálfur Guð „er
góður við vanþakkláta og vonda“ (Lk
6.35).
Líf Krists á jörðunni var lifandi
dæmi um góðvild í verki, Hann lækn-
aði sjúka, útskýrði þolinmóður lær-
dóm frelsunarinnar, tjáði jafnvel
Júdasi, sem sveik hann, góðvild sína.
Góðvild var útskýrð af Kristi í
dæmisögunum um miskunnsama
Samverjann, „sauðina“ og „hafrana“ í
lok tímans, og er hann varði gerðir
konunnar sem hellti dýrum
ilmsmyrslum yfir höfuð hans á heim-
ili Símonar í Betaníu.
Gæska Guðs í garð mannkynsins
16
AðventFréttir