Aðventfréttir - 01.04.1995, Side 20

Aðventfréttir - 01.04.1995, Side 20
HVÍLDARDAGJJR Trúfesti Heilagur andi gœðir okkur trúfesti. EFTIR ROBERT S. FOLKENBERG Páll lagði meir en nokkur annar Biblíuhöfundur út af réttlæti fyrir trú sem megin- sannleik kristninnar. Það er frá Páli sem við lærum að „maðurinn réttlætist af trú án lög- málsverka" (Rm 3.28) og „vér vitum að maðurinn réttlætist ekki af lög- málsverkum," skrifaði hann, „heldur fyrir trú á Jesú Krist. Og vér tókum trú á Krist Jesú til þess að vér réttlætt- umst af trú á Krist, en ekki af lög- málsverkum. Enda réttlætist enginn lifandi maður af lögmálsverkum“ (G1 2.16). Trú, ekki lausung Já, hversu sterklega sem postulinn brýndi fyrir mönnum frelsun af trú óháð lögmálsverkum - jafnvel þeim góðum verkum sem unnin eru vegna innblásturs Heilags anda - þá var öll lausung fjarri Páli. í hans huga tákn- aði frelsi í Kristi frelsi frá þeirri ánauð að reyna að frelsast af verkum sínum, tilgangslausri og vonlausri tilraun. „Til þess frelsaði Kristur oss. Standið því stöðugir og látið ekki ... leggja á yður nauðungarok“ (G1 5.1). Páll átti þó aldrei við það - eins og sumir á hans dögum gáfu í skyn - að frelsun fyrir trú á Krist hafi gefið mönnum heimild til að gefa ver- aldlegum, holdlegum fysnum lausan tauminn. Því fór fjarri. „Þér voruð, bræður, kallaðir til frelsis. Notið aðeins ekki frelsið til færis fyrir holdið, heldur þjónið liver öðrum í kærleika“ (vers 13). Samkvæmt því sem Páll segir skulu krismir menn - þeir sem endurleyst- ir eru fyrir blóð Krists - ekki þjóna holdinu sem leiðir til dauða, heldur andanum, sem leiðir til lífs. Páll stillti þessum tveim athafnasviðum hvoru gegn öðru. „Eg segi: Lifið í and- anum, og þá fullnægið þér alls ekki girnd holdsins. Holdið girnist gegn andanum, og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru“ (vers 16,17). Ellen White lýsti uppsprettu sigr- andi lífernis okkar með þessum orðum: „Helgun er mælikvarði full- komleika okkar. A þeirri stundu sem við gefum okkur á vald Guði, trúum á hann, höfum við réttlæti hans. ... Kristur krefst þjónustu óskipts hjarta. ... þegar við gefum okkur Kristi þannig á vald veitir hann hugum okkar hvíld, og [Kristur] helgar hjörtu okkar og hendur í sina þjón- ustu. ... Við opinberum náð hans í hugarfari okkar; því við höfum hans líf. Hann kynnir okkur flekklaus fyrir föður sínum, því við erum helguð fyrir blóð hans.“ (Review & Herald, 25. júlí 1899; leturbr. R.S.F.) Páll telur upp sem „holdsins verk“ frillulífi, óhreinleika, skurðgoða- dýrkun, saurlífi, fjölkynngi, öfund, ofdrykkju, svall, o.s.frv. „Eins og ég hef áður sagt,“ áminnti hann, „þeir sem slíkt gjöra munu ekki erfa Guðs ríki“ (vers 21). Næst á eftir kemur hjá Páli „ávöxt- ur andans“ sem andstæða „verka holdsins.“ Sennilega var það til að leggja áherslu á að gagnstætt syndum sem drýgðar voru óháð Kristi - sem eru verk, koma ávextir andans aðeins frá andanum og vinna að því að end- urskapa í okkur Kristseðlið. Meðal ávaxta andans eru kærleikur, gleði, friður, langlyndi, mildi, gæska og trú- mennska (vers 22). Áhersla á trúmennsku I þessari grein ætlum við að íhuga „trúmennsku.“ Orðið samsvarar gríska orðinu pistis og merkir bæði „trú“ og „trúmennska.“ Vitanlega er trú viðhorf trausts og öryggiskenndar gagnvart einhverju - í þessu tilfelli Guði. Trúmennska er hegðunareinkenni sem gefur öðrum ástæðu til að treysta okkur. Þótt ómögulegt sé að sjá af orðinu einu við hvort sé átt, gefur samhengið til kynna að trúmennska sé merkingin hérna, þar sem hún samræmist betur öðrum víddum ávaxta andans. Stundum virðumst við gera okkur ánægð með lægri viðmiðunarmörk trúmennsku í andlegum efnum en veraldlegum. Mundir þú til dæmis telja J:>að góðan árangur ef níu af hverjum tíu áætlunarflugvélum kæmust heilu og höldnu á ákvörðun- arstað? Eg gæti líka spurt hvort við teldum það traustvekjandi þjónustu. Mundirðu kalla það góðan árangur ef bíllinn þinn færi í gang aðeins í einni tilraun af hverjum þrem? Mundi húsbóndi þinn kalla J)ig traustan starfsmann ef þú mættir til vinnu aðeins tvær til þrjár vikur í mánuði hverjum? Mundi lánardrott- inn Jjinn segja, ef þú slepptir mán- aðargreiðslum af húsnæðisláninu tvisvar á ári: „Nújæja, tíu af hverjum tólf er hreint ekki slæmt?“ Trúfesti Við syngjum sálminn „Great is Thy Faithfulness“ (Mikil er trúfesti Jjín). En hvað táknar það ef vitnað er til okkar, kristinna manna? Hvernig kemur trúfesti fram í lífi okkar? Webstersorðabók skilgreinir trú- mennsku, trúfesti sem „stranga eða fullkomna skyldurækni í störfum.“ „Trúr orðum sínum, heitum, lof- orðum o.s.frv.“; „traustur í viðskipt- um eða vináttu, trygglyndur“; „áreiðanlegur, sem hægt er að treysta eða trúa.“ Iðkun kristins manns á þessum dyggðum mundi því vera trúfesti. Eiginleikarnir sem lýst er í ofan- 20 AðventFréttir

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.