Aðventfréttir - 01.04.1995, Page 24
Fyrir börnin
Veldu þurfandi einstakling til að
hjálpa á komandi frídögum.
Tilgreindu dag og gakktu frá öllum
nauðsynlegum undirbúningi.
Hugleiðing og umræður
Er eitthvað fólk hér í heimi sem
við ættum ekki að elska? Hvernig
getum við best auðsýnt kærleik í
heiminum?
Þarftu að komast í tengsl við ein-
hvern tíl að auðsýna kærleik?
Ljúktu við þessa setningu: Mér
mundi þykja vcenna um fólk ef
Ávaxtarpróf Auðsýni ég fólki sem mér finnst furðulegt kristilegan KÆRLEIKA? (Merktu við eitt) aldrei sjaldan stundum oft.
Sunnudagur
„Ávöxtur
andans
cd ■ ■ ■
gleði"
Minnisvers
Lk 15.7: „Eg segi yður, þannig verbur
meiri fógnubur á himni yfir einum synd-
ara sem gjörir íbrun, en yfir níutíu og
níu réttlátum er ekki hafa ibrunar þörf. “
Biblíusaga - Óheftur fögnuður
Páll og Sílas voru í Filippíborg að
segja Gyðingum sem þar voru búsett-
ir frá Jesú. Guð blessaði boðunarstarf
þeirra.
Satan reynir ævinlega að þagga
niður í boðberum Guðs. Hvað gæti
hann gert til að spilla vitnisburði Páls
og Sílasar? Hann gæti fengið
áhangendur sína til að berja Pál og
Sílas. Hann gæti jafnvel látið setja þá
í fangelsi. Hann gæti æst kaupmenni-
na til reiði gegn prédikurum Guðs.
Satan gæti líka gert hvoru tveggja og
meira til.
Hvað gerði Satan? Þið getið sjálf
lesið það í Postulasögunni 16.11-40.
Fyrst fann hann tvo kaupmenn í
borginni sem áttu ambátt (kona sem
er þræll). Ambáttin var raunar
haldin illum anda Satans.
Húsbændur hennar létu fólk borga
hátt verð fýrir að fá að tala við hana.
Og hvernig skyldi standa á því að
menn voru fáanlegir til að borga
okurgjald fyrir leyfi til að tala við
ambátt? Þegar fólkið spurði stúlkuna
um framtíð sína, svöruðu illu
andarnir í henni. Stundum spurðu
menn hvernig þeir ættu að haga
ákveðnum viðskiptum þar sem miklir
peningar voru í húfi. Illu andarnir
gáfu þeim ráð.
Þeir voru ánægðir með ráðin sem
þeim voru gefin og komu aftur og
aftur.
Eigendur stúlkunnar voru líka
ánægðir, því þeir græddu á tá og
fingri.
Þar sem það var Satan sem stjórn-
aði stúlkunni, sendi hann hana út á
strætin til að elta lærisveinana og
gera hróp að jreim svo allir gætu
heyrt: „Menn þessir eru þjónar Guðs
hins hæsta, og boða jæir yður veg til
hjálpræðis!" (P 16.17).
Hún sagði þetta ekki bara einu
sinni, heldur mörgum sinnum um
alla borgina, og hélt því áfram
dögum saman. Var hún að segja
ósatt? Nei, Páll og Sílas voru þjónar
Guðs.
Var jtetta lærisveinunum til hjálp-
ar? Nei, jrví að allir vissu að stúlkan
var haldin illum anda. Þegar þeir
heyrðu hana segja að lærisveinarnir
væru þjónar Guðs, töldu flestir víst
að orðin kæmu frá illa andanum í
henni, og að hún ætti við að Satan
stjórnaði líka Páli og Sílasi.
Loksins hafði Páll fengið nóg af
jDessu, og hann sagði við hinn illa
anda stúlkunnar: „Ég býð þér í nafni
Jesú Krists að fara út af henni.“ (vers
18). Andinn hlýddi samstundis.
Mér sýnist þetta vera mikið
gleðiefni! Satan varð að gefast upp!
Nú hugsar þú kannski: Vá maður! nú
hljóta kaupmennirnir að verða glaðir
að ambáttin þeirra skuli vera laus við
illa andann. Nei, það var nú öðru
nær. Nú gátu þeir ekki lengur fengið
peninga frá fólki fyrir að láta ambátt-
ina sína spá. Spádómsandinn var á
bak og burt!
Nú var tekið fyrir þessa miklu
gróðalind kaupmannanna. Þeir
ákváðu því að draga Pál og Sílas fýrir
dóm, og sögðu: „Þessir menn eru
Gyðingar og skaðvaldar í borginni.“
Dómarinn féllst á það. Hann
skipaði að láta rífa fötin af Páli og
Sílasi og húðstrýkja þá. Síðan lét
dómarinn kasta þeim í fangelsi.
Þeir sættu hörmulegri meðferð
um nóttina. Með bökin flakandi í
blóðugum sárum eftir barsmíðina og
enga hjúkrun, voru þeir látnir sitja á
harðri, ójafnri brún með fæturna
festa í gapastokk.
Þú ættir að reyna það. Sestu á stól-
bak með fæturna beint fram uppi á
borði og sittu svona í stundar-
fjórðung (kannski þarftu fyrst að
biðja leyfis og láta einhvern halda
stólnum svo hann sporðrísi ekki).
Er það byrjað er verða óþægilegt?
Ef brúnin á stólnum er þótt ekki væri
nema svolítið hvöss, þá tollirðu þar
ekki lengi.
Hinir fangarnir sáu þegar
lærisveinarnir voru bornir inn. Þeir
sáu rifið og blæðandi hörundið og
sögðu sín á milli: „Strákar, þessir pil-
tar eiga heldur betur eftir að kveina
og kvarta í nótt!“ Svo biðu þeir og
hlustuðu. En í staðinn fyrir angist-
arvein heyrðu þeir þessa þjóna Guðs
biðjast fýrir og syngja Guði lof. Þeir
trúðu ekki sínum eigin eyrum! Ég
get varla trúað Jm'! Hvernig gátu þeir
þolað sársaukann og líka verið
glaðir?
Þarna getið Jjið séð ávöxt sem Guð
getur framkallað í sínu fólki. Fanga-
vörðurinn varð mjög undrandi.
Þegar jarðskjálfti varð um nóttina og
Páll og Sílas losnuðu úr fjötrunum
reyndu jjeir jafnvel ekki að flýja.
Gleði lærisveinanna í Jesú og heiðar-
leiki að reyna ekki að flýja hafði svo
djúp áhrif á fangavörðinn að hann
bað þá segja sér sannleikann um
hjálpræðið og var skírður þá um
kvöldið.
Helgun í verki
Veldu tvær manneskjur og segðu
jDeim eitthvað sem gerir þig verulega
glaðan. Segðu: „Þið vitið, eitt af því
sem gerir mig mjög glaða(n) er ...
...............1“
Uppfærsla og umræður
Hvers vegna eru englar svo glaðir
þegar syndari iðrast?
Ljúktu þessari setningu: Eg gœti
verib hamingjusamari ef...
Ávaxtarpróf
Er ég GLAÐUR (GLÖÐ) í bragði,
jafnvel þegar ég hef átt erfiðan dag?
(merktu við eitt) ..... aldrei
....sjaldan....stundum......oft.
24
AðventFréttir