Aðventfréttir - 01.04.1995, Síða 27
Miðvikudagur
„Ávöxtur
andans
er...
gæska
[og]...
mildi.“
Minnisvers
Lk 6.35: „Elskið óvini y'óar og gjöríd
gott og lánið án þess að vœnta nokkurs í
staðinn, og laun yðar munu verða mikil,
og þér verða börn Hins hœsta, því að
hann er góður við vanþakkláta og
vonda. “
Biblíusaga -
Ég kom viö þig síöast
Eg hef verið að lesa um ýmsa
konunga og stjórnendur í heim-
inum. Það er einkennilegt - mér
sýnist að því meira vald sem stjórn-
endur hafa, þeim mun grimmari
verði þeir. Þeir nota vald sitt til að
neyða skoðunum sínum upp á fólk.
Þeir beita lögum, lögreglu, leyni-
þjónustu ogjafnvel herjum.
Eg fann eina stóra undantekn-
ingu. Það er maður sem hafði meira
vald en nokkur annar konungur í
mannkynssögunni, en hann fór spar-
lega með það. Hann hlýtur sannar-
lega atkvæði mitt sem besti og mild-
asti konungur sögunnar.
Þið vitið nákvæmlega um hvern ég
er að tala. Lfm hann, sem er konung-
ur alls, Jesú Krist.
Athugið hvernig minnisvers
dagsins í dag segir að hann hafi jafn-
vel sýnt kærleika „vanþakklátum og
vondum.“ Okkur finnst auðvelt að
vera mildur við gott fólk, en hversu
mild erum við við vonda og
vanþakkláta?
Mér þykir vænt um söguna í
Markúsarguðspjalli 5.22-43. Sam-
komustjóri í samkomuhúsi Gyðinga,
Jaírus að nafni, hafði kropið fyrir
framan Jesú og beðið hann að lækna
dóttur sína. Jesús féllst á að fara
heim til mannsins. Jesús þurfti ekki
bíl eða strætisvagn til að komast
þangað - í fyrsta lagi var slíkt ekki til
fýrir 2.000 árum, og í öðru lagi ýtti
mikil mergð fólks honum áfram.
Hefur þú nokkurntíma verið í
mannþyrpingu? Kannski hefurðu
verið á útisamkomu eða niðri í bæ í
Reykjavík á sautjánda júní þar sem
fólk þyrptist þúsundum saman. Þú
rígheldur í hendur foreldra þinna og
reynir að láta mannþröngina ekki
slíta þig frá þeim. Manstu hvað þér
létti mikið þegar pabbi þinn eða
stóribróðir tók |:>ig loksins upp og
hélt þér svo fast í fanginu að engin
hætta var á að þú yrðir viðskila við
fjöldkyldu þína?
Nú skulum við aftur snúa okkur
að mannfjöldanum í kringum Jesú.
Þessi múgur hrinti og togaði eins og
þúsund maurar sem eru að reyna að
bera sama brauðmolann.
Allt í einu stansaði Jesús og spurði:
„Hver kom við mig?“ En næstum
enginn tók eftir því sem hann sagði
|)á stundina. Sennilega hafa þeir
haldið að hann væri að gera að
gamni sínu, þar sem svo margir
höfðu snert hann.
Bróðir minn, systir mín og ég
fórum stundum í leik í aftursæti
bílsins okkar á ferðalögum. Eitt
okkar snerti annað og sagði stríðn-
islega: „Eg kom við þig síðast!“ Það
var merki um að hitt ætti að svara:
„Nei, ég kom við þig síðast!“ Þessi
litli leikur magnaðist brátt upp í að
verða áflog þangað til mamma eða
pabbi stöðvaði bílinn, dró ímyndað
strik á sætið og sagði að við mundum
ekki geta sest niður í viku ef við
færum yfir þetta strik. Venjulega
hlýddum við.
En spurning Jesú: „Hver kom við
mig?“ tengist ekkert neinum leik.
Orð hans voru þrungin mildi. Þú
skilur, Jesús hafði fundið græðandi
mátt flæða gegnum líkama sinn til
einhvers annars.
Nú var hafin leit að manneskjunni
sem hafði meðtekið þennan kraft.
Hver var það? I mannþrönginni stóð
kona sem hafði þjáðst af blæðingum
í 12 ár.
Dag einn fór ég út til að hlaða
brenni. Einn af bútunum rann til og
skrámaði á mér litla fingurinn. Eg
komst í uppnám út af meiðslinu. Það
var ekki bara sársaukinn sem ég
amaðist við, heldur blóðið sem
draup úr sárinu. Og sáraumbúð-
irnar um fingurinn verða til þess að
ég ýti tveim stöfum á tölvunni niður í
staðinn fýrir einn. En óþægindi mín
virðast smávægileg miðað við
óþægindi konunnar sem hafði haft
blæðingar í 12 ár.
Þessi þjáða kona var búin að eyða
öllum sínum peningum í lækna.
Hún var búin að ntissa alla von, uns
hún heyrði um mildi og góðvild Jesú
sem læknaði alls kyns kvilla án
endurgjalds.
Vandinn var að hún skammaðist
sín svo mikið fyrir sjúkdóminn sem
hrjáði hana að hún vissi ekki
hvernig hún gæti nokkurntíma
fengið sig til að segja Jesú frá
honum. Henni datt þá snjallræði í
hug. „Eg snerti bara klæði hans, þá
batnar mér.“
Það dugði! Tafarlaust! Jafnskjótt
og hún gat teygt sig gegnum man-
nþröngina og snert faldinn á kyrtli
hans varð hún heil. Blæðingin stöðv-
aðist. Hún var eins og ný manneskja.
Kristur litaðist um til að sjá hver
þetta hefði gjört, en konan sem vissi
hvað fram við sig hafði farið, kom
hrædd og skjálfandi, féll til fóta
honum og sagði honum allan
sannleikann. Jesús sagði við hana:
„Dóttir, trú þín hefur bjargað þér.
Far þú í friði og ver heil meina
þinna." (Mk 5.32-34)
Jesús auðsýndi mildi og góðvild.
Hann gefur sama ávöxt öllum þeim
sem helga sig honum.
Uppfærsla
Verkefni þitt í dag er að skrifa
frásögn um nemendahóp sem leikur
sér að því að stríða minni börnum.
Sumir kristnir nemendur skólans
vilja hefna fýrir það, en í staðinn
stofna þeir til góðvildarsamtaka.
Helgun í verki
Stofnaðu góðvildarsamtök í hverfi
þínu eða skóla.
Hugleiðing til umræðu
Er erfitt að vera góð(ur) við ein-
hvern sem er leiðinleg(ur) við þig?
Nefndu og rifjaðu upp sögur um
Biblíupersónur sem launuðu illt með
góðu.
Ljúktu við þessa seningu: Það er
auðvelt að vera mildur við.......
Ávaxtarpróf
Er ég GÓÐUR/MILDUR við þá
krakka sem eru seinni til eða min-
nimáttar en ég?
(merktu við eitt) ...aldrei
..sjaldan..stundum...oft.
AðventFréttir
27
Fyrir börnin