Aðventfréttir - 01.04.1995, Qupperneq 30

Aðventfréttir - 01.04.1995, Qupperneq 30
Fyrir bömin Hugleiðing og umræða Hvaða aðferð notaði Jósef til þess að vera Guði trúr? Hvaða freistingar gætirðu staðist til að þóknast Jesú? Ljúktu við þessa setningu: Ef ein- hver reynir wbfá mig til ab prófa fíkniefni eba áfengi, cetla ég ab .......... Ávaxtarpróf Hef ég SJÁLFSSTJÓRN jafnvel þótt ég hafi ástæðu til að vera reið(ur)? (merktu við eitt) ....aldrei ...sjaldan....stundum...oft. Hvíldardagur „Ávöxtur andans er... trúfesti.“ Minnisvers Heb 11.8: „Fyrir trú hlýddi Abraham er liann var kallabur og fór burt til stabar sem hann átti ab fá til eignar. Hann fór burt og vissi ekki hvert leibin lá. “ Biblíusaga - Abraham, var hann trúíastur þótt hann skorti stundum trú? Trúfastur. Eg veit að fólk segir hann vera það. En stundum finnst mér trúlítill vera betur við hæfi. Við skulum gefa stig: trúfastur eða skortur á trú. I upphafi ævi sinnar bjó Abraham á stað þar sem mjög fátt þeirra tíma fólks trúði á lifandi Guð, Jahve. Flestir dýrkuðu skurðgoð og hluti í náttúrunni. Abraham trúði ájahve og tilbað hann. Ædi trúfesti fái ekki eitt sdg. STIG TRÚFESTI I SKORTUR Á TRÚ 0 Næst segir Biblían frá því er Guð hafi komið til Abrahams og boðið honum að flytja til fjarlægs lands. I því landi muni Guð gefa honum eignir og gera afkomendur hans að mikilli þjóð. Nú er Abraham hálfátt- ræður - nokkuð gamall tíl að standa í búferlaflutningum! En Abraham trúir og tekur sig upp. Það er trúfesti! STIG TRÚFESTI 2 SKORTUR Á TRÚ 0 Hungursneyð herjar á Kanaans- land eftir að Abraham sest þar að með hjarðir sínar. En í Egyptalandi er matur. Svo fjölskyldan flyst um stundarsakir til Egyptalands og dvelur þar þangað til hungursneyðin er liðin hjá. En þá kemur upp vandamál. Sara, kona Abrahams, er fegurðardís, og Faraó, einvaldur Egyptalands, er veikur fyrir fögrum konum. Abraham tekur til sinna ráða. „Sara,“ segir hann, „segðu engum að þú sért konan mín. Segðu að þú sért systir mín.“ Að hugsa sér! Reyndar var hún sysdr hans, að minnsta kostí hálfsystir. En samt er hér blekking á ferðum. Abraham óttast nefnilega að Faraó mundi koma sér fyrir kattarnef til að fá konu hans, svo hann kynnti Söru sem systur sína. STIG TRÚFESTI 2 SKORTUR Á TRÚ 1 Þetta reyndist ráð sem dugði að mestu. Þegar Faraó heyrði að Sara sé systir Abrahams tekur hann hana í höllina til sín án þess að lífláta Abraham. Faraó taldi sig hafa fundið sér enn eina fyrirmyndarkonu þang- að til undirleg atvik fóru að gerast í höllinni. Fólk veiktist. Guð virtist leggja bölvun á heimili konungs. Faraó var ekki skemmt þegar hann heyrði sannleikann, að Sara væri kona Abrahams. Hann rak Abraham burt úr landinu með allt sitt hafurtask. Hann lét hann jafnvel fara í fylgd hermanna til að hann færi alveg örugglega. Skömmu eftir þetta atvik gerðu fjórir konungar innrás og tóku Lot, bróðurson Abrahams, ásamt allri fjöl- skyldu hans herfangi. Innrásarher- irnir tóku auk þess margar borgir herskildi. Auðvitað veitti Abraham árásar- seggjunum eftirför með þjálfuðu liði sínu og leysti bróðurson sinn, vini hans og fjölskyldu úr haldi, auk allra hinna stolnu auðæva þeirra. Öllum til undrunar neitaði Abraham að fara að venju þessa tíma og leggja hald á herfangið. I staðinn skilaði hann upphaflegum eigendum því öllu. Það bar mikilli trúfesti vitni STIG TRÚFESTI 3 SKORTUR Á TRÚ 1 í næstu sögú um Abraham birtist Guð honum í sýn og minnir hann á að niðjar hans skuli verða mikil þjóð. Abraham stingur upp á því að þar sem hann eigi engin börn gæti ráðs- maður hans, Elíeser, orðið forfaðir allra þessara niðja. Ekki nema það þó! Hér verður vantrúin víst enn að fá stig. STIG TRÚFESTI 3 SKORTUR Á TRÚ 2 Biblían segir okkur síðar að Abraham haldi að Guð muni gefa sér son. En Sara efast um að fyrirheitið um börn rætist. Hún fer til manns síns og segir: „Af hverju áttu ekki barn með ambáttinni minni, Hagar hinni egypsku?“ Með því að segja þetta er hún í rauninni að gefa í skyn að Guði hafi skjátlast. „Hann gefur mér ekki barn. Þú ættir því að leggja Guði lið, Abraham." Abraham sam- sinnir því að Guð þurfi aðstoð til að láta fyrirheit sitt rætast, og hann tekur Hagar sér fýrir konu. Þar fór nú verr! Þetta jafnar metín. STIG TRÚFESTI 3 SKORTUR Á TRÚ 3 Eftir að Ismael, sonur Hagar, fæddist, reiðist Sara af því að henni finnst Hagar ambátt sín njóta of mikillar athygli. Sara biður Abraham leyfis að reka Hagar og barnið burt. I stað þess að framfylgja því sem rétt er samþykkir Abraham að hrekja son sinn og Hagar burt af heimilinu. Og hann lætur Söru taka að sér þetta ranglætisverk. STIG TRÚFESTI 3 SKORTUR Á TRÚ 4 Enn kemur Guð til Abrahams og minnir hann á að hann og Sara eigi að eignast mikinn fjölda afkomenda. Nú gengur yfir Abraham. „Hvernig getur hundrað ára gamall maður eignast son með níræðri konu?“ Hann fer að skellihlægja." STIG TRÚFESTI 3 SKORTUR Á TRÚ 5 Næst segir Guð Abraham að hann hyggist tortíma hinum ranglátu borgum Sódómu og Gómorru. Abra- 30 AðventFréttir

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.