Heimilisritið - 01.06.1950, Blaðsíða 16
„vandlátar“ og bíða þangað til
betri tækifæri buðust.
Um það bil sem stúlkur af
þessari kynslóð fóru að þvo af
sér sokkana sjálfar, var þeim
sagt, að enda þótt kynlífið gæti
verið „syndsamlegt“, væri ekki
loku fyrir það skotið, að það
gæti líka verið’ skemmtilegt; og
eins, ef „blind livöt mannsins“
krefðist kynlífs, gæti „blind hvöt
konunnar“ alveg eins krafizt
þess. Einhvernveginn er það svo,
að frá sjónarmiði nútímafólks
var virðingin og áróðurinn l’yrir
„syndinni“ af hálfu öfgamanna
þeirra tíma all-barnaleg, enda
þótt henni væri ætlað að verða
til góðs eins.
Kreppuárin ollu enn einni
breytingu á viðhorfi fólks til sið-
ferðis. A árunum eftir 1930 urðu
þau mál, er lutu að' kynferðileg-
um efnum, tiltölulega lítilvæg í
samanburði við hin brýnu efna-
legu dægurmál alls þorra fólks.
Almenningur hafði um allt ann-
að að hugsa en það, hvernig hver
og' einn leysti kynferðismál sín.
Allt þetta tímabil fór frjáls-
lyndi í vöxt í siðferðilegum efn-
um. Mittislaus baðföt kvenna og
sundskýlur einar fyrir karla
komust í tízku án þess nokkurt
uppþot yrði. Glannamiklar aug-
lýsingar á almannafæri, sem
lögðu áherzlu á líkamsvöxt fag-
urra stúlkna, ekki hvað sízt
sokkaauglýsingar með' myndum
af rennilegum fótleggjum, blasti
hvarvetna við augum karl-
mannsins. — Hlutir varðandi
kvenlegt hreinlæti voru nefndir
opinberlega á svo hispurslausan
hátt, að önnnur þessa fólks hefðu
snúið sér við í gröfinni, ef þær
hefðu mátt.
Jöfnum liöndum gerðu kvik-
myndirnar og útvarpið allt sem
það gat til þess að viðurkenna
og benda á aukinn þátt kynlífs-
ins í daglegu lífi fólks. Og úr því
að allt þetta átti sér stað', hvers
vegna skyldi ógifta konan elcki
hafa fengið sinn skerf al' þeim á-
hrifum, sem þe'tta olli?
Jafnframt átti almennur á-
hugi á sálarfræði sinn þátt í því,
að kynferðismál hlutu aðra með-
ferð en áður. Setningar úr fræð-
um Freuds ruddu sér braut inn
í daglegar umræður fólksins, og
örfáar ógiftar konur mótmæltu
því hiklaust, að bæling kynhvat-
anna hefði nokkur líkamlega eða
andlega slæm áhrif.
En á öllu þessu var nokkur
hængur — eins og svo oft vill
vera, þegar eitthvað virðist sem
auðveldast við fyrstu sýn.
Vandamál kynlífsins voru ekki
úr sögunni, hvað sem öðru leið.
Lítt rannsakaðir eiginleikar
skutu enn upp kollinum og
gerðu niðurstöður sérfræðing-
anna hæpnar. Þeir sem predik-
14
■HEIMILISRITIÐ