Heimilisritið - 01.06.1950, Blaðsíða 52

Heimilisritið - 01.06.1950, Blaðsíða 52
þér mat, þegar þú varst lasin. Hitt gat ég með hjálp símskrár- innar. Eg sá strax, þegar við sát- um hvort gegn öð'ru og borðuð- um, að þú þarfnaðist aðstoðar. Ég sá á döprum augum þínum, að þú áttir enga góða vini, sem þú gætir fengið til að hringja á því sálfræðilega rétta augna- bliki“. „Og svo veittir þú liðsinni þitt. . .. Robert var ástfanginn upp fyrir eyru þegar hann varð að fara“. „Það ætti hann að láta ógert“. Alan þrýsti henni að' sér. „Þú átt nefnilega ekki að hitta hann oftar. Þegar hann hringir, segír þú honum að ómaka sig ekki oft- ar“. „Hvers vegna?“ Kaja var blóð- rjóð. Hún gaf pvlsumanninum hornauga, og hann sneri sér hæ- versklega undan. „Af því að ég er sjálíur orð- inn ástfanginn af þér. Og Ro- bert er enginn maður handa þér“. Hann skildi ekki, hvers vegna Kaja hló að þessari athugaseind, en hann skildi hana, er hún teygði andlitið upp móti honum. Hún var kysst umsvifalaust. ENDIB SNJALLIR HÚSBÆNDUR Landkönnuðurinn og stjórnvitringurinn T. Conyn-Patt, segir eftirfar- andi sögu: „Ég spurði þjóninn minn að því, hvers vegna hann og hinir svörtu bræður hans teldu Berkeley fulltrúa (í Uganda) svo undraverðan. Hann svaraði mér því, að kvöldið áður hefðu þeir venð að ræða fram og aftur um miklu mennina, og hefðu skoðanir orðið ærið skiptar. Einn hefði sagt, að enginn gæti staðið húsbónda hans á sporði, því hann gæti náð öllum tönnunum út úr sér í einu og fest þær svo aftur á augabragði upp í munninn aftur. „Ekki kalla ég það mikið," sagði gamall Núbíumaður. „Allt hárið hvarf af höfði húsbónda míns, þegar sólin var hæst á lofti, en kom svo aftur, þegar kvöldkulið kom.“ „Mjög furðulegt,“ svaraði soðkarl einn frá Sómalí. „En þegar ég var ungur, þá sá ég húsbónda föður míns reka hníf á kaf í fótinn á sér án þess að kveinka sér. Og eftir langa göngu einn daginn, tók hann fótinn alveg af sér og notaði hann fyrir kodda undir höfuðið." En svo sagði þjónn Berkeleys fulltrúa þær stórkostlegu frétrir, að þeg- ar húsbóndi hans legði sig ril svefns, þá tæki hann út úr sér augað og legði það á borðið. Þetta reið baggamuninn og það var þegjandi sam- þykkt, að hann væri snjallastur allra miklu mannanna." 50 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.