Heimilisritið - 01.06.1950, Blaðsíða 23

Heimilisritið - 01.06.1950, Blaðsíða 23
hann í stólinn til að tala yfir hin- um mikla söfnuði. Hann hafði gleymt ræðunni á náttborðinu í prestssetrinu, þar sem hann ætlaði að gista, svo að hann varð að tala blaðalaust. En það gerði svo sem ekkert til, því að kirkjugestirnir voru með allan hugann við að telja saman skot- silfur sitt og leggja niður fyrir sér, hvernig þeir ættu að verja því á inarkaðnum, svo að menn voru ekki að gera sér neina rellu út af ræðusnilld prestsins. Þegar svo séra Jósep Dagnet hafði lokið þessu verki, tók Jiann á sig náðir og svaf svefni hinna réttlátu án þess að láta á sig fá glampana frá hátíðablysunum og skrautlýsingunni, sem léku um svefnherbergisþilið hjá hon- um, eða blástur lúðrasveitarinn- ar á torginu skammt frá. Presturinn hafði tíu franka og farmiða til baka í vasanum, og þó að hann hefði ánægju af að sjá glaðleg andlit í kringum sig, þá fannst honum lítið gaman að öllum gauraganginum á mark- aðnum, og klukkan tíu um morg- uninn kvaddi hann gestgjafa sinn og stikaði fram hjá fánum og marglitu glysi niður á aðal- torgið til þess að ná í áætlunar- bílinn. Bílnum seinkaði um hálftíma. Hann hafði verið á vesturvíg- stöðvunum 1918 og hagaði sér HEIMILISRITIÐ þess vegna með þeirri duttlunga- semi, sem frægðinni fylgir of't. Fólkið þyrptist saman fyrir framan bílinn og ætlaði alveg að æra bílstjórann með góðum ráð- leggingum og gamanyrðum, svo að hann hamaðist einu sinni enn í örvæntingu sinni á sveifinni, og þá vaknaði stríðshetjan loksins af svefni. En á meðan þessu fór fram, gekk séra Dagnet frá einni búð- inni til annarrar og leit á varn- inginn. Þar voru fataplögg, kex, sælgæti, gosdrykkir og spýtu- brjóstsykur, gjafamunir og þjóð- legir minjagripir, sem búnir voru til í París og Japan. Að lokum hitti hann djöfulinn í dulargervi við einn sölupallinn. Þar var sem sé Alzani nokkur frá Provenee, sem hafði fundið upp hinn undraverða skóáburð „SAAM“ (Société Anonyme Alzani-Mont- didier), og var hann nú að koma framleiðslu sinni í verð. Þessi skógljáasnilhngur var með stór- an gljáfægðan skó á annarri hendinni en veifaði burstanum með hinni og talaði af miklum móði um vöru sína. Fólkið hliðr- aði til fyrir prestinum, svo að hann þokaðist fram fyrir mann- þröngina, og beindi hinn þá máli sínu einna helzt til hans. „Þessi áburður eykur endingu skónna um helming“, sagði mangarinn. „Sé honum núið vel 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.