Heimilisritið - 01.06.1950, Side 40

Heimilisritið - 01.06.1950, Side 40
því fólki, sem kemur til þess að tala við mig.“ „Sjálfsagt," sagði ég. „Ég vona að ungfrú Tyler hafi ekki ónáðað ---------“ „Síminn yðar er að hringja," sagði A. J. Ég hafði mikið að gera, allan daginn. Um kvöldið hringdi ég til Lindu. Hún var ekki heima. Klukkan átta morguninn eft- ir sat ég við skrifborð mitt. Tíu mínútum síðar kom A. J. Hann blístraði fjörugt lag og var með nellíku í barminum. „Carson,“ sagði hann og sendi mér angur- blítt augnatillit, „minnið mig á að hitta herra Zybisko klukk- an þrjú.“ „Er það viðskiptavinur?“ „Hm!“ sagði hann. „Ég held — hm — að hann kalli sig nuddara. Maður á mínum aldri verður að hugsa um vaxtarlag- ið.“ Hann leit á mig geislandi augum. „Ekki — hm — af því að ég sé feitur. Alls ekki.“ „Nei, alls ekki,“ endurtók ég. „En maður verður að vera vel vakandi. Maður í minni stöðu, forvígismaður. Það erum við, sem gefum tóninn.“ Ég sagði ekkert. Andlit A. J. varð ennþá rauðara en það var frá náttúrunnar hendi. „Carson, ef þér hefðuð hugsað yður að fara í brúðkaupsferð, hvert mynduð þér þá fara?“ „Tja,“ sagði ég. „Til Bermuda eða — en hvað! Þér hafið þó ekki í hyggju að gifta yður! Nei, ekki þér!“ „Hvers vegna ekki? Menn gifta sig á hverjum degi.“ „Jæja, svo að það voruð þér, sem Linda var úti með í gær,“ sagði ég. „Skammist þér yðar! Þér eruð nógu gamlir til þess að geta verið afi hennar.“ „Carson,“ öskraði hann, „þér voruð ráðnir hingað sem verzl- unarmaður, en ekki sem sið- ferðispostuli.11 Hann stormaði inn í skrifstofuna sína og skellti hurðinni á eftir sér. Klukkustund síðar kallaði A. J. á mig inn til sín. Mig tók strax að gruna sitt af hverju, því að hann kallaði mig Harry og bauð mér vindil. „Harry,“ sagði hann, og það skein í gulltennurnar. „Ég er dá- lítið órólegur út af deild okkar í Chicago. Ég vildi gjaman að þér færuð þangað og lituð eft- ir bixinu þar. Ég hef pantað svefnvagn handa yður þangað annað kvöld. Gefið yður bara góðan tíma!“ Hann sagði þetta með heimsins mesta ærlegheita- svip, Júdasinn sá ama! „Einmitt það,“ sagði ég og reyndi að stilla mig. Ég var stunginn í bakið, búinn að vera! ... Það hélt hann. Ég fór beina leið í ritstjóm- 38 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.