Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.11.2013, Síða 14

Fréttatíminn - 15.11.2013, Síða 14
Í stjórnarsáttmála Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins er kveðið á um stofnun sérstaks ríkisolíufélags. Þó er skýrt kveðið á um að olíufélag ríkisins eigi ekki að koma að neinu leyti að neinni olíu- vinnslu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lét svo um mælt á atvinnumálaráðstefnu á Hallormsstað á dögunum að olíuævintýri á Drekasvæðinu og norðurslóðarmál væru efst á lista í forgangsröðun ríkisstjórnar- innar. En að mati forsætisráðherra mun lánstraust Íslands á alþjóðavettvangi batna við það eitt að tilburðir séu hafðir í frammi til að undirbúa leit. Með öðrum orðum: Undirbúningur fyrir olíuvinnslu, einn og sér, skapar þá ímynd að fjárhagslegar framtíðarhorfur landsins séu bjartari og þar af leiðir að lánstraust er betra á alþjóða- vettvangi. Allt þetta hljómar kunnuglega í eyrum meðal Íslendings sem á fáum árum er orð- inn sérfræðingur í óáþreifanlegum hliðum nútíma efnahagskerfis. Loftpeningum skal dælt í efnahagskerfið svo að heimurinn halli og fé streymi til Íslands. Til þess arna á að setja á fót ríkisstofnun sem hefur yfir- umsjón með framleiðslu lofts sem notað er í loftpeningana. Eins konar loftstofnun. Þeim sem kynntu sér áform forsætisráð- herra um að ganga hart fram í samningum við erlenda vogunarsjóði og nota féð sem þannig fengist til að leiðrétta skuldastöðu heimilanna kemur þetta líklega spánskt fyrir sjónir. Er ekki ríkisolíufélag frekar vinstrisinnuð hugmynd?, spyr sennilega einhver. Kannski rétt er að rifja upp að Framsóknarflokkurinn á sér rætur í sósíal- isma, harka í samskiptum við auðvaldsöfl er frekar vinstrisinnað kosningaloforð og ríkisstofnun sem ekki er ætlað að gera neitt, hljómar það ekki svolítið eins og sovésk pótemkíntjöld? Hvað sem því líður er rétt að minna á að olíuvinnsla og loft eiga ekki samleið. Nánar tiltekið er mannkyninu nauðsyn að kúvenda í orkumálum sínum ef það ætlar að lifa af. Um það deila vísindamenn ekki lengur, hið raunverulega loft hins raun- verulega loftslags lýgur ekki. Í því sam- hengi eru „tækifæri“ tvíbent, svo ekki sé meira sagt. Ofurfellibylurinn sem fór yfir Filippseyjar á dögunum er að mati fremstu loftslagsvísindamanna heimsins afleiðing af loftslagsbreytingum af mannavöldum og má vænta margra slíkra í framtíðinni. Þess má vænta að þegar olíufélag ríkis- ins hefur laðað lánsfé til Íslands verði féð notað til að leita að olíu í raun og veru því tæplega verður látið duga að tala upp vænt- ingar erlendra fjárfesta með loftkenndum fyrirheitum. Sú leit ein og sér hefur áhrif á loftslag í heiminum til hins verra. Verði borað hefur það ekki aðeins eyðileggjandi áhrif á lífríki sjávar, sem er ein af grunn- stoðunum að íslensku atvinnulífi, heldur leggur Ísland lóð á vogarskálar þeirra skemmdarverka sem gera jörðina mann- inum óbyggilega. Mikið væri óskandi að allt velmeinandi fólk gæti sest niður eitt augnablik, dregið djúpt andann og hugsað í stað þess að smíða loftkastala. Hermann Stefánsson, rithöfundur Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. H Hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar sem tekið hefur til skoðunar ríkisútgjöld með það að markmiði að hagræða, forgangsraða og auka skilvirkni stofnana ríkisins hefur skilað tillögum sínum. Þeirra hafði verið beðið enda aðkallandi að forgangsraða svo þau verkefni sem almenn samstaða er um njóti forgangs, fái hann. Þar ber heilbrigðis- kerfið hæst. Ágreiningslaust er að þar er átaks þörf. Samstaða er einnig um viðhald öflugs mennta- kerfis. Það eru einkum hag- ræðingartillögur hópsins sem horft er til. Þær taka til helstu þátta rekstrar og allra stærri þjónustu- og stjórnsýslukerfa ríkisins. Þar er af nógu að taka og mörg matarholan enda áætlað að útgjöld ríkisins nemi 587,1 milljarði króna á næsta ári. Það er gríðarleg yfirbygg- ing hjá fámennri þjóð. Víða má hagræða og verður ekki hjá komist enda er ríkissjóður svo skuldsettur að vaxtabyrði er verulega íþyngjandi. Hún er áætluð 85 millj- arðar króna á yfirstandandi ári. Lögð er áhersla á kerfisbreytingar fremur en beinar niðurskurðartillögur. Það er gagn- legt og stuðlar að varanlegri hagræðingu. Þegar er unnið að ýmsum hagræðingartil- lögum í ráðuneytunum en það er á ábyrgð einstakra ráðherra og ráðuneyta að taka við- bótartillögur hagræðingarhópsins til skoðun- ar – og eftir atvikum framkvæma þær. Sama gildir um Alþingi og stofnanir þess. Umræða um tillögurnar þarf að fara fram og ekki munu þær allar ná fram að ganga – enda ekki hafnar yfir gagnrýni. Réttilega er hins vegar nefnt að það er ekki nóg að leggja fram góðar tillögur. Þær þarf að framkvæma. Meðal helstu áhersluatriða hópsins er sameining stofnana sem vinna á svipuðu sviði, svo draga megi úr kostnaði – og að aðrar sem hægt er að komast af án verði lagðar niður en lögbundin verkefni þeirra færð annað. Meginreglan verði að ákvarð- anir um ný útgjöld takmarkist við það sem óhjákvæmilegt er – og að ríkið leggi ekki í framkvæmdir án þess að sýnt sé fram á rekstrarsparnað eða augljósa samfélagslega arðsemi. Þá verði unnið skipulega að því að draga úr ríkisábyrgð, sem varðar Lands- virkjun, Íbúðalánasjóð og Farice. Hagræðingarhópurinn leggur til að utan- ríkisráðherra láti meta þörf fyrir sendiskrif- stofur, umfang þeirra og kostnað með það að markmiði að draga úr kostnaði. Þá verði metið hvort selja megi dýrar sendiráðs- eignir ytra og finna ódýrari í staðinn. Lítil þjóð verður að sníða sér stakk eftir vexti. Eðlilegt er að skoðuð verði gaumgæfilega tillaga sem snýr að mennta- og menningar- málaráðherra um að háskólum verði fækkað með sameiningu eða að samstarf milli þeirra verði aukið. Þannig nýtist betur það fé sem lagt er til háskólakerfisins. Sama gildir um þá tillögu að námsárum fram að háskóla- námi, þ.e. í grunn- og framhaldsskóla, verði fækkað. Vinna að því markmiði er raunar hafin í menntamálaráðuneytinu. Þá leggur hagræðingarhópurinn til að ýmsar stofn- anir ráðuneytisins verði sameinaðar sem og yfirstjórn fjölmargra menningarstofnana, starfsemi Ríkisútvarpsins endurskoðuð og Fjölmiðlanefnd lögð niður. Sama gildir um innanríkisráðuneytið þar sem tillögur eru meðal annars um fækk- un lögregluliða og sýslumannsembætta. Fjölmargar hagræðingartillögur snúa að fjármála- og efnahagsráðuneytinu, meðal annars að skoðaðir verði kostir þess að sam- eina starfsemi embætta ríkisskattstjóra og tollstjóra og hið sama gildir um Seðlabank- ann og Fjármálaeftirlitið. Þá er, auk annars, lagt til að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður og verkefni flutt til fjármálaráðuneytis- ins. Þá verði stefna mótuð í sölu ríkiseigna. Hvað félags- og húsnæðismálaráðuneytið varðar má nefna, auk sameiningar stofnana og húsnæðislánakerfis án ríkisábyrgðar, til- lögu um að bóta- og skattkerfið verði byggt upp með þeim hætti að það borgi sig að vera á vinnumarkaði. Auk sameiningartillagna vegna stofnana sem heyra undir sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðuneytið er lagt til að greiðslum til Bændasamtaka Íslands verði hætt. Sameining margra atvinnuþróunar- sjóða er heyra undir iðnaðar- og viðskipta- ráðherra er lögð til og hið sama gildir um margar stofnanir umhverfis- og auðlindar- áðuneytisins. Hagræðingarhópurinn færir Alþingi og ríkisstjórn brýn úrlausnarefni svo gera megi ríkisbúskapinn sjálfbæran til lengri tíma. Tillögur hagræðingarhóps Þjóðin sníði sér stakk eftir vexti Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Ríkisolíufélag Loft Mikið væri óskandi að allt velmeinandi fólk gæti sest niður eitt augnablik, dreg- ið djúpt andann og hugsað í stað þess að smíða loftkastala. 14 viðhorf Helgin 15.-17. nóvember 2013
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.