Fréttatíminn - 15.11.2013, Side 22
kynntu þér
málið!
SIÐMENNT
w w w . s i d m e n n t . i s
Þann 3. maí fékk Siðmennt formlega skráningu
sem veraldlegt lífsskoðunarfélag
Skráðu þig í félagið á www.sidmennt.is
– sk ráð l í f s skoðunar fé lag
Siðmennt
A
llar fjölskyldur eru
einstakar en fullyrða
má að fáar hafa þær
reynt jafn mikið á
stuttum tíma og fjöl-
skylda ein við Bjargartanga í Mos-
fellsbæ. Hjónin glímdu við ófrjó-
semi í fimm ár en eignuðust loks
þríbura með tæknifrjóvgun. Einn
þeirra dó á meðgöngunni. Nokkr-
um árum síðar eignuðust hjónin
tvíbura og fátt virtist standa í vegi
fyrir hamingjunni. Í mars greind-
ist móðirin, Katrín Björk Baldvins-
dóttir, með brjóstakrabbamein og
í ágúst lenti faðirinn, Eyþór Már
Bjarnason, í alvarlegu vélhjóla-
slysi þar sem allur neðri hluti and-
lits hans brotnaði. Katrín er nú
laus við krabbameinið og Eyþór
er í árangursríkri endurhæfingu á
Grensásdeild. Viðhorf hjónanna til
lífsins er vægast sagt einstakt og
þau líta svo á að þau séu einstak-
lega heppin.
Þrír mánuðir eru frá slysinu
þegar Eyþór tekur á móti mér
á heimili sínu. Yngsta dóttirin,
Kristíana Svava sem er fædd 2011,
er veik heima en amma hennar,
sem hefur mikið haldið til hjá
þeim er á staðnum til að aðstoða.
Þó ég hafi ekki hitt Eyþór áður sé
ég að andlit hans hefur orðið fyrir
miklu skakkaföllum. „Ég missti
alveg sjón á hægra auga en ég er
með svona 60 til 70 prósenta sjón
á vinstra auga. Það hefur farið
batnandi og ég vona að það batni
meira. Ég þarf að fara að mæta í
vinnuna,“ segir hann og hlær. Í 22
ár hefur hann starfað á dekkja-
verkstæði og smurstöð N1 í Mos-
fellsbæ og nú er fyrsta dekkja-
skiptavertíðin sem hann missir af
í áraraðir. „Þetta er alveg ferlegt,“
segir Eyþór sem augljóslega nýtur
starfsins en hefur heldur ekki
misst húmorinn.
Katrín kemur heim nokkrum
mínútum síðar, beint úr Ljósinu –
endurhæfingar- og stuðningsmið-
stöð fyrir krabbameinsgreinda.
Við setjumst saman niður í stof-
unni og við hlið mér blasir við upp-
ábúið rúm. „Systir hennar hefur
sofið í þessu rúmi þegar hún gistir
hér,“ segir Eyþór til skýringar.
Það eru margir sem leggja sitt af
mörkum til að hjálpa fjölskyldunni
að láta daginn ganga upp.
Haldið sofandi í öndunarvél
Slysið átti sér stað á Þingvallavegi
í Mosfellsdal þann 11. ágúst. „Ég
keyrði aftan á bíl. Ég man ekkert
eftir þessum bíl og ekkert eftir
þessum degi. Ég man heldur eigin-
lega ekkert eftir gjörgæslunni,“
segir Eyþór en þar var hann í
18 daga. Þegar slysið varð var
hann með opinn vélhjólahjálm án
kjálka.. „Það brotnaði bara allur
neðri hluti andlitsins. Kinnbeinin
brotnuðu og það er búið að setja
í mig járn báðum megin. Bitið er
enn alveg vitlaust. Ég finn vel til
í þessu ennþá,“ segir Eyþór og
strýkur létt yfir hökuna og vinstri
kinn. Honum var haldið sofandi í
öndunarvél til að byrja með og fór
hann í ellefu klukkustunda aðgerð
á andliti. Katrín var á spítalanum
meðan hann var í aðgerðinni sem
lauk klukkan hálf fimm að morgni.
„Áður en ég sá hann þá ímyndaði
ég mér það versta. Þó hann væri
mjög bólginn þá sá ég samt strax
að þetta var hann. Eftir aðgerðina
fór ég beint heim og mætti með
foreldrum mínum á skólasetningu
hjá eldra settinu þá um morgun-
inn,“ segir Katrín og vísar til eldri
barnanna tveggja. Eyþór skýtur
kómískur inn í: „Ég var þá bara
sofandi.“ Auk áverka á andliti
brotnaði Eyþór á úlnlið, rifbeinum
og herðablaði, auk þess sem hann
fékk loftbrjóst. Tæpri viku eftir
slysið var byrjað að vekja hann
nokkra tíma á dag. „Hann man
kannski ekki mikið eftir því þegar
hann var í öndunarvél og gat ekki
tjáð sig,“ segir Katrín. Eyþór segist
muna vel eftir barkaþræðingunni.
„Það sem mér fannst eiginlega
verst við þetta allt að fyrst ég
var svona brotinn þurfti að festa
munninn saman með vír áður en
ég fór í aðgerðina.“ Eiginkonan
rifjar upp þær stundir sem henni
Eyþór Már Bjarnason og
Katrín Björk Baldvinsdóttir
ásamt börnum þeirra;
Baldvin Ásgeiri, Kristíönu
Svövu, Elísabetu Heiðu
og Brynjari Má sem er
fremstur. Ljósmynd/Hari
Pollýanna settist
við hliðina á mér
Eyþór Már Bjarnason lenti í alvarlegu vélhjólaslysi í ágúst.
Eftir slysið þurfti hann að fara í ellefu tíma aðgerð vegna
þess að allur neðri hluti andlits hans var brotinn. Eiginkona
hans, Katrín Björk Baldvinsdóttir, greindist með brjósta-
krabbamein fyrr á árinu en meinið greindist fljótt og hægt
var að fjarlægja það. Mikið hefur því verið lagt á hjónin. Þau
glímdu einnig við ófrjósemi og reyndu í fimm ár að eignast
barn. Með gjafasæði og tæknifrjóvgun varð Katrín ólétt af
þríburum en eitt barnið dó á meðgöngu. Síðan hafa þau
eignast tvíbura og um tíma voru fjögur börn undir fjögurra
ára aldri á heimilinu. Katrín segir að Pollýanna sé komin í
góða þjálfun hjá henni eftir það sem á undan er gengið.
22 viðtal Helgin 15.-17. nóvember 2013