Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.11.2013, Page 24

Fréttatíminn - 15.11.2013, Page 24
„Það er langt síðan ég komst upp á bragðið með að taka 1944 kjötsúpu með mér til Grænlands. Þetta er nefnilega alveg ekta íslensk kjötsúpa, matarmikil og bragðgóð. Svona vinnuferðir eru nokkuð kreandi, það er mikill búnaður sem fylgir ljósmyndun og þess vegna er 1944 kjötsúpan bæði þægileg og hentug. Síðan komst ég að því að grænlenskir ferðafélagar mínir eru sólgnir í hana, sem hefur kosti og galla: Við erum rétt lagðir af stað þegar birgðirnar af súpu eru búnar. Þá er bara að muna að birgja sig betur upp næst.“ RAX HEIT MÁLTÍÐ Á 5 MÍNÚTUM Ómissandi kjötsúpa Hægeldun tryggir að vítamín, bragðefni og næringarefni halda sér. Engin viðbætt rotvarnarefni. F ÍT O N / S ÍA svo ákveðin í að þetta færi allt vel að ég varð bara jákvæður líka. Það þýðir ekkert annað en að verða jákvæður.“ Katrín rifjar upp að fyrri með- gangan hafi verið mjög dramatísk og misstu þau eitt barnið. „Þá þjálf- aðist hún Pollýanna vinkona mín vel. Eftir að ég greindist mætti hún bara og settist við hliðina á mér. Það hefur hjálpað til. Maður hefur auðvitað gengið í gegn um ýmis- legt en þegar maður er kominn aðeins frá atburðunum og hugsar um hvort þetta hafi verið eitthvað sem maður vildi hafa sleppt, þá áttar maður sig á að við alla erfið- leika verður til reynsla og þegar ég hugsa til baka um hvort ég hefði viljað sleppa einhverju þá er svarið yfirleitt nei.“ Fyrr um daginn fékk Katrín að vita að hún byrjar í geislameð- ferð í þarnæstu viku, en undir- búningur fyrir meðferðina hefst í næstu viku. „Krabbameinið mitt var hormónaháð þannig að ég verð á töflum í minnst fimm ár til að minna líkur á að krabbameinið taki sig upp aftur. Í dag segi ég að ég hafi verið með krabbamein. Það góða við að fá brjóstakrabba- mein er að það er í langflestum tilfellum læknanlegt. Þetta er allt önnur staða en áður fyrr. Það var líka gott að krabbameinið var á þannig stað að ég uppgötvaði það fljótt. Brjóstnám og brjóstaupp- bygging er auðvitað stór aðgerð en samt er þetta eitthvað sem er svo auðvelt að nálgast og fjarlægja. Um 200 konur greinast árlega með brjóstakrabbamein. Ég var einu sinni spurð hvort mér fyndist ekki óréttlátt að ég hafi fengið brjósta- krabbamein. Svarið við því var nei.“ Og í ljósi alls spyr ég hjónin hvort þau hafi á öllum þessum tíma aldrei orðið reið. Þau hrista höfuðið, segja bæði „nei“ og líta svo ástúðlega hvort á annað. Ég hefði gefið mikið fyrir að festa þessar sekúndur á myndband, svo fagurt var það. Minni skilningur á ófrjósemi Katrín segir þau hjónin hafa mætt miklum skilningi og góðvild í samfélaginu undanfarna mánuði. „Fólk áttar sig á að það er áfall að greinast með krabbamein, það er áfall að lenda í slysi og það er áfall að missa barn. Fólk áttar sig hins vegar ekki jafn vel á hvað það getur tekið gríðarlega á að reyna að eignast barn árum saman, að halda alltaf áfram að vona og verða reglulega fyrir vonbrigðum. Við vorum samt auðvitað mjög heppin með fólkið í kring um okkur.“ Þau byrjuðu að reyna að eignast barn árið 2001 þegar þau voru búin að vera saman í rúm fjögur ár. „Kannski leið of langur tími þar til við létum athuga málið. Við reyndum fyrst í rúmlega ár. En svo kom í ljós að það voru engar sáðfrumur,“ segir Katrín. „Karlinn var bara bilaður,“ skýtur Eyþór fimlega inn í. Þau prófuðu fyrst að nota frumur úr honum sem fundist í vefjasýni og fóru þá í smásjár- frjóvgun. Katrín varð ólétt eftir fyrstu meðferðina en í 12 vikna sónar kom í ljós að orðið hafði dulið fósturlát. „Það var áfall. Af hverju fengum við fyrst já fyrst við fengum ekki að halda því,“ segir hún. Á endanum var ákveðið að þau myndu notast við gjafasæði og loks urðu úr þrjú börn. „Ég gekk með eineggja stráka og eina stelpu. Upp kom vandamál hjá strákunum en þeir voru með sameiginlega fylgju. Næstum allt blóðflæðið úr fylgjunni fór til annars drengsins. Strax á 16. viku voru komnar vísbendingar þess efnis.“ Tveimur vikum síðar fór hún til Belgíu þar sem gerð var laseraðgerð á fylgjunni, en ekki líða margar vikur þar til sá tvíburi sem hafði fengið minna blóðflæði fékk vatn í kringum hjartað og drengirnir báðir með mikla vaxtar- skerðingu. „Tveimur vikum seinna er annar látinn. Eftir það stækkar hinn eðlilega og ég geng með þau öll í 4 vikur til viðbótar. Þau eru síðan fædd eftir 28 vikur, þau sem lifðu voru 3 og 4 merkur. Þá var búið að reyna að stoppa mig af í tvo sólarhringa. Við tóku 15 vikur á vökudeild sem gekk stóráfallalaust fyrir sig en tók auðvitað mikið á.“ Öll þrjú börnin, sem fædd voru 2007, fengu nöfn frá ömmum sínum og öfum. „Englastrákurinn okkar, sem er elstur, heitir Bjarni. Hann fékk nafnið hans afa síns og var grafinn milli ömmu sinnar og afa. Við jarðarförina stóðum við því við leiði foreldra Eyþórs og barns. En við gerum ráð fyrir að Bjarni og afi hans séu mestu mátar enda var afinn mikill barnakall. Hinn eineggja strákurinn heitir Baldvin Ásgeir og stelpan heitir Elísabet Heiða,“ segir Katrín. Nokkrum árum síðar ákváðu þau að reyna einu sinni að fara í tæknifrjóvgun, aftur með gjafa- sæði. „Ófrjósemi tekur mikið á. Þó við værum komin með tvö börn þá helltist aftur yfir okkur að við tæki erfitt tímabil óvissu. Við ákváðum að reyna bara tvisvar og ef það gengi ekki að, þá gætum við þakkað fyrir ríkidæmið sem við áttum þó. Ég var ákveðin í að ef ég yrði ólétt yrði það drauma- einburameðganga,“ segir hún kímin. Hún varð ólétt, ekki af einu barni heldur tvíburum sem heita Brynjar Már og Kristíana Svava. „Þetta varð draumatvíburameð- ganga og var frábær í alla staði. Börnin voru fædd 13 og 14 merkur eftir fulla meðgöngu. Þau fæddust 2011 þannig í smá tíma vorum við með fjögur börn yngri en fjög- urra ára á heimilinu. Mér finnst alltaf sérstakt að hafa gengið með fimm börn í tveimur meðgöngum á fjórum árum. Við lítum á eldri krakkana sem þríbura og þau eru alveg með það á hreinu að þau eru þríburar, en skiljum alveg þó fólk tali um þau líka sem tvíbura.“ Aldrei hefur verið neitt leyndarmál að börnin séu getin með gjafasæði. Eyþór segir slíkan feluleik ekki til neins: „Þetta er ekkert til að fela.“ Katrín segir að þetta hafi auðvit- að verið hans börn frá upphafi. „Við erum búin að ræða þetta við eldri börnin og við lögðum þetta þannig fram að til að fá einmitt þau þurftum við að fara þessa leið. Alltaf þegar maður er kominn með börnin sín í hendurnar þá vil maður engin önnur og er ánægður með leiðina sem maður þurfti að fara til að eignast þau.“ Til mikið af góðu fólki Þegar þau útskýrðu krabbameinið fyrir börnunum notuðust þau við bók frá Styrktarfélagi krabbameins- sjúkra barna. „Við lásum hana með eldri börnunum. Í þeirra huga er Jólaljós Styrktartónleikar fyrir Eyþór, Katrínu og fjölskyldu Styrktartónleikar kirkjukórs Lágafellssóknar í Mosfellsbæ verða haldnir í Guðríðarkirkju í Reykjavík, sunnudaginn 24. nóvember klukkan 16. Þeir sem fram koma eru Egill Ólafsson, Raggi Bjarna, Gréta Hergils, Kaleo, Hafdís Huld, Storm- sveitin, Vox populi, Birgir Haralds- son, Tindatríóið og Kirkjukór Lágafellssóknar. Miðaverð er 3 þúsund krónur. Ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára. Hægt er að kaupa miða í forsölu í gegnum netfangið arnhildurv@simnet. Eyþór er í endurhæfingu á Grensásdeild og Katrín er að byrja í geislameðferð. Hún fór í brjóstnám í september. Ljósmynd/Hari 24 viðtal Helgin 15.-17. nóvember 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.