Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.11.2013, Side 31

Fréttatíminn - 15.11.2013, Side 31
Horizon 2020 | Erasmus+ | Creative Europe Ýtt úr vör Opnunarráðstefna nýrra samstarfsáætlana ESB Hótel Sögu 22. nóvember kl. 8:30 - 12:00 Horizon 2020 Salur: Katla Denise Heiligers, DG Research and Innovation Morten Möller, ICT Unit, DG Research and Innovation Mario Roccaro, Marie Sklodowska Curie, DG Education and Culture Aðalheiður Jónsdóttir, kynningarstjóri Rannís Fundarstjóri: Elísabet Andrésdóttir, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rannís Erasmus+ Salur: Hekla Jan Truszczynski, DG Education and Culture Ágúst H. Ingþórsson og Anna R. Möller, forstöðumenn Landskrifstofa menntáætlunar og Evrópu unga fólksins Fundarstjóri: Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri menntamála, mennta- og menningarmálaráðuneyti Creative Europe Salur: Esja Susanne Ding, DG Education and Culture Ragnhildur Zoëga og Sigríður Margrét Vigfúsdóttir, Creative Europe Desk Fundarstjóri: Karitas Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála, mennta- og menningarmálaráðuneyti 8:30  9:50  10:10  11:45  Ný kynslóð samstarfsáætlana ESB 2014 - 2020 Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun Erasmus+ mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun Creative Europe kvikmynda- og menningaráætlun Opnunarávarp Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra European Programmes 2014 - 2020 Jan Truszczynski, Director General, DG Education and Culture, European Commission Rannís og samstarfsáætlanir ESB Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís Fyrirspurnir Fundarstjóri: Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri, mennta- og menningarmálaráðuneyti Kaffihlé Kynning á nýjum samstarfsáætlunum ESB: Létt hádegissnarl fyrir gesti opnunarráðstefnu Betri melting Fæst í næstu verslun Nánar á www.heilsa.is Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.is Hafið samband við sölumenn Rekstrarlands og leitið tilboða. Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins Öflug fjáröflun fyrir hópinn PI PA R \T B W A • S ÍA • 1 3 2 5 0 3 ónulegra hagsmuna eða hagsmuna læknastéttarinnar. Við erum að ræða um hagsmuni sjúklinga og þjóðarinnar,“ segir hann. Afrakstur áralangs niðurskurðar Runólfur segir að ástandið á Land- spítala sé afrakstur áralangs fjár- sveltis, það sé ekki eingöngu til- komið vegna mikils niðurskurðar eftir hrun, niðurskurðurinn hafi löngu verið hafinn og í raun hafi aldrei verið nægilegu fé verið veitt til starfsemi Landspítalans frá því sjúkrahúsin í Reykjavík voru sameinuð í eitt háskólasjúkrahús árið 2000. En auknar fjárveitingar munu duga skammt nema önnur úrræði fylgi með. Fyrst og fremst þarf að nýta vel þá fjármuni sem veittir eru til spítalans eins og stjórn-málamenn hafa ítrekað bent á en til að það sé unnt þarf að byggja fjármögnun rekstrar- ins á umfangsmikilli kostnaðar- greiningu líkt og í mörgum öðrum löndum og fyrirbyggja sóun sem m.a. stafar af útgjöldum er hljótast af viðhaldi úreltra bygginga og ófullkomins tækjakosts. „Landspítali hefur aldrei haft aðbúnað í líkingu við það sem þekkist á háskólasjúkrahúsum í öðrum löndum. Þá á ég ekki bara við aðstöðu lækna, heldur allra starfsmanna, og nær það til vinnuaðstöðu, tækjakosts og ýmis konar stuðningsþjónustu. Það þarf að endurskipuleggja alla starfsemi sjúkrahússins,“ segir hann. Þá þarf að hyggja sérstaklega að há- skólahlutverki spítalans sem er ein öflugasta mennta- og vísinda- stofnun landsins. Sérstaklega er mikilvægt að styrkja tengslin við Háskóla Íslands. Runólfur segir að læknar sem hafi starfað á Landspítalanum lungann úr sinni starfsævi líkt og hann sjálfur, hugsi sér ef til vill til hreyfings á síðari hluta hennar. „Ég hygg að læknar á miðjum aldri gætu hugsað sem svo að þeir séu búnir að leggja sitt af mörkum en vilji ekki eyða öllum sínum starfs- ferli við þessar aðstæður,“ segir hann. „Eftir því sem fleiri hætta versnar ástandið hjá þeim sem eftir eru. Það skapast vítahringur. Eins og stendur tekst okkur að halda uppi viðunandi þjónustu við sjúklinga, en um leið og þjónustan verður lakari en læknar geta sætt sig við skapast tilefni til að fara eitthvert annað því enginn vill vera ábyrgur fyrir slíku,“ segir hann. „Við verðum að fá lækna heim að loknu sérfræðinámi en það er ekki síður mikilvægt að fá ungu læknana um borð á ný,“ segir Run- ólfur og bætir við að nauðsynlegt sé að blása til sóknar í framhalds- námi í lyflækningum á Landspít- ala. „Hér hefur verið völ á að taka fyrstu þrjú árin í framhaldsnámi í lyflækningum en frekara nám fer svo fram erlendis. Sé allt með felldu hér höfum við fulla burði til að veita framhaldsmenntun í almennum lyf- lækningum sem er sambærileg við það sem gerist á erlendum háskóla- sjúkrahúsum. Engin eftirspurn er eftir náminu hér því unglæknar telja námsaðstöðuna ekki boðlega þar sem gífurlegt vinnuálag og mannekla stendur í vegi fyrir því að hægt sé að skapa eðlilegt jafnvægi milli vinnu og menntunar en það er forsenda slíks framhaldsnáms,“ segir hann. „Við þurfum stuðning við það svo við getum gert þetta nám eftir- sóknarvert. Þetta er grundvallar- atriði sem varðar framtíð íslenskrar læknisfræði. Fyrir það fyrsta eru ungir læknar í framhaldsnámi mjög mikilvægur hlekkur í læknisþjón- ustu sjúkrahúss á borð við Land- spítala. Það er mjög óheppilegt að byggja þjónustuna nær alfarið á reyndum sérfræðilæknum. Ungir læknar sem hefja sitt framhalds- nám hér brúa bilið sem skapast óhjákvæmilega vegna fjarveru lækna er stunda sérfræðinám erlendis. Þá gegna ungir læknar í framhaldsnámi þýðingarmiklu hlutverki við handleiðslu yngri Framhald á næstu opnu Helgin 15.-17. nóvember 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.