Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.11.2013, Page 44

Fréttatíminn - 15.11.2013, Page 44
Það koma alltaf tímabil hjá framherj- um þar sem þeir skora ekki í nokkrum leikjum í röð. Sem betur fer hefur það ekki gerst oft hjá mér. Í síðustu leikjum hef ég líka verið að spila úti á kanti sem hefur kannski eitthvað að segja. Þ að er vonandi að ég haldi áfram að skora, ef það er einhvern tímann sem maður vill skora og gera landi og þjóð gott þá er það núna. Von- andi verð ég á markaskónum í þessum leikjum,“ segir Kolbeinn Sigþórsson, framherji íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Fyrri leikur Íslands og Króatíu í umspili um sæti á HM í knattspyrnu í Brasilíu á næsta ári fer fram á Laugardalsvelli í kvöld. Þetta eru stærstu leikir íslenska landsliðsins frá upphafi og spennan fyrir þeim er mikil. Allt frekar óraunverulegt Kolbeinn hefur farið hamförum með lands- liðinu og raðað inn mörkum. Hann hefur alls skorað 13 mörk í 19 landsleikjum sem er ótrúlegt hlutfall. Hann hefur auk þess skorað í fimm síðustu leikjum. Það er því búist við miklu af honum. „Þetta er allt saman mjög spennandi. Það hefur aldrei gerst áður að maður hafi flogið heim í landsleik í nóvember og þegar ég kom heim voru mínus fimm gráður. Og að þetta sé fyrir landsleiki sem gætu komið okkur á HM, það er mjög skrítin tilfinning. Þetta er eigin- lega frekar óraunverulegt.“ Þjálfarinn heldur mönnum á jörðinni Þegar Fréttatíminn ræddi við Kolbein í vik- unni var hann í kaffi hjá foreldrum sínum. „Við fengum smá frí,“ segir hann. Kolbeinn segir að dagskrá lands- liðsins vegna leikjanna tveggja hafi verið svipuð og verið hefur, þó meira sé undir en venjulega. „Eftir að við komum til landsins mætum við upp á hótel og förum yfir kom- andi verkefni og dagskrána. Svo förum við á æfingu alla dagana fram að leik. Svo er það takt- ískur undir- bún- ingur fyrir leikina, að borða, hvíla sig, fara í nudd og „treatment“. Þetta er orðin rútína sem við erum vanir. Það er ekkert öðruvísi við þessa leiki nema það er kannski aðeins hærra spennustig, enda meira undir.“ Það er þá væntanlega hlutverk Lars Lager- bäck og þjálfarateymisins að halda leikmönn- um niðri á jörðinni? „Já, þeir eru með sínar leiðir til þess. Þeir hafa gert það vel í undanförnum leikjum, þeir hafa leyst það mjög vel og náð fínni ró í mann- skapnum. Og réttu jafnvægi svo menn fari nú ekki fram úr sér. Þeir kunna mjög vel að nálg- ast okkur leikmennina.“ Einvígi þar sem allt getur gerst Kolbeinn er sammála því að þegar komið er í umspilið geti allt gerst. „Þetta er einvígi þar sem allt getur gerst. Króatar þurfa að spila vel ef þeir ætla að vinna okkur. Við höfum sýnt það í þessari undan- keppni að það er mikið í okkur spunnið, við höfum lent undir í leikjum en komið til baka og það gefur okkur auka von. En við erum samt klárlega litla liðið í þessari viðureign, þeir hafa verið ofarlega á styrkleikalista Fifa seinustu ár og eru sterkir. Við erum ekkert að gera okkur grillur um að við séum að fara að rúlla yfir þá.“ Þurfum góð úrslit í kvöld Íslenska landsliðið hefur vakið athygli og aðdáun fyrir sóknarleik sinn í þessari undan- keppni. Ekki síst hjá þjóðinni sjálfri sem er vön því að landsliðið spili vörn og vonist til að lauma inn einu og einu marki. Þurfum við nokkuð að óttast að nú þegar svona mikið er undir að þið farið að pakka í vörn? „Nei, nei. Við erum búnir að fara yfir króat- íska liðið saman og það sem við ætlum að gera. Við vitum í hverju við erum góðir og munum taka þá jákvæðu punkta sem hafa verið í okkar leik. Að sjálfsögðu verða einhverjar breytingar, Þurfum að ná góðum úrslitum á heimavelli Kolbeinn Sigþórsson mun leiða sóknarlínu íslenska liðsins í umspilsleikjunum við Króatíu. Hann hefur skorað í fimm síðustu leikjum landsliðsins og gæti orðið fyrstur til að skora í sex leikjum í röð ef hann skorar í kvöld. Kolbeinn hefur ekki skorað í síðustu leikjum Ajax en segir að það sé ekki áhyggjuefni. Hann hafi verið að spila úti á kanti í þeim leikjum og verði í það minnsta í góðu hlaupa- formi. Kolbeinn Sigþórsson hefur skorað 13 mörk í 19 landsleikjum. Hann hefur skorað í síðustu fimm lands- leikjum og gæti orðið fyrsti íslenski landsliðsmaðurinn til að skora í sex leikjum í röð. Ljósmynd/Hari framhald á næstu opnu 44 landsleikurinn Helgin 15.-17. nóvember 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.