Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.11.2013, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 15.11.2013, Blaðsíða 62
62 fjölskyldan Helgin 15.-17. nóvember 2013 Einelti er afleiðing Á ttundi nóvember var forvarnardagur gegn einelti, þessu böli sem virðist plaga nær fimmtung af öllum ólaunuðum starfsmönnum á fjölmennasta vinnustað landsins, skólakerfinu. Þar ber sem sagt börnum og ungmennum lögboðin skylda til að starfa í tíu ár undir stjórn námskrár ríkisins og við miðstýrt sveitarfélags- vald. Þar mæta þau á myrkum vetrardögum áður en þau hafa líffræðilegar forsendur til að vera yfirhöfuð á fótum og bera þyngri byrði á baki heldur en líkamsþroski þeirra ræður við með góðu móti. Sumum hinna ólaunuðu starfsmanna gengur samt ágætlega og kvarta ekki, aðrir þola einelti. Á þessum vinnustað er ekki hægt að segja upp nema viðkomandi starfsmaður sé á launaskrá. Ég hef ítrekað leyft mér að viðra þá skoðun að einelti geti ekki orðið til af sjálfu sér. Börn og ungmenni beita hvert annað ekki kerfisbundinni valdníðslu í einhverju formi að gamni sínu eða þjálfa upp ofbeldissamskipti „bara af því að“. Einelti skap- ast sem sagt ekki í tómarúmi – einelti getur aldrei verið orsök síns sjálfs. Einelti er þar af leiðandi afleiðing. Eftir áralanga umhugsun og skoðun á samskiptum ósjálf- ráða fólksins okkar fann ég orsökina að þessari afleiðingu og orsökin er einfald- lega skortur. Skortur á góðum aðstæðum sem geta tryggt að öllum gangi vel í sam- skiptum og skortur á fullorðnu fólki til að passa mannskapinn nógu vel. Skortur á umhverfi heima og heiman sem hefur kennt umburðarlyndi og víðsýni, skortur á stöðugri þjálfun í hlýlegri og jákvæðri orðanotkun, skortur á elskulegheitum og kærleika í daglegum samskiptum. Niðurstaðan er því að einelti er hörgulsjúkdómur rétt eins og aðrir af því tagi sem framkallast þegar skortur á lífsnauðsynlegum efnum fyrir sálina eða líkam- ann er kominn á alvarlegt stig. Einelti okkar tíma má því líkja við skyrbjúginn forðum sem ekkert gekk að lækna sem sjálfstætt vandamál hvað sem hrópað var á torgum um hinn skelfilega skyrbjúg. Það var ekki fyrr en fólk áttaði sig á því að skortur á ferskri fæðu með ríkulegu innihaldi af C-vítamíni var hin raunverulega orsök skyrbjúgsins sem farsælar lyktir fundust í meðhöndluninni. Sem sagt, eiga við orsökina, bæta upp vöntunina og þar með hvarf hinn illræmdi skyrbjúgur úr lífi Vesturlandabúa. Blessað C-vítamínið gat það sem ótal lækningatilraunum hafði mistekist í glímunni við hörgulsjúkdóminn. Þá er komið að okkur að bæta upp þá vöntun sem er í lífi barna og ungmenna á Ís- landi og veldur því að stór hluti þeirra kynnist hörgulsjúkdómnum einelti frá einhverri hlið. Sumir eru kallaðir þolendur og aðrir gerendur en slíkt er alröng flokkunarað- ferð. Allir, ég segi og skrifa allir, eru þolendur þegar kemur að vöntun hinu andlega C-vítamíni sem veldur ofbeldissamskiptunum og börn ráða ekki sjálf við að sækja sér samskiptavítamínið. Ábyrgðin er okkar, fullorðinna, að gefa það inn á hverjum degi – bæði á heimilum og í skólum. Tryggjum að aðstæður séu þannig að þær hvetji til góðra samskipta og þar á meðal má leggja niður frímínútur í flestum skólum. Pössum börnin okkar betur og gefum þeim meiri tíma með fjölskyldunni en þau fá í dag. Tökum upp jákvæða orðræðu á heimilinu, föðmum hvert annað og þjálfum hlýleg samskipti í stað þess að lesa blogg og kommentakerfi og bölvast yfir fréttunum. Leikum svo besta leik í heimi sem er einfaldlega kærleikurinn. Ég hef ítrekað leyft mér að viðra þá skoðun að einelti geti ekki orðið til af sjálfu sér. Hörgulsjúkdómurinn einelti Margrét Pála Ólafsdóttir ritstjórn@ frettatiminn.is heimur barna Foreldrar nú til dags vinna nánast undantekningarlaust báðir úti langan vinnudag. Þeir koma þreyttir heim og eiga þá eftir að takast á við verkefnin heima fyrir, elda mat, vaska upp, þvo þvott, taka til og þar fram eftir götunum. Svo ekki sé minnst á það mikilvægasta: að sinna börnunum, veita þeim athygli og umhyggju, hjálpa þeim með heimalærdóm og bara hlusta á það sem þau hafa að segja eftir daginn. Fjöldi barna sækir ýmsar tómstundir og eykur það oft enn á álag á foreldranna, sérstaklega þangað til börnin eru orðin nægilega stór til þess að geta bjargað sér sjálf á milli staða. Ósjaldan eru börn og fullorðnir því að koma heim um kvöld- matarleytið, og þá er eins gott að vera vel skipulagður. Ef eldri börn eru á heimilinu er sjálfsagt að þau leggi sitt af mörkum við heimilishaldið. Þau geta eldað, þvegið þvott, tekið til og vaskað upp, allt eftir því sem þau ráða við eftir aldri. Til þess að auðvelda öllum lífið er tilvalið að setja pró- gramm fjölskyldunnar upp í skjali sem öllum er aðgengilegt. Til þess hafa verið gerð mörg forrit, svo sem eitt sem nefnist Cozi, og er fáanlegt á netinu og í snjallsíma. Í því er hægt að skipuleggja stundaskrá fjölskyldunnar og deila út verkum. Þar geta allir skrifað sameiginlegan innkaupalista og fundið saman hvað á að vera í matinn. Þegar fjölskyldan er komin upp í vana með að nýta sér þessa nýju tækni verður lífið mun auðveldara, aldrei fer á milli mála hver á hvaða verk, hvað á að vera í matinn og hver ber ábyrgð á innkaupunum. Því um það snýst málið: að einfalda lífið svo meiri tími sé til að gera það sem er skemmtilegast: að vera saman. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is  Forrit StundaSkrÁ FjölSkyldunnar Skipulögð Hvernig einfalda má fjölskyldulífið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.