Fréttatíminn - 15.11.2013, Blaðsíða 94
Ég
myndi
pottþétt
ekki
gera
þetta
aftur.
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
GÓÐOSTUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
6
55
52
0
9/
13
J ón Óttar Ólafsson er doktor í af-brotafræðum frá Cambridge og hefur auk þess starfað innan lög-
reglunnar, í fjárfestingabanka og hjá sér-
stökum saksóknara. Þessa reynslu og þá
innsýn sem hann hefur fengið í skugga-
hliðar samfélagsins nýtir hann í sinni
fyrstu skáldsögu, reyfaranum Hlustað
sem kom út fyrir skömmu.
Viðtökurnar gefa góðar vonir um fram-
haldið en nokkur kvikmyndagerðarfyrir-
tæki hafa sett sig í samband við útgefand-
ann, Bjart. „Við tökum þessu auðvitað
fagnandi en allir skilja að við ætlum að
fara okkur hægt,“ segir Guðrún Vil-
mundardóttir hjá Bjarti. „Næsta skref er
norska þýðingin en margir skandinavísk-
ir og þýskir útgefendur bíða eftir henni.“
„Ég er mjög ánægður með kynninguna
á bókinni og er bara þakklátur fyrir þá
athygli sem hún fær,“ segir Jón Óttar.
„Áhuginn beinist ekki síst að þessum
bakgrunni manns og kannski þessum
raunsæisstíl sem er á henni. Þetta er það
sem fólk er að sækja í, en svo að sama
skapi getur það líka farið í taugarnar á
öðrum sem eru vanari klassískari reyf-
urum með hefðbundnari nálgun á við-
fangsefnið.“
Jón Óttar segist vita til þess að þrjú
kvikmyndagerðarfyrirtæki á Íslandi og
eitt í Danmörku séu að skoða bókina og
séu „að velta fyrir sér möguleikum með
kvikmyndaréttinn, hvort sem hún yrði þá
notuð í kvikmynd eða í sjónvarpsþætti.
Þannig að það er mikill áhugi úr þessari
átt,“ segir höfundurinn.
Aðspurður segir Jón Óttar að þekking
hans á glæpum og rannsóknum þeirra,
auk brennandi áhuga á reyfurum sem
hann les af miklu kappi, hafi ýtt honum
út í skrifin. „Það var þetta sambland, að
vera með þessa innsýn í þennan raun-
veruleika og svo að vera stöðugt að lesa
reyfara. Mig langaði að spreyta mig á
þessu og sjá hvað ég gæti.“
Hlustað er fyrsta bók í þríleik og næstu
tvær bækur munu fylgja í kjölfarið. „Þau
drög hafa legið fyrir frá upphafi. Þess
vegna er opnað á marga vinkla og undir-
sögur í þessari bók sem klárast ekki
fyrr en í bókum tvö og þrjú. Leikurinn
berst frá Íslandi til Englands og London
í næstu bók og til Bandaríkjanna og
Miami í þeirri þriðju.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Hið blómlega
bú opnað á ný
Árni Ólafur Jónsson og fólkið á bak við
hina ágætu þætti Hið blómlega bú hyggst
láta til sín taka að nýju innan tíðar. Fyrsta
þáttaröðin var sýnd
á Stöð 2 í vor og
sumar og vakti
mikla athygli.
Árni og félagar
hafa nú tekið upp
vetrarþáttaröð
sem fer í loftið 28.
nóvember næst-
komandi. Ef að líkum
lætur fá áhorfendur þá
kennslu í matreiðslu
fyrir jólin og sitthvað
fleira. Þá stefnir
Árni að því að gefa
fyrstu þáttaröðina út
á DVD á næstunni
og hefur sett af stað
fjármögnun á netinu,
á Karolinafund.com,
til það verði hægt.
Á fyrstu tveimur
dögunum safnaðist
meira en helmingur
af því sem til þarf.
Vigdís skreytir á ný
Hin skelegga þingkona Vigdís Hauksdóttir
hefur verið áberandi í fréttum undan-
farið og hafa oft verið skiptar skoðanir á
ummælum hennar. Vigdís hyggst sýna á
sér léttari hlið í næsti viku þegar Skreyt-
ingakvöld Blómavals fer fram í Skútuvogi.
Vigdís er sem kunnugt er menntuð í
blómaskreytingum og verður gestaskreyt-
ari á fimmtudagskvöldið,
21. nóvember. Ekki er
ólíklegt að annríki
verði í versluninni
af þessu tilefni.
Jóhann Páll lJósmyndaði reimleika í reykJavík
Á kafi í draugum og djöfulskap
J óhann Páll Valdimarsson, bókaútgef-andi hjá Forlaginu, tók ljósmyndirnar fyrir bók Steinars Braga, Reimleikar
í Reykjavík, og segist vart hafa á sér heilum
tekið eftir að hafa þvælst á draugaslóðir með
myndavélina á lofti.
Jóhann Páll er forfallinn áhugaljósmyndari
og freistaðist til þess að fá útrás fyrir delluna
í þessu verkefni en eftir á að hyggja efast
hann um að sú ákvörðun hafi verið rétt.
„Ég náttúrlega stóðst þetta ekki og tók
verkefnið mjög alvarlega og ég held ég hafi
gengið allt of langt í þessu.“
Jóhann Páll er annálaður kattavinur og
hefur lent í miklum hremmingum með
kisurnar sínar sem hafa verið gjarnar á að
týnast þótt þær hafi blessunarlega skilað
sér aftur. „Ég held að öll mín vandræði með
kettina stafi af þessu. Skýringin er yfirnátt-
úruleg, Það er alveg klárt mál.“
Jóhann Páll fór meðal annars í rökkri í
kirkjugarða og myndaði þekkta draugastaði
í borginni. „Ég verð nú að játa það að ég
fór náttúrlega alveg á kaf í þetta verkefni
og þvældist mikið um alls konar afkima
í Reykjavík. Ég get nú ekki neitað því að
mesti hrollurinn fór um mig þar sem ég
var á fjórum fótum að mynda leiði Mar-
grétar Müller. Þá fór um mig. Sú mynd er
reyndar ekki í bókinni en þá fann ég að ég
var kominn út í eitthvað vafasamt. Það voru
einhverjir straumar og ég fann að þetta var
ekkert grín sem ég var kominn út í. Svo hef
ég náttúrlega verið að skríða um á háaloftinu
á Alþingi og í svörtu herbergjunum á Hótel
Borg þannig að ég sökkti mér í drauga og
djöfulskap.“
Jóhann Páll var þjakaður af skelfilegum
martröðum í æsku og hann segir þessa
vinnu sína hafa vakið upp þann gamla draug.
„Þannig að þetta hefur örugglega verið mjög
óskynsamlegt af mér. Að láta plata mig út í
þetta verkefni. Ég myndi pottþétt ekki gera
þetta aftur og ef ég gæti endurskoðað þetta
þá myndi ég ekki gera þetta.“ -þþ
Jóhann Páll hefur verið á drauga-
slóðum með myndavélina á lofti.
Áhuginn
beinist
ekki síst
að þessum
bakgrunni
manns og
kannski
þessum
raunsæis-
stíl.
Jón óttar ólafsson hlustað vekur athygli
Bitist um raunsæisreyfara
Glæpasagan Hlustað er fyrsta bók Jóns Óttars Ólafssonar. Bókin kom út fyrir skömmu og hefur
vakið athygli, ekki síst fyrir raunsæislega nálgun á glæparannsóknir, en höfundurinn er doktor
í afbrotafræðum frá Cambridge-háskóla og hefur starfað hjá lögreglunni. Útlend bókaforlög og
kvikmyndagerðarfólk hefur sýnt bókinni mikla athygli.
Jón Óttar Ólafsson nýtir sér þekkingu sína og reynslu af rannsóknum sakamála í glæpasögunni Hlustað sem hefur vakið
áhuga erlendra útgefenda og kvikmyndagerðarfólks á Íslandi og í Danmörku.
Mikið horft á Vertu viss
Vertu viss, nýr skemmtiþáttur sem Þórhallur
Gunnarsson stjórnar, sló í gegn meðal sjón-
varpsáhorfenda um liðna helgi. Samkvæmt
upplýsingum frá RÚV var meðaláhorf á
þáttinn yfir 40 prósent og uppsafnað áhorf
yfir 50 prósent. Þetta ku vera mesta áhorf
á laugardagsþátt í langan tíma. Fólkið í
blokkinni var vinsælasti dagskrárliður RÚV
í síðustu viku, fimmtu vikuna í röð. Að sögn
Skarphéðins Guðmundssonar dagskrár-
stjóra er Fólkið í blokkinni í öðru sæti yfir
þær þáttaraðir sem fengið hafa mest áhorf
frá því rafrænar áhorfsmælingar hófust.
Svartir englar er vinsælasta þáttaröðin frá
upphafi.
94 dægurmál Helgin 15.-17. nóvember 2013