Fréttatíminn - 27.12.2013, Qupperneq 2
Vilborg Arna á hæsta tindi
Suðurskautslandsins
V ið kunnum að skemmta okkur og hafa gaman af áramótunum og það hefur spurst út. Þess
vegna kemur fólk meðal annars, til að
sjá okkur taka vel á því. Hátíðarnar eru
mikill ferðatími og hefur alltaf verið, nú
eru stóru brandajól svo fólk hugsar sér
frekar til hreyfings og fer jafnvel í lengri
ferðir," segir Gunnar Valur Sveinsson,
verkefnastjóri Samtaka ferðaþjónust-
unnar.
„Undanfarin ár hefur höfuðborgar-
svæðið verið að mestu fullbókað yfir há-
tíðarnar og sjálf áramótin og við búumst
við aukningu frá því í fyrra. Í desember
á síðasta ári voru um 28.000 ferðamenn
á landinu og við reiknum fastlega með
því að sú tali fari yfir 30.000. Þar af eru
rúmlega 2.000 manns hér yfir hátíðar og
yfir 6.000 yfir nýárið. Það eru aðallega
brennurnar og flugeldarnir sem trekkja
að og sú stemning sem við erum þekkt
fyrir hvað það varðar. En svo er það líka
landið sjálft og náttúran sem trekkir
að og fólk fer í þessar hefðbundu ferðir,
stutta túra frá Reykjavík.“
Gestirnir eru aðallega frá Bandaríkj-
unum og Norður Evrópu en sífellt fleiri
koma þó frá Asíu, aðallega Japan. Það
sem helst virðist heilla áramótagestina
eru stuttir skottúrar sem bjóða upp
á friðsæla náttúru og norðurljós auk
gönguferða á upp á jökul. Hvalaskoðanir
eru mjög vinsælar á höfuðborgarsvæð-
inu og virðast erlendir gestir alls ekki
setja kuldann fyrir sig þegar kemur að
því að sigla út sundin. Þrátt fyrir að höf-
uðborgin sé enn vinsælust þá er ásókn í
landsbyggðina að aukast. „Landsbyggðin
nýtur sífellt meiri vinsælda yfir vetrar-
tímann. Sérstaklega er Norðurlandið að
vaxa.“
Gunnar Valur segir hinn dæmigerða
áramótaferðamann ekki vera til. „Þetta
eru karlar jafnt sem konur, einhleypir
jafnt sem fjölskyldufólk. Aðallega þó fólk
á miðjum aldri. Markaðssetningin fer
fram í gegnum fyrirtækin sjálf en svo
eru líka búnar til ákveðnar ferðir af ferða-
skrifstofunum. Mjög stór hluti gesta
kemur í skipulögðum ferðum. Þetta eru
hópferðir þar sem gestirnir koma í rútu
í bæinn, fara upp á hótel, svo er oftast
borðaður kvöldmatur á hótelinu og svo
er farið í rútu á brennuna og jafnvel aftur
upp á hótel þar sem er haldið upp á sjálf
áramótin. Flugeldum er skotið upp og
svo fara margir út að skemmta sér þar
sem flestir staðir opna eftir miðnætti. Og
þá er bara haldið áfram að fagna. Eins og
við vitum þá eru Íslendingar duglegir að
skemmta sér og útlendingunum finnst
gaman að taka þátt í því.“
Halla Harðardóttir.
halla@frettatiminn.is
Miðaldra ferðamenn spenntir
fyrir flugeldum og djamminu
Yfir 30 þúsund ferðamenn voru á landinu í desember og þar af er reiknað með yfir sex þúsund
manns um áramótin. Gestirnir eru aðallega frá Bandaríkjunum og Norður Evrópu en sífellt fleiri
koma þó frá Asíu, aðallega Japan.
Ferðaþjónusta YFir 6000 erlendir gestir eYða áramótunum á Íslandi
Það eru aðal-
lega brenn-
urnar og flug-
eldarnir sem
trekkja að og
sú stemning
sem við
erum þekkt
fyrir hvað
það varðar.
Ferðamenn sem dveljast hér á landi um áramót fylgjast með þegar flugeldum er skotið upp. Svo fara margir út að skemmta sér
þar sem flestir staðir opna eftir miðnætti. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Vilborg Arna Gissurardóttir
pólfari eyddi öðrum jólum
sínum í röð á Suðurskauts-
landinu. Hún komst á tind
hæsta fjalls Suðurskauts-
landsins, Vinsons, á að-
fangadag en hún stefnir að
því að ganga á hæstu fjöll
allra heimsálfanna á einu ári.
Vilborg Arna lýsir því svo á
bloggsíðu sinni að leiðin hafi
verið virkilega falleg en kalt
hafi verið og vindasamt og
því lítið um myndatökur. Auk
Vilborgar Örnu náði hópurinn
„Team Iceland“ á tindinn.
Lést í bílslysi
Miðaldra karlmaður lést í umferðarslysi í Reykjavík aðfararnótt annars dags jóla.
Bílvelta varð á Reykjanesbraut, rétt sunnan Elliðaáa. Lögreglan fékk tilkynningu um
slysið klukkan 01.37. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum lést á staðnum. Unnið er að
rannsókn á tildrögum slyssins.
Þorsteinn Baldur Friðriksson er ánægður með velgengni QuizUp síðustu vikur. Ljósmynd/Hari
Viðskipti erlendir FjárFestar haFa mikla trú á spurningaleiknum Quizup
Leggja tvo og hálfan milljarð í Plain Vanilla
„Þorsteinn Baldur og félagar hafa hitt á hið full-
komna jafnvægi mannlegra samskipta og leikja-
spilunar sem höfðar til milljóna notenda um allan
heim. Við erum í skýjunum með að fá að styðja
við áframhaldandi vöxt Plain Vanilla og getum
varla beðið eftir öllu sem er framundan á nýju
ári,“ segir Roelof Botha, einn eigenda Sequoia
Capital sem lagt hefur íslenska leikjafyrirtækinu
Plain Vanilla til aukið fé.
Um mánuður er nú liðinn síðan Plain Vanilla
sendi frá sér spurningaleikinn QuizUp. Yfir fimm
milljónir manna hafa notað leikinn á þeim tíma.
Í gær var tilkynnt að Plain Vanilla hafi safnað
22 milljónum Bandaríkjadala, um tveimur og
hálfum milljarði íslenskra króna, frá fjárfestum.
Alls hefur fyrirtækið þá fengið yfir þrjá milljarða
íslenskra króna í áhættufjármagn frá stofnun.
Fjárfestarnir í þessari umferð eru hinir sömu
og áður hafa lagt fé í fyrirtækið. Þar á meðal eru
Tencent Holdings og Sequoia Capital, en þau
leiða fjárfestinguna að þessu sinni. Fyrirhugað er
að nota fjármagnið til að styðja við áframhaldandi
vöxt og stækkun fyrirtækisins. Þess má geta
að þetta er stærsta einstaka fjárfesting Sequoia
Capital á þessu ári.
„Það er bæði ótrúlegt og skemmtilegt í senn
að fylgjast með hinum miklu vinsældum sem
QuizUp nýtur nú um allan heim,“ segir Þorsteinn
Baldur Friðriksson, stofnandi og forstjóri Plain
Vanilla um leið og hann fagnar nýrri fjárfestingu.
Utanríkisviðskipti
drifkraftur hagvaxtar
Framlag utanríkisviðskipta var helsti drif-
kraftur hagvaxtarins á þriðja ársfjórðungi
enda vöxtur útflutnings umtalsvert meiri
en vöxtur innflutnings, segir meðal annars
í fundargerð peningastefnunefndar
Seðlabanka Íslands en hún var birt á
jóladag. Jókst útflutningur um 8,3% en
innflutningur um 1,6%. Af innlendum
eftirspurnarliðum munaði mestu um vöxt
einkaneyslu. „Ef horft er til neyslu og
fjárfestingar í heild var þróunin lík spá
Seðlabankans sem birt var í Peninga-
málum í nóvember,“ segir enn fremur,
„hvort heldur litið er til þriðja ársfjórðungs
eða fyrstu níu mánaða ársins. Hagvöxtur
á þriðja ársfjórðungi var þó umtalsvert
meiri en spáð var eða 4,9% samanborið
við 2,5% vöxt í nóvemberspánni. Svipaða
sögu er að segja um þróun fyrstu þriggja
ársfjórðunganna en hagvöxturinn á því
tímabili var 3,1% samanborið við 2,3% í
spánni. Skýringin felst í meira framlagi
utanríkisviðskipta sakir meiri útflutnings
og minni innflutnings en áður var gert ráð
fyrir.“ -jh
Hæsta einkunn í sögu
Flensborgarskóla
Snorri Rafn Theodórsson útskrifaðist á
dögunum með hæstu einkunn á stúdents-
prófi sem reiknuð hefur verið við Flens-
borgarskólann. Meðaleinkunn Snorra var
9,77 en skólametið var áður 9,71. Semidúx
var Jónas Grétar Jónasson með einkunnina
9,68. Á hvorugu einkunnaskírteini þeirra
Snorra og Jónasar var einkunn undir 9.
Alls útskrifuðust 58 frá Flensborgarskól-
anum en útskrift fór fram laugardaginn 21.
desember. Tæpur helmingur nemendanna
lauk námi á þremur og hálfu ári. Konur
voru fleiri í útskriftarhópnum, um 60%.
2 fréttir Helgin 27.-29. desember 2013