Fréttatíminn - 27.12.2013, Side 30
Veðrið er ekki svo með öllu illt
Geitungar eiga erfitt í ár, maður sér varla kvikindi.
Geitungarnir fóru seint af stað í vor enda kalt í veðri.
Erling Ólafsson, skordýrafræðingur, útskýrði
kærkomna fjarveru geitunga í sumar.
Ég þarf samt ekkert að
sitja á bekknum!
Þótt þú sért lögga þá þarftu ekki að draga fólk eftir
götunni.
YouTube-hetjan Maggi Mix sendi kveðju til löggunnar
sem handtók ölvaða konu og tók engum vettlingatökum
á Laugaveginum.
Gleði, gleði, gleðiganga
Þegar Borgarstjórinn er farinn að klæðast íslenska
þjóðbúningnum (Gefa skít í hann) og mála sig, verður
manni óglatt.
Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson gerði allt vitlaust með
ummælum sínum um Gay Pride.
Hvað er þá málið?
Ég hef ekkert á móti þessari göngu, og ég hef ekkert á
móti hommum og lesbíum.
Gylfi fór síðan stríð við klámfengnar vindmyllur og sló
hvergi af.
Styttist í efnahagsbatann
Hann er kominn á einhver svakaleg sýklalyf þannig að
þetta ætti nú að lagast brátt.
Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráð-
herra, útskýrði hvað varð til þess að Sigmundur Davíð
fór á fund Obama í ósamstæðum skóm.
Velkominn til samtímans!
Það er móðgun við Íslandssöguna og alveg sérstak-
lega við Vestmannaeyinga sem minnast hryllingsins
16. til 18. júlí 1627, þegar allt líf á staðnum var lagt í
rúst, hátt í 250 teknir fastir og tugir drepnir.
Borgarstjórinn fyrrverandi, Ólafur F. Magnússon,
hafði áhyggjur af fyrirhugaðri byggingu mosku í
Reykjavík og setti hana í samhengi við Tyrkjaránið.
Eins og krókódíll
Ég er ekki inni í skáp, en ég er með þykkan skráp.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson ræddi leikritið Maður
að mínu skapi í Kastljósinu en fáum duldist að þar var
Hannes hafður til fyrirmyndar aðalpersónunni.
Svikasilfur
Þetta er klárlega ekki ólympíuandinn.
Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, brást illa við fréttum um að
silfurverðlaunapeningur handboltalandsliðsmanns
væri til sölu.
Bragi Valdimar Skúlason
Ég nenni ekki að vera með í þjóð sem handtekur Ómar
Ragnarsson.
Alþjóð tók andköf af hneykslan þegar lögreglan
tók Ómar Ragnarsson fastan þar sem hann var að
mótmæla vegaframkvæmdum í Gálgahrauni.
Hvernig endaði The Wire?
Þetta hefur verið frábært samstarf, og að mörgu leyti
einstakt. Það hefur verið byggt á hreinskilni, hrein-
skiptni, samræðu og samstöðu.
Dagur B. Eggertsson mun sakna Jóns Gnarr.
Hvaða vitleysa er
þetta?
Hvaða dónaskapur er það að
telja menn einangrunarsinna
fyrir að hafa þá skoðun
að hagsmunum okkar sé
betur borgið utan Evrópusam-
bandsins.
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra brást hinn versti við greinarskrifum
Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu. En heldur þótti
ráðherra seilast langt þegar hann skammaði annálað
prúðmenni eins og Þorstein fyrir dónaskap.
Fífl og dóni
Þú ættir að skammast þín, þú
ert óþverri.
Páll Magnússon útvarps-
stjóri svaraði Helga Seljan að
sjómannasið, eins og sönnum
Eyjamanni sæmir, eftir átaka-
fund með starfsfólki RÚV.
Þau drukku það
allt
Ég er í raun forviða, það hefði nú verið ódýrara hjá
þessu fólki að hella einfaldlega brennivíni á lóðina.
Sverrir Agnarsson, formaður félags Múslima, furðaði
sig á undarlegum gjörningi andstæðinga moskubygg-
ingar í Reykjavík sem lögðu svínshöfuð á lóðina þar
sem fyrirhugað er að bænahúsið rísi.
Smáskilaboðaþóf
Við viljum alls ekki að nátt-
úruverndin komist að og við
þurfum að standa vaktina.
SMS-lekinn hjá Vodafone
sýndi svo ekki verður um
villst að Gunnar Bragi
Sveinsson, nú utanríkis-
ráðherra, heldur ekki fram hjá
gildum Framsóknarflokksins.
Skelltu þessu á
WikiLeaks maður!
Kjósendur þínir verðskulda
að vita fyrir hvaða upphæð
þú seldir þig Hollywood og
hvaða leyniákvæði leynast í
samningnum.
Julian Assange, stofnandi
WikiLeaks, og Birgitta Jóns-
dóttir þingpírati tókust á um
þátt Birgittu í gerð kvikmyndar
um WikiLeaks sem Assange finnur
allt til foráttu.
Hefur fámenn þjóð efni á
Herjólfi?
Getur 320 þúsund manna þjóð verið með Þjóðleikhús
sem tekur til sín 900 milljónir?
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar,
hristi upp í umræðunni með vangaveltum um almenna
getu íslensku þjóðarinnar.
Hann mun aldrei gleym’ henni
Thatcher var einn merkasti stjórnmálamaður 20. aldar.
Ég hitti hana nokkrum sinnum, og er hún mér mjög
minnisstæð.
Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bret-
lands, kvaddi þennan heim á árinu. Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor og mikill
aðdáandi, minntist hennar.
Vinsælli en vinstri
stjórnin
Þetta er uppáhaldsþáttur fólks
á öllum aldri um víða veröld.
Jóhönnu Sigurðardóttur brá
fyrir í þætti um Simpsons-fjöl-
skylduna sem gerðist á Íslandi.
Hún hafði tilefni til að fagna enda
einstakur árangur hjá íslenskum
stjórnmálamanni og þótt víðar væri
leitað.
Kynjafræði 101
Þá er spurningin sú: Á að refsa
öðrum fyrir það að ég hafi
fæðst karlkyns?
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, forsætisráðherra, velti
upp tilvistarlegri spurningu
þegar hann svaraði fyrir
kynjahalla í ríkisstjórn sinni.
Baráttukonur sjá rautt
Leiga á líkömum kvenna er þarna kynnt
til sögunnar sem hluti af hressilegu
sumarfríi en ekki birtingarmynd
kynferðislegs ofbeldis.
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir
og Steinunn Rögnvaldsdóttir
tóku flugfélagið WOW á beinið
á vefritinu Knúz.is fyrir sér-
kennilegan auglýsingatexta um
Amsterdam þar sem vakin var
athygli á að þar mætti finna vændis-
konur og gras til reykinga.
Rússagrýlan tekin til
bænanna
Trúarbrögðin ykkar eru
hættulegri en samkynhneigð.
Hommar eru skemmtilegir. Þið
og ykkar kirkja eruð einfald-
lega óhugnanleg.
Jón Gnarr, borgarstjóri, sat ekki
þegjandi undir aðför rússneska
þingsins að réttindum samkyn-
hneigðra.
Sárt ert þú leikinn
Ólafur fóstri
Ég sakna Sámur meira eins og
ég sakna Ólafur.
Dorrit Moussaieff, forsetafrú,
stal senunni eins og henni einni
er lagið þegar lögheimilis-
flutningur hennar var ræddur í
fréttum. Heimilishundinn á Bessa-
stöðum ætlar hún ekki að yfirgefa
þótt lögheimili hennar sé í Bretlandi.
Og góður í ensku?
Hann er mjög viðkunnanlegur, og sérstaklega skipulagður í allri framsetningu og rökfærslum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hitti Obama, Bandaríkjaforseta, og hreifst af kappanum.
30 úttekt Helgin 27.-29. desember 2013