Fréttatíminn - 27.12.2013, Side 60
Edrú quiz hjá ung-Sáá
Þegar fólk leggst inn á Vog gefur það upplýsingar um sína aðstandendur og ráð-
gjafar SÁÁ hafa þá samband og bjóða
þeim fræðslu. Í mörgum tilfellum
leita aðstandendur þó til SÁÁ þrátt
fyrir að sá sjúki hafi ekki viðurkennt
vanda sinn. „Ef neysla annarra fer
að skyggja á lífið þá er ástæða til að
koma í viðtal,“ segir Helga Óskars-
dóttir, ráðgjafi hjá Fjölskylduráðgjöf
SÁÁ. Hún segir mörgum aðstandend-
um þykja fyrstu skrefin þung þegar
leitað er eftir hjálp. „Oft finnst fólki
erfitt að viðurkenna að það ráði ekki
við vandann,“ segir hún. Helga segir
þó mikilvægt að hafa í huga að það sé
merki um styrk að leita sér hjálpar.
Í tilfelli alkóhólisma gildi ekki það
viðhorf að gefast aldrei upp og halda
bara áfram. Það sé einmitt gott að
viðurkenna vanmátt sinn og fá hjálp.
Stjórnleysi einkennir fíknisjúkdóma
Helga segir megin markmið Fjöl-
skylduráðgjafarinnar að fræða að-
standendur og veita þeim stuðning.
„Okkur finnst mjög mikilvægt að fá
fjölskyldurnar hingað og segja þeim
hvernig sjúkdómurinn er svo þær
geti verið styðjandi við þann veika og
jafnframt hlúð að sjálfum sér. Þetta
er sérstakur sjúkdómur sem þarf sér-
staka meðferð. Eitt helsta einkenni
fíknisjúkdóma er stjórnleysi. Fólk í
neyslu missir stjórn á neyslunni og
hegðuninni og samskiptin fara í rugl.“
Aðstandendur reyni oft að ráðleggja
sjúklingnum um hvað eigi að gera en
það hafi engin áhrif því stjórnleysið
sé svo mikið.
Helga segir algengt að aðstandendur
noti sömu aðferðir við vandamál tengd
alkóhólisma og við önnur vandamál,
eins og að þrífa upp eftir partíin og
borga skuldirnar þó það eigi
bara að vera í þetta eina sinn.
„Með þessu móti sér sá sjúki
ekki afleiðingar neyslunnar.
Fólk telur sig vera að hjálpa
en er í rauninni að viðhalda
ástandinu.“ Hinn sjúki þurfi
að fá að reka sig á og borga
skuldir sínar og í langan tíma
sé fólk kannski búið að segja
fíklinum hvað hann eigi að
gera og haldi stundum að
hann leggi sig fram við að
svekkja það.
Framkoma fjölskyldunnar
hefur áhrif
Í Von er boðið upp á fjölskyld-
unámskeið sem standa í fjórar vikur
og eru tvö kvöld í viku og segir Helga
það oft góða byrjun að fjölskyldan leiti
sér aðstoðar og læri hvernig meðlimir
hennar geti haft áhrif á þann sjúka
til dæmis með því að tala við hann á
annan hátt. „Fjölskyldan verður glaðari
og þá kemur oft löngunin hjá þeim
sjúka að gera eitthvað í sínum málum.
Oft eru aðstandendur búnir að hafa það
á tilfinningunni að ekki sé á þá hlustað
og það getur haft neikvæð áhrif því fólk
skilur sjúkdóminn ekki. Það er mikil-
vægt að sleppa tökunum og varpa
ábyrgðinni yfir á alkóhólistann
og spyrja hvað hann hyggist gera
en ekki alltaf að leysa vanda-
málin fyrir hann.“
Fólk týnt í meðvirkni
Meðvirkni er algeng meðal að-
standenda áfengis- og vímuefna-
sjúklinga og segir Helga ýmis
líkamleg einkenni geta fylgt
henni, eins og vöðvabólga, höf-
uðverkur, bakverkur og melt-
ingartruflanir. Þá séu andleg
einkenni eins og kvíði, þung-
lyndi, reiði og vonleysi einnig
algeng. Þessi einkenni koma
vegna streitunnar sem fjöl-
skyldan býr við. Sá meðvirki sé alltaf
mjög upptekinn af öðrum og telji sig
vita hvernig öðrum líður og jafnvel
hvernig aðrir hugsa. Fólk sé svo upp-
tekið af öðrum að það sjálft týnist og
viti jafnvel ekki hvað það vilji fá út úr
lífinu og sé alltaf á vaktinni að passa
upp á aðra og gleymi sjálfu sér.
Hjá Fjölskylduráðgjöf SÁÁ
í Von í Efstaleiti er að-
standendum áfengis- og
vímuefnasjúklinga veitt
fræðsla og stuðningur. Að-
standendur verða oft með-
virkir og gleyma að huga
að sjálfum sér og því er
mikilvægt fyrir þá skilja
sjúkdóminn alkóhólisma.
Ráðgjafi segir að ef neysla
annarra skyggi á lífið sé
ástæða til að koma í viðtal.
Merki
um styrk
að leita
sér hjálpar
Ung-SÁÁ er félagsskapur
fólks, 35 ára og yngra, sem vill
skemmta sér edrú. Mánað-
arlega er haldið edrú quiz,
spurningakeppni þar sem tveir
og tveir eru saman í liði. Að
sögn Sigmundar Einars Jóns-
sonar er alltaf fenginn þjóð-
þekktur einstaklingur til að
vera spyrill. „Núna í desember
ætlar Sigga Klingenberg að sjá
um að spyrja og tónlistarmað-
urinn Steinar spilar tónlist.
Svo eru alltaf flottir vinningar
í boði,“ segir hann. Í mars eða
apríl ár hvert er farið í skíða-
ferð á Siglufjörð og síðast fóru
50 manns. Ung-SÁÁ hópurinn
fer einnig saman í bíó, Bláa lón-
ið og á næstunni er fyrirhugað
að bjóða upp á matreiðslukynn-
ingar, danskennslu og jafnvel
kennslu í date-tækni og daðri.
Nánari upplýsingar um
UNg-SÁÁ
má nálgast
á Facebook-síðunni
Ung-SÁÁ og netfangið er
ungsaa@gmail.com
Annan hvern fimmtudag
heldur Ung-SÁÁ stjórnar-
fundi í Von í Efstaleiti og eru
allir velkomnir. „Við erum allt-
af að taka inn nýtt fólk og það
eru allir velkomnir að starfa
með okkur og hjá okkur eru
allir jafnir.“
Sigmundur segir félags-
starfið sérstaklega vel henta
þeim sem hafa einangrað sig
frá gömlu neyslufélögunum
og vilja skemmta sér edrú.
Sjálfur fór hann í meðferð á
Vog í október 2010 en datt í
það stuttu seinna. „Þá fór ég
strax til SÁÁ og fékk hjálp til
að halda áfram á beinu braut-
inni. Þar var haldið rosalega
vel utan um edrúmennskuna
mína.“
Oft finnst
aðstand-
endum
erfitt að
viðurkenna
að þeir ráði
ekki við
vandann.
Helga Óskarsdóttir
er ráðgjafi hjá Fjöl-
skylduráðgjöf SÁÁ í Von.
Hún segir mikilvægt
að fræða og styðja við
bakið á aðstandendum
áfengis- og vímuefna-
sjúklinga. „Þetta er sér-
stakur sjúkdómur sem
þarf sérstaka meðferð
og eitt helsta einkenni
hans er stjórnleysi.“
Ljósmynd/Hari
FjölSkylduráðgjöF Sáá:
4 DESEMBER 2013