Fréttatíminn - 27.12.2013, Qupperneq 61
Ef fram fer sem horfir, verður
tap SÁÁ vegna Vogs í ár 180
milljónir. Óvissa ríkir um fram-
tíð spítalans og hefur starfs-
fólki verið fækkað og þjónusta
skert. Tæplega þrjú hundruð
manns eru nú á biðlista eftir
læknismeðferð þar. Yfirlæknir
Vogs leggur áherslu á að álag
á aðrar heilbrigðisstofnanir
muni aukast þegar þjónusta á
Vogi sé skert. Hagkvæmast sé
að áfengissjúkt fólk fái við-
eigandi læknismeðferð í stað
þess að vera ómeðhöndlað hjá
lögreglunni, á bráðamóttöku
eða á öðrum sjúkradeildum.
Niðurskurður á árunum eftir hrun hefur bitnað á starfsemi Vogs og ríkir mikil óvissa um hvernig henni verður hagað í framtíðinni.
Að sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis
á Vogi, hefur þjónusta við sjúklinga verið
skert á þessu ári og starfsfólki fækkað.
„Þegar þessu rekstrarári lýkur borgar SÁÁ
um 180 milljónir með þjónustunni sem
veitt er á Vogi. Það mun hafast með því að
draga úr þjónustu en það er alveg ljóst að við
getum ekki staðið undir slíkum halla áfram
næstu árin. Framhaldið er í algjörri óvissu
og enginn veit hvernig þetta mun fara,“
segir hann.
SÁÁ greiðir sjálft fyrir
hluta sjúklinganna
Ríkið greiðir fyrir 1.700 innlagnir
á Vogi á ári þó þörfin sé mun
meiri og segir Þórarinn stefna í
að á milli 2.100 og 2.200 innlagnir
verði á árinu og greiðir SÁÁ fyrir
heilbrigðisþjónustu þess hóps
sem ríkið greiðir ekki fyrir. „Það
hagar þannig til að við erum í
samfélagi þar sem allir sem eru
með sjúkdóm eiga að fá læknis-
meðferð sem greidd er úr sam-
eiginlegum sjóðum landsmanna.
Alkóhólismi er viðurkenndur
sjúkdómur hér á landi og hefur
verið lengi. Ríkinu ber því að
veita þessum sjúklingum meðferð
eins og öðrum,“ segir hann. Þó innlagnir
Vogs hefðu aðeins verið 1.700 í ár myndi
hallinn samt vera 100 milljónir. „Þetta bil
þarf að brúa, það er ekki nóg að við fækkum
sjúklingum.“
Biðlistar lengjast
Að sögn Þórarins voru rúmlega 100 manns
á biðlista á hverjum tíma fyrstu árin eftir
hrun en fjöldinn fór upp í hundrað og fimm-
tíu til tvö hundruð fyrir einu og hálfu ári
síðan. „Núna síðla sumars fór fjöldinn upp
í tæplega þrjú hundruð en svo langur hefur
listinn ekki verið síðasta áratug,” segir
hann.
Þórarinn segir mjög erfitt að velja fólk til
innlagnar af svo löngum biðlista þó reynt
sé að sinna þeim veikustu eins fljótt og
mögulegt er. „Það er kallað inn af listanum
eftir ákveðnum reglum. Við eigum í sam-
starfi við Lögregluna í Reykjavík og tökum
við fólki í bráðainnlögn sem lögreglan telur
að sé mjög illa á sig komið á götunni. Við
eigum einnig í samvinnu við geðdeild og
bráðamóttöku á Landspítala og ýmsar aðrar
heilbrigðisstofnanir og þær mælast til þess
að ákveðnir einstaklingar hafi forgang.“
Vandinn hverfur ekki
Þórarinn segir mikilvægt að hafa í huga að
Vogur sé hluti af íslenska heilbrigðiskerfinu
og að margar aðrar heilbrigðisstofnanir
treysti á starfsemi hans og að þegar þjón-
ustan á Vogi minnki bitni það á öðrum stofn-
unum sem áfengissjúklingar muni leita til.
„Það er hagkvæmast að hver sjúk-
lingur sé á sínum bás og þá á ég
við að þeir sjúklingar sem þurfa
á bráðaþjónustu að halda séu á
bráðamóttöku, þeir sem þurfa í
skurðaðgerðir séu á skurðdeild
og áfengissjúklingar í áfengis-
meðferð en ekki öfugt,“ segir Þór-
arinn og leggur áherslu á að þó
Vogi yrði lokað losni samfélagið
ekki við áfengissjúklinga því þeir
muni leita annað. „Áfengissjúkt
fólk verður þá ómeðhöndlað hjá
lögreglunni, á bráðamóttöku og
inni á almennum deildum þar sem
það mun kalla á útgjöld sem hægt
væri að sleppa við væri þetta fólk á réttum
stað – á stofnun fyrir fólk með áfengis- og
vímuefnavanda.“
Að mati Þórarins skiptir miklu máli að
fara skynsamlega með það fé sem til er
þegar kreppir að og peninga vanti til heil-
brigðisþjónustunnar þannig að sparnaður
náist fyrir samfélagið í heild. „Þetta er hægt
að reikna út með ýmsum hætti en það liggur
í augum uppi að um leið og illa farinn áfeng-
issjúklingur fer inn á Vog sparast peningar
við að hafa viðkomandi þar. Það er ódýr-
ara að hafa slíkt fólk á Vogi því utan Vogs
stofnar það til útgjalda fyrir þjóðfélagið sem
er fimm til sjö sinnum meiri en daggjaldið á
Vogi er. Það er hægt að eyða alveg ótrúlega
miklum peningum og sjá lítinn árangur ef
þeim er eytt á rangan hátt þegar kemur að
áfengis- og vímuefnafíklum.“
Byggðu sitt sjúkrahús sjálf
Vogur var fyrst tekinn í notkun fyrir ná-
kvæmlega þrjátíu árum og var byggður fyrir
fé sem SÁÁ safnaði meðal almennings. Þar
dvelur fólk í tíu daga og er þar rými fyrir
sextíu sjúklinga. „SÁÁ hefur byggt þessi
hús yfir starfsemina af eigin rammleik og
fengið til þess lítinn styrk frá opinberum
aðilum og engan núna í nokkuð langan
tíma.“ Þórarinn segir ýmis dæmi um að
sjúklingahópar hafi tekið sig til og byggt
spítala, eins og berklasjúklingar hafi gert á
sínum tíma. Sjúklingasamtök nú til dags séu
þó flest í pólitískum málum og stuðningi við
sjúklinga og aðstandendur. Þau leggi yfir-
leitt ekki beinharða peninga í skurðaðgerðir
eða læknismeðferðir fyrir sína sjúklinga
eða byggja sína eigin spítala. „Við höfum
gert hvort tveggja en ríkið staðið við sitt og
borgað fyrir meðferð hjá 1.700 sjúklingum á
ári þó það sé ekki nóg.“
Fólk treystir á Vog
Um níu prósent allra lifandi Íslendinga á
aldrinum 16 til 64 ára hafa einhvern tíma á
ævinni leitað á Vog. Að sögn Þórarins treystir
fólk á að þjónusta Vogs standi til boða í fram-
tíðinni fyrir þá sem hana þurfa. „Það er ljóst
að þeir fjármunir sem við fáum núna duga
ekki fyrir þeirri þjónustu sem við veitum. Ef
ekki verða gerðar breytingar þurfum við að
skerða þjónustuna verulega en höfum ekki
enn tekið ákvörðun um það hvernig þeim
verður háttað.“ SÁÁ sé búið að eiga í sam-
starfi við heilbrigðisráðuneytið í 36 ár og
muni ekki grípa til neinna ráðstafana nema
í samráði við yfirvöld. „Vegna hallareksturs
hefur óvissa um starfsemi á Vogi aldrei verið
meiri og við vitum ekki hvað í ósköpunum
fólk ætlar sér að gera. Það er verið að fást
við margan annan vanda í samfélaginu eins
og til dæmis biluð röntgentæki á Landspít-
ala og skuldaniðurfærslur. Fólk hefur ekki
skondrað augunum hingað og það er óljóst
hvaða afleiðingar það mun hafa í för með sér.
Við hjá SÁÁ berum ekki ein ábyrgð á því að
þessi þjónusta verði í boði.“
Við hjá
SÁÁ berum
ekki ein
ábyrgð á
því að þessi
þjónusta
verði í boði.
Óvissa um
framtíð Vogs
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi,
hefur þungar áhyggjur af þeim afleiðingum
sem niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hefur
á starfsemi á Vogi. Í ár stefnir í að á milli
2.100 til 2.200 sjúklingar leggist þar inn en
ríkið greiðir aðeins fyrir 1.700 manns. SÁÁ
greiðir mismuninn. Ljósmyndir/Hari
5 2013 DESEMBER