Fréttatíminn - 27.12.2013, Qupperneq 63
AFMÆLISVEISLA
Í VON 28. DESEMBER KL. 15-17
PÁLL ÓSKAR OG MONIKA ABENDROTH
HLJÓMSKÁLAKVINTETTINN
LJÓSMYNDASÝNING
KAFFI OG KÖKUR
SJÚKRAHÚSIÐ VOGUR 30 ÁRA
Opið hús í Von, Efstaleiti 7.
Börn eru mismunandi eins og þau eru mörg og bregðast við aðstæðum sínum á mismunandi hátt. Eins er stuðnings-net þeirra mis þétt. Það eru þó ákveðin einkenni sem geta verið sameiginleg með börnum sem eru aðstandendur
áfengis- eða vímuefnasjúklinga, eins og til dæmis skömm, sektar-
kennd, reiði, höfnunartilfinning, depurð, kvíði og neikvæð sjálfs-
mynd. Þetta eru börn sem búa við álag og oft mikla óvissu og
upplifa oft mikið óöryggi vegna aðstæðna sinna,“ segir Ása
Margrét Sigurjónsdóttir, sálfræðingur hjá Barnahjálp SÁÁ.
Þar gefst börnum á aldrinum átta til átján ára kostur á sál-
fræðiþjónustu vegna áfengis- eða vímuefnaneyslu foreldra
eða annarra náinna fjölskyldumeðlima.
Að sögn Ásu Margrétar felst þjónusta Barnahjálparinnar
fyrst og fremst í fræðslu, forvörn og stuðningi. „Rannsóknir
sýna að börn alkóhólista eru í ákveðnum áhættuhópi. Það
er aukin áhætta að þau geti þróað með sér alkóhólisma eins
og foreldrar þeirra, bæði vegna þeirra aðstæðna sem þau alast
upp við og erfðaþátta.“ Ása segir þær aðstæður geta komið upp
að börn kenni sjálfum sér um neyslu foreldra sinna og þá komi
upp sektarkennd. „Börn telja stundum að það sé eitthvað
í þeirra fari eða eitthvað sem þau hafa gert af sér
sem sé þess valdandi foreldrar þeirra drekki.
Fræðslan felst meðal annars í því að fyrir-
byggja slíkt.
Að sögn Ásu Margrétar Sæ-
mundsdóttur, sálfræðings hjá
Barnahjálp SÁÁ, er aukin áhætta
á að börn alkóhólista geti
þróað með sér alkóhólisma,
bæði vegna þeirra aðstæðna
sem þau alast upp við og
erfðaþátta. Ljósmynd/Hari.
Sálfræðiþjónusta
fyrir börn alkóhólista
Hjá BarnaHjálp Sáá í Von er Börnum á aldrinum 8 til 18 ára Veitt
SálfræðiþjónuSta Vegna áfengiS- eða VímuefnaneySlu aðStandenda:
Rannsóknir sýna að aukin áhætta er
á að börn alkóhólista geti þróað með
sér alkóhólisma líkt eins og foreldrar
þeirra, bæði vegna erfðaþátta og
aðstæðna í umhverfi þeirra.
Félagsvist og dans í Von
Annað hvert laugardagskvöld stendur
SÁÁ fyrir félagsvist og dansi í Von.
Félagsvistin hefst klukkan 20 og svo er
dansinn stiginn frá klukkan 22. „Hingað
kemur frábær hópur fólks sem vill spila
og dansa án áfengis og vímuefna. Það er
alltaf góð mæting fólks á breiðu aldurs-
bili,“ segir Metta Íris Kristjánsdóttir.
Nú í haust var boðið upp á dansnám-
skeið hjá Auði Haralds í Von. „Það er
mjög gaman að læra að dansa og góð
og skemmtileg hreyfing. Bæði hjón og
einhleypir mæta og alltaf hægt að finna
dansfélaga.“
Ýmsir skemmtilegir viðburðir eru
yfir árið og heldur hópurinn þrettán-
dagleði 4. janúar og árlega er haldið
þorrablót. Barnajólaball SÁÁ verður
haldið í dag, föstudaginn 27. desember
klukkan 15, og sjá Metta Íris og fleiri
félagar um skipulagningu þess.
Metta Íris fór í meðferð fyrir rúmum
12 árum og varð edrú í fyrstu tilraun.
„Með góðum stuðningi SÁÁ og ekki
síður fjölskyldu minnar og félaga hefur
gengið vel að taka einn dag í einu. Það
gefur mér mjög mikið að vera í þessum
félagsskap og að geta tekið þátt í
félagsstarfinu eins og félagsvistinni og
dansinum. Við sem skipuleggjum við-
burðina gerum það í sjálfboðavinnu og
af mikilli alúð því við eigum SÁÁ okkar
lífgjöf að þakka. Það er ekkert flóknara
en það.“
Hægt er að styðja Barnahjálp SÁÁ
í hvert sinn þegar bensín er tekið með
sérstökum lykli frá Atlantsolíu. Með því
að verða sér úti um SÁÁ-lykilinn og dæla
hjá Atlantsolíu fara tvær krónur af hverj-
um lítra til Barnahjálpar SÁÁ. Lyklinum
fylgja auk þess ýmis fríðindi og afsláttar-
kjör. Fólk sem þegar á lykil frá Atlantsolíu
getur breytt honum í SÁÁ-lykil á heima-
síðu Atlantsolíu.
Stuðningur með
SÁÁ-lykli Atlantsolíu
7 2013 DESEMBER