Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.12.2013, Síða 64

Fréttatíminn - 27.12.2013, Síða 64
E lías Guðmundsson og Sólveig Eiríksdóttir, eða Elli og Solla á Gló, opnuðu fyrsta Gló veitinga- staðinn árið 2007 en síðan hafa tveir nýir staðir bæst við. Þau eru sammála um að undanfarið hafi átt sér stað vakning hér á landi þegar kemur að hollu mataræði, uppruna fæðunnar og hreyfingu. „Hörðustu bjúgnavígin eru að falla og fólk sem lætur eins því finnist mataræði ekki skipta neinu máli, það er farið að laumast í eitthvað grænt,“ segir Solla og brosir. Elli bætir við að þau finni mikinn mun á jóla- vertíðinni á Gló. „Áður fyrr varð rólegt hjá okkur strax í lok nóvember en núna er mikið að gera allan desember og alveg brjálað á milli jóla og nýárs svo fólk hættir ekkert í hollustunni yfir jólin,“ segir hann. Solla er grænmetisæta en Elli fær sér stundum kjöt. „Ég hef nú aldrei verið brjál- aður í kjöt en fæ mér einstaka sinnum þegar mig langar til en við eldum aldrei kjöt heima,“ segir hann. Solla á tvær dætur og tvö barnabörn og Elli eina dóttur. Dæturnar eru aldar upp við hollustufæði og kunna vel að meta það. Báðar dætur Sollu voru græn- metisætur eins og móðirin en svo kom Elli annarri þeirra upp á að borða kjöt. Aðspurð hver viðbrögð hennar voru svarar Solla hlæj- andi að það hafi verið í góðu lagi. Elli flýtir sér að bæta við að það hafi verið alveg óvart. Græn og edrú jól Síðustu tíu árin hafa Elli og Solla boðið for- eldrum sínum, börnum og barnabörnum til sín á aðfangadagskvöld. Þá er boðið upp á grænt hlaðborð og Elli bakar humar í ofn- inum og segja þau kjötfólkið í fjölskyldunni kunna vel að meta humarinn og finnist hann sá besti sem þau hafa smakkað. „Svo gerum við alltaf kartöflusalat sem hefur fylgt ætt- inni minni. Salatið og humarinn er það eina sem við höfum alltaf árlega. Grænu réttirnir eru mismunandi ár frá ári. Þetta eru ekki mjög fastar hefðir hjá okkur,“ segir Solla. Með matnum drekka sumir jurtagos eða sparisódavatn en aðrir malt og appelsín og hlakkar Elli sérstaklega mikið til þess að drekka jólaölið í ár. Elli segist vera mikill nammigrís og í sam- starfi við vini sína flytja þau inn til landsins súkkulaði-kanil möndlur sem er jólanammið þeirra á hverju ári. „Þetta var fáanlegt hérna á Íslandi í góðærinu en datt svo út en við höfðum upp á þessu og flytjum sjálf inn fyrir jólin, sko nokkra kassa en ekki gáma,“ segir hann og hlær. Solla og Elli halda alltaf áfengislaus jól og hafa kosið að haga sínu fjölskyldulífi á þann hátt. Bæði eru þau alin upp við áfengislaus jól og segjast glöð að hafa haldið þeim sið með sínum fjölskyldum. Meðferð góður leikur Á sínum yngri árum var Elli í mikilli vímu- efnaneyslu en fór í meðferð og hætti fyrir 16 árum, þá 26 ára. Hann kveðst hafa verið svokallaður nútíma alkóhólisti sem byrjar í drykkju og fer fljótlega í fíkniefni. „Ég var alltaf mikill prinsippmaður og ætlaði að mennta mig en aldrei að taka fíkniefni inn í mitt líf. Svo leiddi eitt af öðru og ég var í neyslu í sex ár,“ segir hann. Elli fór í meðferð og kveðst heppinn að hafa orðið edrú í fyrstu tilraun. „Ég fór ekki í meðferð vegna þess að mér leið svo illa í neyslunni heldur af því mér fannst það góð- ur leikur í stöðunni. Ég var kominn út í horn og fannst fínt að nota þetta meðferðarkort. Í meðferðinni varð ég svo fyrir vakningu og sá að alkóhólisminn átti mig og að allt sem ég gerði tengdist honum,“ segir hann. Elli segir edrúmennskuna þó ekki hafa verið upp á marga fiska til að byrja með. „Ég var með nýliðaruglið í nokkur ár. Hugarfarslega var ég edrú en ennþá fastur í sjálfsvorkunn og biturð og fannst ég eiga að fá miklu meiri verðlaun fyrir að vera að taka á mínu lífi en vildi ekki taka ábyrgð á því. Alkóhólíska hugsunin var föst í hausnum.“ Taka lífinu eins og það er Eftir að hafa verið edrú í fjögur ár kveðst hann hafa verið óvinsælli í vinnu en þegar hann var í sem mestri neyslu. „Þetta er mjög kómískt svona eftir á en hugarfarið var mjög brenglað eftir alla neysluna,“ segir hann. Svo fór hann að vinna í sínum málum og þá fór að ganga betur. Elli og Solla hafa verið par í 11 ár og reka saman veitingastaðinn Gló. Þau hafa hollustuna í öndvegi og halda jólaboð á hverju aðfangadagskvöldi þar sem boðið er upp grænt hlaðborð og humar sem þeirra nánustu kunna vel að meta. Á árum áður átti Elli við vímuefnavanda að etja en fór í meðferð og varð edrú í fyrstu tilraun. Í dag er hann þakklátur fyrir að hafa borið gæfu til að hætta neyslu áður en hann lenti á Litla-Hrauni. Þau Solla njóta þess hvern dag að lifa edrú lífi saman. Græn og áfengislaus jól 8 DESEMBER 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.