Fréttatíminn - 22.03.2013, Blaðsíða 46
46 páskamatur Helgin 22.-24. mars 2013
páskamatur Hrefna rósa sætran
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
Við kynnum nýjan hvítmygluost frá Mjólkursamsölunni
undir nafninu Dala-Auður. Osturinn er einstaklega
mjúkur og bragðgóður og er sá mýksti úr flóru
mygluosta frá MS.
Dala-Auður er 170 g og er unnin úr nýmjólk.
Nafn ostsins er vísun í Auði djúpúðgu sem var
landnámskona í Dölunum og ættmóðir Laxdæla.
MJÚKUR OG LJÚFFENGUR
HVÍTMYGLUOSTUR ÚR DÖLUNUM
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
2–
06
31
Brúðkaupsblað
Fallegt sérblað um brúðkaup fylgir Fréttatímanum 19. apríl.
Í blaðinu verður fjallað á skemmtilegan og áhugaverðan máta
um allt mögulegt tengt brúðkaupinu.
Hafið samband við Kristi Jo Jóhannsdóttir í síma 531 3307 eða sendið
póst á netfangið kristijo@frettatiminn.is og fáið nánari upplýsingar.
19.
Apríl
Fáðu þér íslenskt gott kex
með chilli- eða hvítlauksbragði.
Bættu við bragðgóðum íslenskum osti,
smá af sultu og njóttu þess.
Gljáð skinka í tacó skel með
tómat carpaccio og agúrku-
lárperu salsa
Gljáð skinka (fyrir 4)
12 stk tacó skeljar
1 stk salathaus
600 g soðin skinka (eða eitthvert
sambærilegt kjöt)
2 msk sojasósa
2 msk dijon sinnep
2 msk hlynsýróp
2 msk púðursykur
1 msk kanill
Gljáð skinka í tacó skel og páskaegg
fyllt með súkkulaðimús
Hrefna Rósa Sætran, matreiðslumaður á Grillmarkaðnum og Fiskmarkaðnum, er farin að huga að páskunum.
Hún gaf okkur uppskriftir að skemmtilegum réttum til að nýta afganga um páskana.
Blandið öllu saman í skál og
hrærið vel saman með písk. Setjið
í eldfast mót sem passar vel fyrir
skinkuna þannig að hún liggi vel
í gljáanum. Hitið ofninn á 180 gráð-
ur og hitið skinkuna í 10 mínútur.
Snúið henni við og hitið í aðrar 10
mínútur. Endurtakið leikinn einu
sinni enn þannig að gljáinn nái að
karamellast vel utan á skinkunni.
Leyfið skinkunni að kólna í gljá-
anum í 10 mínútur og skerið hana
svo í þunnar sneiðar. Setjið salat-
blað í botninn á tacóskel. Leggið
nokkrar sneiðar af skinku ofan á
salatið og setjið svo að endingu vel
af salsa yfir.
Tómat carpaccio
4-6 stk tómatar
40 ml olívuolía
2 msk sítrónusafi
2 rif hvítlaukur
2 cm engiferrót
2 msk sesamfræ
graslaukur
Skerið tómatana í sneiðar. Blandið
saman olíunni, sítrónusafanum,
fínt söxuðum hvítlauknum og fínt
saxaðri engiferrótinni í skál. Setjið
dressingu yfir tómatana og stráið
svo sesamfræjum yfir ásamt söx-
uðum graslauk.
Agúrku-lárperu salsa
1/2 stk agúrka
1 stk rauðlaukur
1-2 stk lárperur
2 msk sojasósa
2 msk sítrónusafi + fínt raspaður börkur af
sítrónunni
4 msk olívuolía
Skerið agúrkuna í tvennt, kjarn-
hreinsið hana og skerið í litla bita.
Skerið rauðlaukinn og lárperuna
líka í litla bita. Setjið grænmetið í
skál og bætið sojasósunni, sítrónu-
safanum og olíunni út í. Leyfið
þessu að standa í 20 mínútur áður
en þið berið fram.
Páskaegg fyllt með
hvítsúkkulaðimús
Hrefna lætur hugmyndaflugið ráða
þegar kemur að eftirréttinum. Hún
segir sniðugt að fylla minni egg
líka og jafnvel stærri og bera fram
sem öðruvísi páskaegg. „Ég tók
páskaegg númer þrjú og braut það
þannig að það væri hægt að fylla
það. Ég útbjó súkkulaðimúsina og
skellti henni í eggið. Eggið lagði
ég svo á hlið inn í ísskáp þar til
músin stífnaði eða í um það bil 1
klukkustund.“
Hvítsúkkulaðimús (Fyrir 4)
250 g rjómaostur
40 g sykur
125 g hvítt súkkulaði
125 ml rjómi
Setjið rjómaostinn og sykurinn í
vatnsbað og hitið þar til sykurinn
er bráðinn og osturinn orðinn
mjúkur. Takið af hitanum og bætið
hvíta súkkulaðinu út í. Hrærið
með sleikju þar til súkkulaðið er
bráðið. Kælið blönduna þar til hún
er við stofuhita. Þeytið rjómann
létt. Blandið saman súkkulaðiosta-
blöndunni við léttþeytta rjómann í
nokkrum skrefum.
Ástríðualdinsýróp
4 stk ástríðualdin
80 g sykur
150 ml vatn
Skerið ástríðualdinin í tvennt og
skafið fræin innan út með skeið.
Setjið í pott með sykrinum og
vatninu. Sjóðið við vægan hita þar
til blandan er orðin sýrópskennd.
Kælið lítillega og berið fram með
páskaegginu.
Myndir: Björn Árnason
s óttu