Fréttatíminn - 22.03.2013, Blaðsíða 48
48 páskamatur Helgin 22.-24. mars 2013
Páskamatur kaLkÚNN
Páskamatur kraNsakökur í veisLuNa
J ói segir uppskriftina frekar einfalda svo allir ættu að geta prófað að baka kransaköku. Hann
segir mjög mikilvægt að vanda sig við
baksturinn því ef kakan er bökuð of
lengi getur hún orðið þurr. „Marsinn og
sykurinn er unnið mjög rólega saman
með krók þar til sykurinn er uppleystur.
Þá eru hvíturnar settar saman við, ein
í einu og hnoðað mjög rólega þar til
eggjahvíturnar eru komnar vel saman
við marsann. Ef sprauta á deiginu þurfa
að vera 6 eggjahvítur í uppskriftinni.“
Deigið er hnoðað í höndunum og sett í
kæli í einn sólarhring. Það er rúllað út,
þykktin á að vera eins og á góðri pylsu.
Loks er annar endinn laminn létt niður
svo deigið verði þunnt í annan endann.
Ef engin mót eru til staðar er best að
nota reglustiku. Minnsti hringurinn á
að vera 10 cm og næsti 2,5 cm stærri og
svo koll af kolli
Baksturinn vandasamur
Jói segir baksturinn vandasaman. Það
600 gr kalkúnabringa
150 gr rauðlaukur
2 msk. ólífuolía
3 1/2 dl hrísgrjón
3 tsk. karrí
7 1/2 dl kjúklingasoð
200 gr fennikel
1 stór banani
1 stórt rautt epli
4 msk. Mango chutney sósa
1 msk. sítrónusafi
1 tsk. salt
1 tsk. malaður pipar
2 msk. kókosmjöl
Afhýðið lauk og skerið í báta.
Hitið olíu í potti og mýkið laukinn
í smástund. Hrærið þá karríi og
grjónum saman við og blandið
vel. Bætið kjúklingasoðinu út í
og sjóðið í 15 mínútur. Takið þá
grjónin af hellunni og látið standa
í smástund.
Hreinsið fennikel og afhýðið
banana og epli. Skerið í ten-
inga. Hrærið sítrónusafa út
í Mango chutney og blandið
saman við teningana.
Hitið ofn í 200° gráður.
Snöggsteikið kalkúnabring-
urnar á teflonpönnu í 5 mín-
útur á hvorri hlið. Setjið í
eldfast mót og bakið í 25 mín-
útur (fer þó aðeins eftir þykkt
bringu).
Steikið teningana á sömu
pönnu og hellið grjónunum
saman við. Kryddið með
salti og pipar. Setjið grjónin
á fat og skerið bringurnar í
sneiðar og raðið ofan á. Ristið
kókosmjölið lítið eitt á þurri
pönnu og stráið yfir réttinn.
Kalkúnabringur
með kryddgrjónum
69%
... kvenna á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
Það geta allir
gert góða
kransaköku
Kransakökur eru ómissandi hjá mörgum fjölskyldum um
páskana. Margir hafa átt í erfiðleikum með baksturinn og sam-
setninguna en við fengum Jóa Fel til að aðstoða okkur við að
baka góða kransaköku.
taki um 12-14 mínútur að baka
kransakökurnar við 200° með
blæstri. „Ef kökurnar er bakaðar
mun lengur en þessar 14 mínútur
eru þær farnar að þorna og verða
því ekki góðar. Kransakaka er
góð í tvo til þrjá daga en eftir það
fer hún að þorna og verður vond.“
Laga þarf einfaldan glassúr til að
sprauta utan á kökurnar. Upp-
skriftin er 1 eggjahvíta, 3-4 dropar
af sítrónusafa og svo sigtaður
flórsykur settur saman við þar til
glassúrinn er tilbúinn. Svo þarf
að búa til kramarhús og vanda sig
við að sprauta á kökurnar. Þegar
kemur að því að festa kökuna
saman notast Jói við Odense
súkkulaðidropa sem hann bræðir
í örbylgjuofni. Súkkulaðinu er
sprautað varlega á hringina til að
festa þá saman. Jói miðar við 15-16
hringi í kökunni sem ætti að henta
fyrir 30 manns.
Uppskrift:
1 kg kransamarsi, 500g sykur
og 2 stórar eggjahvítur
ljósmynd: joifel.is
Jói Fel tilbúinn í bakstur kransakökunnar. Ljósmynd/Hari