Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.12.2011, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 23.12.2011, Blaðsíða 10
Borgin komi á fót alvöru leigumarkaði Íslenskur sérfræðingur hjá sænsku ráðgjafafyrirtæki segir ein- stakt tækifæri til þess að koma á fót öflugum leigumarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Borgin ætti að stofna sjóð í samvinnu við Íbúðalánasjóð og bankana og aðra fjárfesta því það sé þjóð- hagslega hagkvæmt. Ekkert land getur búið við það til lengdar að fjármálastofnanir sitji á fasteignum sínum. E kkert land gæti búið við það til lengdar að bankar liggi með hundruð ónotaðra íbúða á efnahagsreikningum sínum og hvorki leigi þær né selji, eins og Íbúðalánasjóður og bankarnir gera nú hér á landi. „Líklegt má telja að fjármálastofnanir haldi uppi markaðsverði á íbúðum með því að selja ekki íbúðirnar,“ segir í úttekt Ásgeirs Brynjars Torfasonar, sem er starfandi sérfræðingur í Svíþjóð í málefnum fasteigna- markaðarins. Ásgeir vinnur hjá ráðgjafafyrirtækinu Sigol Logistics AB Real Estate Consulting og gerði úttekt fyrir Reykjavíkurborg á kostum og göllum þess að borgin stofni sjóð með það að markmiði að gera leiguhúsnæði að raunhæfum valkosti til búsetu í borginni. Úttektin var lögð fyrir borgarráð í síðustu viku. „Samkvæmt könnun Eurostat búa rúmlega 15 prósent íbúa á Íslandi í leiguhúsnæði. Það hlutfall er næstum helmingi hærra í Dan- mörku, Svíþjóð og á Bretlandi svo dæmi séu tekin.“ Borgarinnar að styrkja leigumarkaðinn Ásgeir telur að vegna þess fjölda íbúða sem bankar og Íbúðalánasjóður sitji uppi með í kjölfar efnahagshrunsins væri þjóðhagslega hagkvæmt ef borgin stofnaði sjóð í samvinnu við fjármálastofnanirnar og stofnfjárfesta, eins og lífeyrissjóði, svo hægt sé að leysa úr hnútnum og koma á öruggum leigumarkaði í landinu. Þá væri hægt að leigja íbúðir til langs tíma og á hagstæðu verði. Í skýrslu sem Capacent vann fyrir borgina vegna málsins er vísað í tölur Seðlabankans þar sem segir að samtals eigi fjármálafyrirtækin 2.500 íbúðir, þar af séu 551 í byggingu, 983 í útleigu en 948 standi auðar og séu tilbúnar til útleigu. Ásgeir segir í úttekt sinni að þar sem aðstæður séu þannig á Íslandi að ekki hafi skapast almennur og öruggur leigumarkaður sé það eðlilegt hlutverk stærstu sveitarfélaganna að sjá til þess að honum sé komið á fót. Hann telur sýnt að einkaaðilar geti ekki sinnt því að tvö- falda leigumarkaðinn og gera hann öruggan til lang- tímaleigu, eins og stefna ætti að. Árleg ávöxtun þyrfti að vera það há að leiguverð yrði mun hærra en almenningur ræði við. Einstakt tækifæri núna „Á Íslandi er hins vegar einstakt tækifæri til að koma á almennum leiguíbúðamarkaði núna. Forsendur eftir efnahagshrunið skapa möguleika til að velja mismunandi hluta af þeim kerfum sem eru til staðar í Evrópu og skapa nýja samsetningu húsnæðis- markaðarins á Íslandi og fjölga þannig almennum leiguíbúðum. Stofnun Sjóðsins er hugsuð til þess.“ Samkvæmt heimildum Fréttatímans er málið nú á borði fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar til frekari skoðunar. Meðal annars vinnur skrifstof- an að því að gera úrdrátt úr skýrslum Capacent og Ásgeirs fyrir borgarfulltrúana. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Verður leigumarkaðurinn efldur á valdatíma Samfylkingar og Besta flokksins undir stjórn borgarstjórans Jóns Gnarr? Málið er í skoðun. Mynd/Hari Aðeins ríflega fimmtán prósent fjölskyldna leigja húsnæði hér á landi. Nú er tækifærið að byggja upp alvöru leigumarkað, segir fasteignasérfræðingur. Mynd/Hari Fjölga þarf leiguíbúðum um 8.800 þegar litið er til næstu þriggja ára. Þörf er fyrir um þrettán þúsund fleiri leiguíbúðir á höfuðborgarsvæðinu til lengri og skemmri tíma, þótt forsendur geti breyst. Þetta mat vann Capacent fyrir Reykjavíkurborg. Borgin skoðar að stofna sjóð til að stækka leigumarkaðinn og gera fólki kleift að leigja til langframa. Sjötíu prósentum fleiri vilja leigja sér íbúð en gera það í dag, samkvæmt könnun Capacent. Með einföldu reiknings- dæmi telur Capacent því að heildareftirspurn eftir leigu- íbúðum á landinu getið verið allt að rúmum 39 þúsund íbúðum til lengri tíma. Eftirspurn sé eftir um tólf þúsund fleiri leiguíbúðum í Reykjavík. Capacent bendir þó á að samkvæmt Eurostat [evrópsku hagstofunni] hafi Íslendingar notað um 20 prósent ráð- stöfunartekna sinna í húsnæði árið 2010, sem sé svipað og í nágrannalöndunum. Sé miðað við það hefðu ein- ungis níu prósent hjóna efni á að greiða af 140 fm íbúð, ef fermetraverð í leigu sé 1.500 krónur en 18 prósent væri leigu- verðið 1.200 krónur. - gag Vantar 8.800 leiguíbúðir á næstu þremur árum Úr greiningu Capacent:  17,5 prósent þeirra sem eiga húsnæði í landinu eiga það skuldlaust.  40 prósent leigjenda hafa 250 þúsund krónur í mánaðartekjur og um 60 prósent þeirra eru yngri en 34 ára.  Samkvæmt Lífskjararannsókn Hag- stofunnar er svipað hlutfall heimila í vanskilum með húsnæðislán eða leigugreiðslur og var árið 2004, eða um eitt af hverjum tíu.  Árið 2011 sögðust 51,5 prósent fjöl- skyldna eiga erfitt með að ná endum saman. Árið 2004 var þetta hlutfall 46,2 prósent.  Fjölgun fólks á höfuðborgarsvæðinu hefur verið um eitt prósent frá efnahagshruninu. Íbúum Reykjavíkur fækkaði hins vegar um eitt prósent í fyrra. Mokkaskinnsjakkar úr Toscana lambi Hlýleg jól 10 fréttaskýring Helgin 23.-25. desember 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.