Fréttatíminn - 23.12.2011, Blaðsíða 22
22 matur & vín Helgin 23.-25. desember 2011
Sigtryggur Baldursson
tónlistarmaður og sykurmoli
Sigtryggur er búinn að skipuleggja jólamatinn í þaula
enda mikill áhugamaður um slíkt. Hann er með humar
í forrétt og með því verður á boðstólum Pfaffenheim
Pinot Gris Reserve. Í aðalrétt er önd og með því verður
bæði rautt og hvítt. Það rauða er Isole e Olena Chianti
Classico frá Toscana en það hvíta Pfaffenheim Gewürzt-
raminer.
Með
humrinum
Pfaffenheim
Pinot Gris
Reserve.
Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson
matur@frettatiminn.is
Með önd-
inni Isole
e Olena
Chianti
Classico og
Pfaffenheim
Gewürzt-
raminer.
Hrefna Sætran
kokkur á Fisk- og Grillmarkaðinum
Það er forvitnilegt
að heyra hvað lands-
liðsmenn í mat elda
heima hjá sér um
jólin. Hrefna verður
með humarsúpu í
forrétt og drekkur
Domain de Malandes,
chablis,Vieilles vignes
2009 með. Í aðalrétt
verður hreindýr og
því verður rennt
niður með Bouchard
aine & fils - Mercury
premier cru, pinot
noir frá Bourgogne
2008. Að lokum
verður hún með sérrí-
ís í eftirrétt og með
honum er drukkið
portvínið Portal
Porto, late bottled
vintage 2004.
Jólavínin
Hvað drekka þau
með jólamatnum?
Fréttatíminn spurði nokkra valinkunna Íslendinga
hvaða vín þeir drekka með jólamatnum.
Þ
ó svo að við búum við ríkisrekna áfengis-
verslun þá er vínúrvalið sem okkur er
boðið upp á í Vínbúðunum alls ekki svo
slæmt, reyndar er það alveg hreint ágætt.
Það er líka nauðsynlegt að hafa gott úrval
svo góð vínmenning dafni og áhugamenn um mat og
vín geti notið sín. Það er nauðsynlegt að geta farið út
í næstu Vínbúð og fundið gott vín sem ekki einungis
passar með matnum sem í huga er hafður heldur
passar líka mismunandi smekk manna. Fréttatíminn
fékk nokkra valinkunna Íslendinga til að segja okkur
hvaða vín þeir ætla að drekka með sínum mat.
Rósa Guðbjartsdóttir
blaðamaður og áhugakokkur
Rósa drekkur ekki vín með jólamatnum en það gerir
hún hins vegar með áramótamatnum. Hún er með
humar í forrétt og með honum verður boðið upp á
Cloudy Bay Chardonnay. Í aðalrétt verður lamba-
hryggur og með honum er boðið upp á Baroncini
il Bosso Brunello di Montalcino. Í eftirrétt er svo
súkkulaðibúðingur
Yesmine Olsson
bollywood-sérfræðingur
og áhugakokkur
Yesmine er vön því frá Svíþjóð að drekka ákavíti með
jólamatnum en í ár eyða þau jólunum í íslenskri sveit
og því verður lamb frá sveitabænum sem þau dvelja
á í matinn. Með þvi verður líklega á boðstólum eitt af
hennar uppáhalds rauðvínum, hið spænska Baron De
Ley frá Rioja héraðinu. Ef hins vegar folaldakjöt verður
fyrir valinu þá munu þau drekka Mas La Plana Torres
2004, einnig frá Spáni. Það er samt ein jólahefð sem
hún heldur í frá
Svíþjóð og það er
að fá sér portvín
á jólunum og þá
yfirleitt frá
Graham’s.
Jakob Frímann
Magnússon
miðborgarstjóri og stuðmaður
Í forrétt verður Jakob með humar og ætlar að hafa
góðan Pinot Grigio með honum en hann er ekki
búinn að velja aðalréttinn en býst þó við að það
verði ekki fiðurfé. En hvernig sem fer með það þá
ætlar hann að hafa forláta rauðvín frá
framleiðanda sem hann sjálfur
heimsótti snemma á níunda
áratugnum, Clos des Papes
Chateauneuf du Pape.
Í eftirrétt verður heimalagaður ís.
Með
humrinum
Cloudy Bay
Char-
donnay.
Með lamba-
hryggnum
Baroncini
il Bosso
Brunello di
Montalcino.
Með aðalréttinum
Clos des Papes
Chateauneuf du Pape.
Með
lambinu
Baron De
LeyPape.
Með folald-
akjötinu Mas
La Plana
Torres 2004.
Með
humar súpunni
Domain de
Malandes,
chablis,Vieilles
vignes 2009.
Með
hreindýrinu
Bouchard
aine & fils
- Mercury
premier
cru, pinot
noir frá
Bourgogne
2008.