Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.12.2011, Blaðsíða 58

Fréttatíminn - 23.12.2011, Blaðsíða 58
Helgin 23.-25. desember 2011  Plötudómar dr. gunna Kebab-diskó  Orphic Oxtra Á heitari stað Þessa tólf manna stórsveit er ekki fyrsta bandið á Íslandi til að gera fjöruga Balkanskagamúsík að undirstöðu fyrir tónlistar- sköpun sína, en með þessari annarri plötu sinni tekur sveitin afgerandi forystu á þessu sviði. Ekki aðeins er platan sprellfjörug og gáskafull heldur er hún líka tónlistarlega spennandi og fer í ýmsar áttir í fjörugri framvindunni. Snagg- aralegar taktskiptingar og taktpælingar, eltingarleikja- legur æsingur, snarpar U- beygjur og sterkkryddaður spuni halda hlustandanum á tánum. Þetta er góð plata til að blasta í bílnum á ísköldum vetrarmorgni. Þá er maður kominn á mun heitari stað. Fleiri notalegar ábreiður  Stebbi og Eyfi Mjúkir menn Rjómalögðu flauelsbark- arnir Stebbi og Eyfi fylgja nú eftir ábreiðuplötu sinni frá 2006 og syngja 12 lög til viðbótar frá 8. áratugnum. Platan er mestmegnis róleg og aldeilis notaleg. Má fastlega búast við að Létt FM spili hana í spað. Þetta er velheppnuð plata og ekki kemur á óvart að hún er af- burðavel sungin og nostur- samlega spiluð. Lagavalið er skemmtilegt. Þín innsta þrá er í raun eina „lumman“ á plötunni. Hitt eru misþekkt lög (erlent mjúkpopp og lög af sólóplötum Magnúsar Kjartans og Einars Vilbergs), sem félagarnir gera að sínum með því að syngja þau með nýjum íslenskum textum. Plata sem stendur undir nafni. aðför að lögum  Megas og strengir Tekk og pluss Megas syngur 12 lög úr söngbók sinni (frá ýmsum tímum) við undirleik strengjakvintetts. Útsetn- ingarnar gerði Þórður sonur Megasar og var prógrammið fyrst flutt á Listahátíð 2010. Margir fá eflaust hland fyrir brjóstið enda auðvelt að setja strengjahljóðfæri í samhengi við tekk- og pluss- klætt menningarsnobb. Vissulega er stundum á brattann að sækja á þessari plötu og sumt hljómar eins og upplestur með undirspili. Sem er auðvitað fínt með svona snilldartexta undir. Þegar best tekst til eru útsetningarnar spennandi og músíkin kyngimögnuð. Þá gerist það að einstakur söngurinn fellur eins og flís við hinn gyllta rass. Þá er gaman. Miðasala og nánari upplýsingar í Hallgrímskirkju: sími 510 1000 • www.listvinafelag.is Á sínum eftirsóttu jólatónleikum, sem nú eru haldnir í 30. sinn, býður Mótettukórinn áheyrendum sínum upp á hugljúfa tónlist frá ýmsum löndum. Erlendir kórfélagar leggja til jólalög frá sínum heimalöndum, Póllandi, Tékklandi, Hollandi og Þýskalandi og er sungið á móðurmáli þeirra. Einnig er flutt ný jólatónlist eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, Halldór Hauksson og Martin J. Cieslinski og jólalög eftir Áskel Jónsson, Sigvalda Kaldalóns, Hörð Áskelsson, aría úr Jólaóratóríunni eftir J.S. Bach o.fl. Björn Steinar Sólbergsson leikur á Klaisorgelið. Daði Kolbeinsson óbó, Áshildur Haraldsdóttir flauta. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Miðaverð 3.900 / 3.000 kr. Björn Steinar Sólbergsson orgel · Hörður Áskelsson stjórnandi Nýr og hátíðlegur jóladiskur með upptöku af uppseldum jólatónleikum síðasta árs sem fangar tónleikastemninguna og jólaandann í Hallgrímskirkju. Tilvalin jólagjöf - fæst í öllum helstu plötubúðum. Jól með Mótettukór Hallgrímskirkju og Þóru Einarsdóttur sópran nýr hljómdiskur: heilög stund á jörð (CD) Kristinn Sigmundsson og mótettukór hallgrímskirkju MIÐVIKUDAGUR 28. OG FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER KL. 20 Fjóla segir starf auka- leikarans alltaf vera skemmtilegt en þó mis- skemmtilegt og allur gangur sé á hversu mikið er um bið og hangs.  Fjóla Hersteinsdóttir ÁHugasamur auKaleiKari Stundum þarf að trana sér fram Fjóla Hersteinsdóttir er orðin býsna sjóaður aukaleikari en henni hefur á undan- förnum þremur árum meðal annars skotið upp kollinum í íslenskum sjónvarps- þáttum og kvikmyndum. Draumurinn var vitaskuld að komast að í Game of Thrones. Það tókst ekki sennilega vegna þess að hún var ekki nógu ýtin. F jóla er á meðal tæplega fjögur hundruð meðlima á Facebook-síðunni Auka- leikarar og í hópi fjörutíu reyndari statista á Facebook-síðunni Extras in Iceland. „Ég var búin að vera að dúlla við þetta á eigin vegum í rúmlega þrjú ár þangað til ég gekk í Facebook-hópinn í haust,“ segir Fjóla og bætir því við að þetta fyrir- komulag sé mun þægilegra þar sem framleiðslufyrirtækin auglýsi eftir áhugaleikurum á síðunum. „Þannig að maður þarf ekki alltaf að vera að banka upp á hjá þeim og spyrja hvort eitthvað sé í gangi. Þetta er mjög þægilegt bæði fyrir okkur og fyrirtækin.“ Fjóla hafði mikinn áhuga á leik- list þegar hún var yngri en segist hafa verið of feimin og óframfærin til þess að taka þátt í stafi leiklistar- klúbba og taka skrefið. „Svo ákvað ég bara á gamals aldri að það væri gaman að fara út fyrir eigin þæg- indaramma og festist ég í þessu. Þetta er svo ofsalega skemmti- legt.“ Fyrsta verkefni Fjólu var við sjónvarpsþættina Ástríður en þá var hún í fimmtán manna hópi sem hafði fasta viðveru í mánuð en þau áttu öll að vera starfsfólk á vinnustað aðalpersónunnar. „Eftir það var maður bara komin á skrá hjá þeim.“ Auk Ástríðar hefur Fjóla skotið upp kollinum í sjónvarpsþáttunum Rétti I og II, Pressu 2, Mið-Íslandi, Mannasiðum Gillz og hún var með í tökum á Áramótaskaupinu. Hún hefur einnig verið til taks fyrir kvikmyndirnar Bjarnfreðarson, Okkar eigin Osló, Sumarlandinu, Eldfjalli sem og Djúpinu og Svartur á leik sem eiga eftir að koma fyrir sjónir almennings. Fjóla segir áhugann á leiklist og kvikmyndagerð halda flestum statistum við efnið þar sem ekki trekki launin. Stundum er unnið launalaust eða ákveðin upphæð er greidd fyrir hvern dag. „Þetta er lélegasta tímakaup sem nokkur manneskja getur fengið en flestir hafa gríðarlegan áhuga á þessu og svo er merkilegt að fylgjast með því hvernig sjónvarpsþættir, kvik- myndir og auglýs- ingar verða til.“ Fjóla segist að vonum hafa haft áhuga á því að komast að sem auka- leikari í Game of Thrones. „Það var draumurinn minn, eins og þúsund annarra, að komast í Game of Thrones. Fjórir eða fimm úr okkar hópi urðu fyr- ir valinu en ég held að maður hafi þurft að hafa einhver sam- bönd og nota þau. Ég er ekki orðin alveg nógu góð í því. Maður þarf svolítið að trana sér fram í sumt,“ segir Fjóla og bætir við að þótt fáir taki eftir aukaleikurum þá taka allir eftir því ef þá vantar. „Það verður ekki til sjónvarpsþáttur, kvikmynd eða auglýsing án aukaleikara.“ Það var draumurinn minn, eins og þúsund annarra, að komast í Game of Thrones. Harkalegur skilnaður framundan Söngkonan og Idol- dómarinn Jennifer Lopez sótti um skilnað frá eiginmanninum, Marc Anthony, í júlí síðasta og er hann ekki enn gengið í gegn. Fyrr í vikunni birtust þó myndir af söngkonunni ásamt nýjum kærasta, Casper Smart, sem er rúmlega Situr inni í tæp níu ár fyrir fíkniefnabrot Svo virðist sem vandræði sonar leikarans Michael Dou- glas ætli engan enda að taka. Cameron Douglas, sem er 33 ára gamall, er algjör vand- ræðagosi og hlaut hann fimm ára fangelsisdóm árið 2007 fyrir fíkniefnabrot. Sá dómur var framlengdur í vikunni um fjögur og hálft ár vegna vörslu fíkniefna innan fangelsis- veggja. Faðir hans og stjúp- móðir, leikkonan Catherine Zeta-Jones, hafa bæði sent yfirvöldum löng bréf þar sem þau grátbiðja um að fangelsis- dómurinn verði styttur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Cameron fær að dúsa bak við lás og slá því árið 1999 var hann fundinn sekur um að hafa í fórum sínum kókaín og heróín í miklu magni. Came- ron hefur sjálfur reynt hvað hann getur til að losna undan þessum fjögurra og hálfs árs dómi svo sem með yfirlýsingum þess efnis að hann sé meira en reiðubúinn að snúa baki við fíkniefnadjöflinum. nítján árum yngri en hún. Voru þau hjónaleysin að versla saman skartgripi í Los Angeles. Anthony er ekki par sáttur við þessa hegðun eiginkonu sinnar og segist hann vera tilbúinn í harða forræðis- deilu um börnin þeirra tvö. 58 menning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.