Fréttatíminn - 23.12.2011, Page 24
Höldum jól til að fá
eitthvað flott og frábært
Sannkallaður jólaandi ríkir nú á leikskólum landsins. Útsendarar Fréttatímans heimsóttu í vikunni leikskólann Laufásborg
og komust meðal annars að því að börnin bókstaflega elska jólin. Þeir spurðu nokkur barnanna þar um minnisstæðar
jólagjafir, um uppáhalds jólamatinn, óskalista fyrir þessi jól og afhverju við höldum jólin hátíðleg? Ljósmyndir/Hari
Jökull Þór Hilmarsson Kjerúlf
4 ára
Ætlar að borða
kjúkling á jólunum
Vill fá í jólagjöf: Mig langar ekkert í mjög mikið.
Kannski í lego-ninja eða eitthvað svoleiðis.
Besta jólagjöfin: Besta jólagjöfin er sú sem ég
fékk í fyrra. Fékk svona Ben10 mann og geimskip
sem ég hef leikið mér með mjög mikið.
Af hverju höldum við jól? Maður heldur jól til
þess að fá eitthvað flott og frábært.
Uppáhalds jólaveinn: Stekkjastaur er rosa-
uppáhalds jólasveinninn minn. Út af því að hann
kemur alltaf fyrstur. Ég man samt ekki hvað hann
gaf mér í ár.
Jólamaturinn: Ég held að við ætlum að borða
kjúkling á jólunum. Mér finnst það mjög gott.
En það er ekki samt uppáhaldsmaturinn
minn. Hangikjöt er uppáhaldsmaturinn minn.
Kannski við borðum það á jólunum? Ætla
allavega að gefa Gáttaþef hangikjöt þegar
hann kemur. Útaf því að hann elskar það.
Bríet Erla Valdimarsdóttir
5 ára
Stúfur uppáhalds
jólasveinninn
Jólagjöf: Mig langar að fá barbíhús. Útaf því að
ég á svo mikið á barbídúkkum og þær vantar hús.
Með ískáp, sófa og öllu.
Jólasveinninn: Uppáhalds jólasveinninn minn er
Stúfur útaf því að hann er svo lítill. Hann gaf mér
litla vatnsbyssu um daginn.
Af hverju höldum við jól? Útaf því að Jesú
fæddist á jólunum og við erum að halda
uppá afmælið hans.
Jólamaturinn: Við ætlum að borða hangi-
kjöt á jólunum hjá ömmu. Við erum alltaf
saman á jólunum hjá ömmu og borðum
hangikjöt.
Emanúel Helgason
5 ára
Við höldum jól útaf því
að við elskum jólin
Vill fá í jólagjöf: Mig langar í allt.
Besta jólagjöfin: Einu sinni fékk ég mús í
jólagjöf. Við vorum svo góðir vinir. Svo fékk ég
líka einu sinni rörgleraugu. Ég gat drukkið úr
gleraugunum. Það var svo gaman.
Uppáhalds jólasveinn:
Hurðaskellir er uppáhalds útaf því
að hann gera mig glaðan. Ég veit
samt ekki hvernig. Fékk múmínsn-
áðaspólu frá honum um daginn.
Af hverju höldum við jól? Ég
veit ekki afhverju við höldum jól.
Kannski útaf því að við elskum
jólin.
Embla Sigrúnardóttir
5 ára
Prinsessupúsluspil
á óskalistanum
Besta jólagjöfin: Það var pleimó-dýragarður.
Ég man ekki hvenær samt ég fékk hann. Hann var
risastór og maður gat búið til allskonar skemmti-
legt fyrir dýrin.
Vill fá í jólagjöf: Mig langar að fá prinsessu-
púsluspil útaf því að mér finnst svo skemmtileg
að púsla.
Uppáhalds jólasveinninn: Það er Giljagaur
því að hann sleikir alla potta. Ég man samt ekki
hvað hann gaf mér. En ég held að það hafi verið
eitthvað fallegt.
Af hverju höldum við jól? Útaf því að Jesú
fæddist á jólunum.
Jólamaturinn: Mig langar að borða kjúkling
útaf því að það er uppáhalds maturinn minn. En
ég veit samt ekki hvað við ætlum að borða. Ég
vona að verði kjúklingur. Kannski að við ætlum
að borða hangikjöt? Þá held ég hangikjötsveislu.
24 jól Helgin 23.-25. desember 2011